02.04.1930
Neðri deild: 69. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í C-deild Alþingistíðinda. (1200)

65. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):

Hv. frsm. meiri hl. vildi segja, að engin skýlaus rök væru fyrir því, að draga skyldi útsvar og skatt frá tekjum, af því að önnur fyrirmæli væru í lögum. Eftir þessum hugsunargangi ætti í raun og veru aldrei að mega breyta lögum, og þá þyrfti ekkert löggjafarþing. Þetta eru auðvitað engin rök. Með því að leyfa ekki þennan frádrátt sagði hann, að það fengist hærri skattur. Hann játaði þó, að ekki væri hægt að gefa tölulega útreikninga á því. Það þyrfti að vera hægt að reikna, hve mikið tekjurnar gætu aukizt við þetta. Það er miklu réttara og eðlilegra að fara þá leið, sem hv. þm. Ísaf. vildi, að hækka blátt áfram skattstigann.

Á fundi í fjhn. var sýnt, hvernig það gæti komið fyrir, að gjaldandi greiddi svo mikinn skatt í ríkissjóð, að næmi öllum tekjunum, vegna þess óeðlilega ákvæðis um, að ekki megi draga frá opinber gjöld.

Ég skal víkja að því, sem hv. frsm. sagði, að hann hefði tvisvar boðað mig á nefndarfund án þess að ég kæmi. Þetta er að vísu rétt, en ég hafði forföll í bæði skiptin. En ég held, að honum farist ekki að álasa öðrum fyrir vanrækslu á nefndarstörfum. Hann er form. n. og á að sjá um, að hún ræði málin og rannsaki vandlega. Ég held því fast fram, að frv. þetta, sem varðaði mestu um fjárhag þjóðarinnar, hafi aldrei verið lesið í gegn af n. í heild, og ber það nokkurn vott um, hvernig n. leysir starf sitt af hendi. (ÓTh: Ég hefi lesið hverja einustu grein í frv. Það er líka hægt að lesa víðar en á nefndarfundum).

Það er nýstárleg kenning, að skattalögin geti gefið „negativa“ útkomu fyrir ríkissjóðinn, minna en ekki neitt í tekjur. Er það meining hans að láta ríkissjóðinn greiða borgurunum öðru hvoru skatt?!

Ég ætla ekki að fara út í reikningsdæmi hv. frsm. Ég hefi ekki hagskýrslur um þau efni alstaðar af landinu. Geta má þess, að því fer fjarri hér í Reykjavík, að útsvörin séu þrefaldaður tekjuskatturinn, heldur eru þau litlu hærri.

Ekki var það trúlegt, að dráttarvextir mundu auka dráttinn á greiðslu skattsins. Því dýrara sem mönnum væri gert að draga greiðslur, því lengur mundu menn draga það Þetta er á móti heilbrigðri skynsemi, og getur því ekki einu sinni átt við sveitirnar, sem hv. þm. mun hafa hugsað um. Enda kemur næstum allur tekjuskatturinn úr bæjunum.

Hér í Reykjavík eiga menn sjálfir að skila skatti sínum til tollstjórans, og gera það venjulega ekki fyrr en þeir mega til. Dráttarvextir eru því alls ekki þýðingarlausir. Þetta getur verið talsvert hagsmunamál fyrir stór fyrirtæki. Lausn frá dráttarvöxtum þýðir þá sama sem vaxtalaust lán, sem þau geta haldið áfram að nota í sínum rekstri, meðan ríkissjóður þarf að greiða vexti af lánsfé.

Það sést bezt, þegar skattafrv. eru borin saman, hve hv. þm. Ísaf. hefir hugsað vandlegar frv. sitt en hv. 1. þm. N.-M. þetta frv., sem hann virðist heldur hafa kastað höndunum til eða ekki haft nóg vit á.

Ég hefi áður svarað því, að hækkun skattstigans, eins og frv. hv. þm. Ísaf. leggur til, getur ekki á neinn hátt gengið á sveitarfélög og bæi, því að útsvör má leggja á eftir efnum og ástæðum yfirleitt, og það, sem tekjuskatturinn og beinu skattarnir hækka eftir því frv., lækka aftur tollarnir. Hv. frsm. vildi afsaka það, að ekki væri breytt til með hlutafélög og farið með þau eins og einstaklinga. En ef litið er á þau hlutafélög, sem flest er af hér á landi, með tiltölulega fáum mönnum, en miklu hlutafé, t. d. 8–10 manna með allt að 2 millj. kr. höfuðstól, þá sést, að flestir hluthafarnir geta verið framkvæmdarstjórar og haft há laun, sem eru frádráttarhæf fyrir félagið. Í slíku félagi er vel hægt að fá 200–300 þús. kr. frádrátt frá árlegum tekjum, og það kemur árlega fyrir hjá einu stærsta félaginu. Hluthafarnir greiða þá að vísu skatt hver fyrir sig, en mikið lægri en félagið hefði átt að greiða. Aftur ef athuguð eru smáfélög með 30–40 og allt að 60 þús. kr. hlutafé, sem margir menn eiga, er auðsætt, að skatturinn getur komið allþungt niður á þeim. Og í landi eins og Íslandi, þar sem einstaklingar geta ekki valdið nema smæstu fyrirtækjum, er brýn nauðsyn á að styrkja sameignarfélög og smáhlutafélög til þess að koma upp varasjóðum, og því er meiri ástæða til að hlífa þeim á vaxtarskeiði sínu heldur en hinum, sem orðin eru fullþroska. Þetta er því réttara í frv. minni hl. mþn. heldur en í frv. meiri hl., því, sem hér liggur fyrir.

En æskilegt væri að fá að vita hjá hæstv. ráðherrum og hv. Framsóknarflokki í heild, hvort hann er í sambandi við hv. 1. þm. Skagf. um þá stefnu hans í skattamálum að hækka tekjuskattinn, en minnka eignarskattinn. Hvar ætti ágreiningur að koma fram um slík grundvallaratriði, ef ekki á Alþingi, þegar þessi mál eru til umræðu?