21.03.1930
Neðri deild: 59. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í B-deild Alþingistíðinda. (122)

1. mál, fjárlög 1931

Jóhann Jósefsson:

Það var smátill., sem ég hafði leyft mér að flytja hér, sem er prentuð á þskj. 302, um 500 kr. styrk til Skátasambands Íslands. Samskonar till. var samþ. á síðasta þingi. Bæði er nú það, að það er svo stutt síðan á það var minnzt og öllum hv. þm. er kunnugur sá holli félagsskapur, sem hér er um að ræða, skátafélagsskapurinn, og þess vegna er það, að ég álít ekki þörf að hafa hér um langa ræðu.

Innan skátafélagsskaparins eru ungu fólki innrættar þær beztu dyggðir, sem kunna að prýða mann eða konu, og ég tel víst, að þingið muni vilja veita Skátasambandinu þennan lítilvæga styrk, eins og síðasta þing verði, ti1 þess að þeir geti haldið áfram útbreiðslustarfsemi skátafélaganna.

Það hefir mikið verið talað hér við þessa umr., og ætla ég litlu við það að bæta; en hinsvegar er eðlilegt, að nokkuð mikið sé talað um svo margar till., og verð ég að vera nokkuð á sama máli eins og þeir, sem hafa látið í ljós óánægju yfir ýmsum fjárstyrkjum, sem hér eru bornir fram, einkum hinum ótalmörgu persónustyrkjum, sem alltaf fer fjölgandi. Það bætist alltaf í þann hóp manna, sem bæði til ritstarfa, sönglærdóms og ýmislegs annars sækja að ríkissjóði. Mér er; satt að segja, farið að þykja safnast allmikið að af þessari tegund, og þó að það væri að vísu bæði gott og skemmtilegt á ýmsan veg, að hægt væri að veita mönnum styrki til ýmiskonar lærdóms, sem þó ekki kemur að beinu gagni; þá má af öllu of mikið gera. Ég vildi taka undir það, sem hæstv. fjmrh. sagði hér snemma við umr. þessa frv., að þar sem veitt er fé af hálfu hins opinbera til þess að styrkja félög og sjóð, t. d. sjúkrasjóði og önnur styrktarfélög, þar sé gert að skyldu, að þessháttar sjóðir og félög gefi þinginu skýrslu, eða ríkisstj., ef það þykir betur henta. Það er í raun og veru ekki rétt að láta úti styrktarfé, án þess a. m. k. að fá einhverja vitneskju um það, hvernig farið er með þetta fé, þótt ekki sé höfð hönd í bagga með úthlutun þess: Ég held, að ég fari hér rétt með að það hafi verið hæstv. fjmrh., sem minntist á þetta snemma í umr. um fjárl.

Það var minnzt m. a. á styrkinn til Stórstúku Íslands, eða á till. þeirra hv. þm., sem vilja hækka styrk til hennar. Ég verð að segja það, að þótt ég sé ekki neinn bindindisfrömuður, þá er ég meðmæltur því, að Stórstúkan fái hækkaðan þennan styrk, og ekki er ég það síður eftir að maður hefir heyrt þær upplýsingar um vöxt vínnautnar í landinu, sem hv. frsm. gaf hér við umr. málsins. Það er í raun og veru ákaflega eftirtektarvert og alvarlegt mál, að tekjur ríkissjóðsins af víneinkasölunni skuli hafa tvöfaldazt á einu ári, þ. e. að þar sem þær voru ½ millj. kr. árið 1928, þá eru þær orðnar ein millj. kr. árið 1929.

Ég vil ekki fullyrða um allar þær orsakir, sem til þess leiða, að þessi tekjuliður ríkissjóðs vex svo hraðfara, en hitt vil ég segja, að það er a. m. k. full, ástæða til þess að gefa gaum að því, hversu vínnautnin virðist fara hraðfara vaxandi í landinu. Einn hv. þm., sem talaði um þetta, drap á það — ég held að það hafi verið hv. 4. þm. Reykv. — að í vissum herbúðum væri ánægja yfir því, að drykkjuskapur yxi hér á landi. Mér er ekki ljóst, hvaða herbúðir hv. þm. á við með orðum sínum, en í þeim herbúðum, sem honum standa næst — má segja að hann sé þar í fordyri —, þar hefir að vísu verið ritað um það, að vaxið hafi sála á vínunum, en ég geri ekki ráð fyrir, að hv. 4. þm. Reykv. hafi þurft að skilja það þannig, að þar væri lýst yfir beinlínis ánægju yfir drykkjuskap; ég vildi a. m. k. ekki leggja þann skilning í það, sem stjórnarblaðið flutti um málið, þótt það kannske mætti.

Þá er aðeins ein önnur till., sem ég ætla að minnast á. Það er till. samgmn. um fjárveitingu til flugferða. Ég skal ekki vera langorður þar um, en ég vildi aðeins benda á tvær höfuðástæður, sem hljóta að liggja að því hér á landi, að flugsamgöngur eru okkur ekki ónauðsynlegri heldur en öðrum þjóðum, nema fremur sé, en það er það, að samgöngur almennt á landi hér eru lakari heldur en í öðrum löndum álfunnar, og hitt annað, að skyggni er betra hér á landi heldur en víðasthvar annarsstaðar í Norðurálfunni, þar sem flogið er. Þessar tvær ástæður gera það að verkum, að þetta samgöngutæki, flugvélina; hljótum vér Íslendingar að taka í vora þjónustu, og, það er þegar komið svo langt, að þingið er farið að styrkja íslenzka menn til að læra flug. Þá geri ég ráð fyrir, að þeir, sem þar hafa verið að verki, þessir íslenzku menn, verði landinu tapaðir og gangi í þjónustu útlendinga. Heldur nú nokkur, að styrkur til að læra að fara með flugvélar hafi verið veittur með það fyrir augum, að Íslendingar eignuðust ekki sjálfir þessi samgöngutæki og hefðu menntað sína eigin menn til að fara með þau? Það er náttúrlega rétt og sjálfsagt, að Íslendingar eignist flugvélar, eins og önnur samgöngutæki, sem við höfum eignazt fram að þessu. Ég hefi þess vegna mikla tilhneigingu til þess að fylgja till. samgmn. að einhverju leyti, þótt ég verði að kannast við, að það eru allmikil útgjöld, sem þar er farið fram á; en hér er um svo mikið framfaramál að ræða og svo nauðsynlegt, að haldið sé áfram; bæði hvað snertir notkun flugvéla við síldveiðar og svo að haldið sé áfram þeirri byrjun á bættum samgöngum, sem við höfum séð, að vel eru mögulegar hér á landi um sumartímann með flugvélum.