01.03.1930
Neðri deild: 41. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1289 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)

19. mál, fræðslumálastjórn

Pétur Ottesen:

Ég hefi því miður ekki haft tíma til að athuga þetta frv. sem skyldi. Ég út af ákvæðunum í 6. og 7. gr. um að skipa sérstaka eftirlitsmenn með barnaskólum, bæði í kaupstöðum og sveitum, verð ég að segja, að mér finnst geta orkað töluverðs tvímælis, hvort þetta er heppilegasta leiðin. Mér fyndist t. d. vel mega komast af með það í sveitum, ef nauðsyn þykir á annað borð að setja fullkomnara eftirlit með fræðslu en nú er, að fela það viðkomandi sóknarpresti. Ef sú skýrsla, sem barnakennarar senda fræðslumálastjóra til álits og athugunar, dugir ekki og nauðsyn þykir að herða eftirlitið með þessum hlutum, fyndist mér það vel samrýmanlegt við önnur störf sveitapresta að fela þeim þessa umsjón. Eins og menn kannast við, hafa þeir átt drjúgan og góðan þátt áður fyrr í fræðslu barna í sveitum, og það er jafnframt kunnugt, að þeim ber skylda til að fara tvær húsvitjunarferðir á ári um sóknir sínar, til þess m. a. að líta eftir fræðslu barna. Ætla má, að þeir inni þessa skyldu af hendi svo sem lög standa til. Eftirlit með barnafræðslunni, að öðru leyti en því að búa börn undir fermingu, fer nú meira og minna fyrir ofan garð og neðan hjá þeim nú orðið, og stafar það sjálfsagt mikið af því, að þeir álíta, að fræðslu barna sé nú svo fyrir komið, að sér beri ekki skylda til að grípa fram í þau mál. Mér finnst vel samrýmanlegt við störf sveitapresta að fela þeim þetta eftirlit og láta þá gefa fræðslumálastjóra skýrslu um fræðslu og kennslu á hverjum stað. Með þessu mætti spara ríkissjóði nokkurn hluta af þeim kostnaði, sem hér er gert ráð fyrir. Hann er reiknaður 15 þús. kr. á ári samkv. þessu frv. Og þegar fram líða stundir, má gera ráð fyrir, að hann fari nokkuð fram úr þessu í samræmi við það, sem annars er venjulegt um kostnað við ýmsa starfsemi í þarfir þess opinbera.

Og ef þetta eftirlit í kaupstöðum verður fellt niður úr frv., eins. og hv. 1. þm. Reykv. hefir fært rök fyrir, að rétt sé að gera, þá finnst mér hægt að framkvæma eftirlitið í sveitum nokkurn veginn vel án þess að stofna til sérstaks kostnaðar.

Þá er um kostnað út af prófum. Ég mun fyrir mitt leyti greiða þeim till. atkv. mitt, sem fram hafa komið frá hv. 1. þm. Reykv. Ég sé ekki, að það sé rétt að láta þetta koma á sveitarsjóði. Það hvílir ærinn kostnaður á sveitarsjóðunum vegna þessara mála, og allir vita, að því harðar sem gengið er að borgurum landsins um skattgreiðslur til ríkissjóðs, því erfiðara eiga þeir með að greiða til bæjar- og sveitarsjóða. Og ég hygg, að allir séu sammála um, að töluvert hart sé gengið eftir sköttum til ríkissjóðs, þegar þeir nema eins og nú 15 millj. króna.

Það er ekki tími til að koma með brtt. um þessi efni nú við 2. umr., en þá er að hugsa til þess fyrir hina þriðju.