14.03.1930
Neðri deild: 53. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í C-deild Alþingistíðinda. (1266)
102. mál, hafnargerð á Dalvík
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Það er ekki ástæða til að fjölyrða um þetta mál, sízt af öllu eftir að atkv. hafa gengið um 3. mál á dagskrá.
Eins og sést á nál. á þskj. 237, þá hefir meiri hl. n. lagt til, að meðferð þessa máls verði hliðstæð því næsta á undan, þ. e. a. s. að framlag ríkissjóðs verði 1/3 af kostnaði og ábyrgð hans 1/3, gegn því, að hlutaðeigandi hérað leggi 1/3 fram þegar í byrjun eða sanni, að það geti lagt fram það fé án aðstoðar ríkissjóðs.
Þetta er þá sú niðurstaða, sem meiri hl. sjútvn. hefir komizt að, en hann hefir ekki komið fram með neinar till. um ábyrgð ríkissjóðs, þegar um lendingarbætur er að ræða.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa lengri formála um þetta mál, enda geri ég ráð fyrir, að það verði látið sæta sömu örlögum og hið næsta á undan.