05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í C-deild Alþingistíðinda. (1324)
104. mál, hafnargerð á Akranesi
Héðinn Valdimarsson:
Við jafnaðarmenn höfum hugsað okkur hafnarlögin öðruvísi afgr. en komið hefir fram hér. Við álítum eðlilegt, að þeir, sem fá ríkissjóðsstyrk og ábyrgð ríkissjóðs, leggi líka eitthvað fram sjálfir. En eins og frv. eru nú, er ekki um það að ræða. Við viljum samt ekki meina frv. að ná fram að ganga, a. m. k. til Ed., og greiðum þeim því atkv., eins og þau liggja fyrir núna.