05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í C-deild Alþingistíðinda. (1331)

104. mál, hafnargerð á Akranesi

Haraldur Guðmundsson:

Ég heyrði ekki þau lofsyrði, sem féllu í minn garð frá hv. 2. þm. G.-K. um störf mín í fjvn. Ég hugsa kannske, að hv. þm. hafi lagt mig til jafns við sjálfan sig, og ég get verið ánægður með þann vitnisburð frá honum. — Það varð að samkomulagi milli mín og hv. 3. þm. Reykv. og formanns fjvn., að fyrstu daga þingsins fengum við vegna kosningaanna undanþágu frá fundarsókn. Annars ætla ég ekki að metast við hv. þm. um, hvor okkar sé duglegri. Ég býst við, að hv. þm. þyki sinn fugl fagur, en ég ætla ekki að tala um, hvernig mér þykir minn.

Hv. þm. var að kenna dm. mannasiði og felldi þungan dóm yfir framkomu hv. þm. Ak., þegar hann gat ekki stillt sig um að grípa fram í fyrir hv. 2. þm. G.-K. En það mál er þannig vaxið, að hv. 2. þm. G.-K. notaði málfrelsi sitt hér í hv. d. til að gefa í skyn, að ekki væri hægt að byggja á ummælum hv. þm. Ak. í neinu tilliti. Ef hæstv. forseti (JörB) vissi, hvernig hann á að rækja sitt starf, mundi hann hafa sett ofan í við hv. 2. þm. G.-K.