25.02.1930
Neðri deild: 36. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 737 í C-deild Alþingistíðinda. (1357)
136. mál, jarðræktarlög
Jörundur Brynjólfsson:
Hv. flm. hefir nú gert grein fyrir því, hvers vegna hann hafi flutt frv. þetta.
Þegar jarðræktarlögin voru sett 1923, var það álit manna, að svo mikið starf væri falið Búnaðarfélagi Íslands, er allmikinn kostnað hefði í för með sér úr ríkissjóði, að ekki væri rétt fyrir löggjafarvaldið að láta sama skipulag um stjórn félagsins haldast framvegis.
Umr. frá þeim tíma sýna ljóslega, af hverju Alþingi vildi eiga þennan íhlutunarrétt. Ég ætla þó ekki að fara að lesa hér Alþt. frá þeim tíma, en læt mér nægja að benda á 2. gr. jarðræktarlaganna. Það eru lög nr. 43, 20. júní 1923. Þar stendur svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Búnaðarfélag Íslands hefir á hendi framkvæmd eða umsjón með framkvæmd þeirra ræktunarmála, sem lán eða styrkur er veittur til úr ríkissjóði, eða öðrum sjóði eða stofnun, sem er eign ríkisins, nema lög mæli öðruvísi fyrir sérstaklega. Meðan Búnaðarfélag Íslands fer með þau mál, sem því eru falin í lögum þessum, útnefnir atvinnumálaráðherra meiri hluta í stjórn þess, eftir tillögum landbúnaðarnefnda Alþingis“.
Þingið 1923 taldi sér nauðsynlegt að hafa íhlutun um störf Búnaðarfélagsins, og eins og lög mæla fyrir, er íhlutun þess svo háttað, að atvmrh. skipar tvo menn í stj. félagsins eftir till. landbn. Það er heldur ekki að undra, þó þingið vildi einhverju ráða um stjórn Búnaðarfélags Íslands. Það á ekki einungis að hafa á hendi undirbúning og umsjón með ýmiskonar jarðræktarframkvæmdum, heldur á það og að segja til um það, hvort í þær skuli ráðizt. Búnaðarfélagið hefir því í reyndinni úrslitavald um sum mikilsverð framkvæmdaratriði í jarðrækt og búnaði yfirleitt.
Ennfremur vil ég til frekari glöggvunar henda á, hve miklu fé félagið ræður yfir samkv. núgildandi fjárlögum.
Til Búnaðarfél. sjálfs . . . .
kr. 240 þús.
— tilrauna með grasfræ
— 10 —
— sandgræðslu ........
— 50 —
— áveitu ..............
— 5 —
Gjöld samkv. jarðræktarl.
— 375 —
Samtals kr. 680 þús.
Til skýringar má geta þess, að búizt er við, að einn liðurinn, gjöld samkv. jarðræktarlögunum, fari töluvert fram úr áætlun. Auk þess eru ýmsir aðrir liðir í 16. gr. fjárl., sem ég hefi ekki talið með.
Allir vita, að félagsmenn leggja nær ekkert af mörkum til félagsins sjálfir. Félagsskapurinn getur auðvitað verið góður fyrir því, en það rýrir ekki gildi ákvæðanna frá 1923 um íhlutun ríkisvaldsins. Ég skil satt að segja ekki í því, hvað vakir fyrir þeim, sem búast við, að Alþingi sleppi allri íhlutun um stj. Búnaðarfélags Íslands, en játi það þó hafa þessi mörgu þús. til umráða eftir sem áður. Mér þykir þetta enn furðulegra eftir að hv. flm. hefir lýst því yfir, að samvinnan sé ágæt í stj. Búnaðarfélagsins, og þessir tveir stjórnarmenn, sem skipaðir eru af ríkisvaldinu, hafi. staðið svo vel í stöðu sinni, að þeir muni vera áfram í stj. félagsins, þótt þessi breyt. verði. Þegar þetta er athugað, verður enn furðulegra, að hv. flm. skuli fara fram á svo mikla breytingu.
Ég geri lítið úr þeirri íhlutun, sem frv. heimilar ríkisstj., sem sé að velja annan endurskoðandann. Það er vitanlega haldlaust með öllu, þó að sá maður fari gegnum reikninga félagsins, úr því að hann ræður engu um, hvernig fénu er varið. Nefndin, sem kosin var í fyrra á Búnaðarþingi, hefir ekki gert sér ljóst, hve mikla breyt. hún fer fram á. Þessir nm. áttu tal við mþn. í landbúnaðarmálum um þetta atriði síðastl. haust. Bjuggust þeir við, að mþn. kæmi ef til vildi fram með till. um stjórnarfyrirkomulag Búnaðarfélagsins. Ég skal upplýsa það, að við skýrðum nm. frá því, að till. okkar gengju í gagnstæða átt við þetta frv. Með núverandi fyrirkomulagi á stj. Búnaðarfélagsins er alls ekki gripið inn í starfsemi Búnaðarþingsins, enda á ekki svo að vera. Ég álít, að svo góðir kraftar séu úti um land, að sjálfsagt sé að hafa skipulagið þannig, að fulltrúar úr hinum ýmsu héruðum geti komið saman og ráðið ráðum sínum um búnaðarmál. Ég tel, að ekki sé kominn tími til að leggja félagið undir stjórnarráðið. Þótt þessi félagsskapur sé orðinn nokkuð gamall, er störfum hans samt svo skammt komið, að ekki má gera róttækar breyt. á fyrirkomulagi hans að svo stöddu. Mér finnst leiðinlegt, að sú ósk skuli vera fram komin, að útiloka þingið frá íhlutun um stj. félagsins, ekki sízt vegna þess, að síðustu þing hafa yfirleitt verið greið í svörum við Búnaðarfél. um erindi þess. Verður að vísu að játa, að Alþingi hefir eigi ávallt séð sér fært að sinna þeim öllum, en það hefir þó orðið við þeim eftir beztu getu.
Við, sem greiðum atkv. gegn frv., óskum ekki, að Búnaðarfélagið verði lagt undir skrifstofu í stjórnarráðinu, heldur starfi áfram með sama hætti og nú fyrst um sinn.
Ég vil að lokum bera fram þá ósk, að hv. flm. afturkalli frv. sitt, en geri hann það ekki, vona ég, að hv. þdm. láti það ekki ganga í gegnum þessa hv. d.