05.03.1930
Neðri deild: 44. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í C-deild Alþingistíðinda. (1366)
136. mál, jarðræktarlög
Pétur Ottesen:
Það var eftir minni till., að umr. þessa máls var frestað. Sú till. var byggð á því, að ég taldi æskilegt, ef hæstv. atvmrh. vildi lýsa áliti sínu á málinu, þar sem hann bæði hefir á hendi stj. búnaðarmálanna og er einn í stj. Búnaðarfélags Íslands.