05.03.1930
Neðri deild: 44. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í C-deild Alþingistíðinda. (1382)

136. mál, jarðræktarlög

Magnús Guðmundsson:

Hv. þm. Mýr. spurði mig, til hvers lög væru, ef ekki til þess að fara eftir þeim. Jú, vissulega á að fara eftir lögunum. En voru þessi lög ekki til í fyrra? Nú hefir kaupið hækkað. Hvers vegna var þá ekki styrkurinn lækkaður í fyrra, úr því hann þykir of hár nú með hækkandi kaupi? Það er þetta ósamræmi, sem ég fæ ekki skilið, og enginn réttsýnn maður getur skilið á annan veg en að styrkurinn hafi verið of hár að undanförnu. Hæstv. atvmrh. talaði um, að ég ruglaði saman því, sem dagsverkið væri metið, og afkasti mannsins. Það gerði ég nú raunar ekki. En verður ekki verkið í túnasléttun dýrara vegna þess að kaupið hækkaði 1929 frá því, sem það áður var?