24.02.1930
Neðri deild: 35. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í C-deild Alþingistíðinda. (1402)

137. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Magnús Guðmundsson:

Ég ætla einungis að benda hv. þm. Ísaf. á það, að ef sá einn skattur telst beinn, sem ekki er yfirfæranlegur, þá held ég, að fáir skattar séu beinir. T. d. munu allir telja fasteignaskattinn beinan skatt, og það gerir hv. þm. Ísaf., en það er mikið spursmál, hvort hann er ekki alltaf yfirfæranlegur í raun og veru. T. d. er skattur af húsum venjulega yfirfærður, því leigutakar borga hann. Eignarskattur er það eiginlega líka. Af þessu má ráða, að ef á að hafa þá skilgreiningu, sem hv. þm. vill, þá kemst maður í hreinar ógöngur og þá verða því nær engir skattar beinir. Í þessu er því hinn mesti misskilningur hjá hv. þm. Ísaf. og útreikningar hans verða rangir.