26.02.1930
Neðri deild: 37. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í C-deild Alþingistíðinda. (1408)
138. mál, fasteignaskattur
Halldór Stefánsson:
Ég stend ekki upp til að mæla því í gegn, að mál þetta verði athugað og leyft að ganga til n. Ekki mun ég heldur mæla neitt sérstaklega móti frv. Ég tel einmitt líklegt, að ýms atriði þess gangi í rétta átt. Svo er t. d. um það að flokka fasteignirnar til skatts frekar en nú er gert og hafa skattinn á þeim flokkum misháan. Hitt er aftur álitamál, hve hár fasteignaskatturinn má vera. Ég skal t. d. benda á, að ef ákvæði 12. gr. eru notuð að fullu, þá verður skattur á óbyggðum byggingarlóðum 3%, eða hátt upp í það, sem taldir eru sæmilegir vextir af fasteign. Af byggðum lóðum yrði hann 2%, eða helmingur hæfilegra vaxta af fasteignum. Af jörðum yrði hann 1.6% og af húsum og þess háttar langlægst, ½%. Ég get hugsað mér, að ágreiningur geti orðið um það, hvort þetta er hæfilegur skattur eða ekki. Hygg ég, að mörgum þyki þetta of hátt.
Hitt er og álitamál, eins og hv. flm. gat um, hve mikill hluti fasteignaskattsins eigi að ganga til ríkisins og hve mikill til sveitarsjóða eða bæjarsjóða. Ef heimild 12. gr. er notuð að fullu, þá er það helmingur í hvorn stað. Fasteignir eru mjög eðlilegur tekjustofn sveitarfélaga, svo réttlátt væri, að þau nytu hans í fyllri mæli en ríkissjóður. Ég skal svo ekki rekja þetta frekar, enda vék hv. flm. að því.
Ef tekjur ríkissjóðs eftir þessum till. aukast um 600 þús. kr. á ári, þá rýrir það vitanlega skattþol sveitarfélaganna. Að vísu fæst nokkur hluti þeirrar hækkunar við það, að fasteignir hækka í verði, og er það eðlilegt. Ég vil benda á það í sambandi við þetta, að ef að því ráði verður horfið, sem við hv. 1. þm. Skagf. höfum gert till. um, að setja fastar reglur um útsvör, þá mun þurfa að nota fasteignirnar sem skattstofn að allverulegu leyti. Er því varhugavert að hækka gjöldin til ríkissjóðs, vegna þess að því minna verður eftir af þessum skattstofni fyrir sveitarfélögin.
Eins og ég gat um í upphafi, vil ég ekki mæla gegn því, að frv. verði athugað og leyft að ganga til n. En ég vildi þó benda á þessi atriði til athugunar.