26.02.1930
Neðri deild: 37. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í C-deild Alþingistíðinda. (1413)
140. mál, tollalög
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Ég sagði nýlega í þessari hv. d., að skattalöggjöf okkar væri handahófsverk. Þetta sýna tollalögin rækilega. Ekki verður séð, að neitt hafi verið á það litið, hversu tollarnir koma niður, hvort þeir lenda á brýnustu þurftarlaunum og verða til þess að auka dýrtíð og koma fjölda fólks á vonarvöl. Aðeins á eina hlið hefir verið litið: tekjuþörf ríkissjóðs, en ekkert á gjaldgetu þeirra, sem tollana greiða. Tollarnir eru því þyngstir á mörgum þeim vörutegundum, sem almenningur, lágtekjufólkið, kaupir mest af. Og ofan á þessa tolla hefir svo verið bætt svo eða svo mörgum %, eftir því sem þörfin fyrir tekjur hefir heimtað í hvert sinn. Þetta sést ljóslega, ef athuguð er saga kaffi- og sykurtollsins. Þegar sá tollur var fyrst settur, 1890, var hann ákveðinn 5 aurar af sykurpundi, en 10 aurar af kaffipundi.
Þetta hélzt um hríð, en síðan var tollurinn af bæði sykri og kaffi hækkaður um 50%, upp í 15 aura og 30 aura af kg., án þess að nokkuð væri athugað frekar, hversu réttlátt það væri að afla ríkissjóði tekna með þessum tolli, eða hvort ekki væru aðrar tekjuöflunarleiðir réttlátari og hagfelldari. Enn voru svo kaffitollur og kaffibætistollur hækkaðir um 100%, upp í 60 aura af kg. Og loks var bætt við bráðabirgðaverðtolli 1924, 25%, ofan á þessa marghækkuðu tolla. Eftir allar þessar hækkanir var svo komið, að kaffitollurinn var kominn upp í 1 kr. af hverju kg. af brenndu kaffi og 75 aura af óbrenndu. Sykurtollurinn var þá og kominn upp í 19 aura af hverju kg. Kaffitollurinn hafði því ferfaldazt og sykurtollurinn tvöfaldazt á þessum árum.
Árið 1928 var snörp deila hér í þingdeildinni um það, hvort afnema skyldi 25% gengisviðaukann á kaffi- og sykurtolli. Það var loks gert, en þrátt fyrir þá lækkun er kaffitollurinn ennþá fyllilega 3/5 við af innkaupsverði, eða 60%. Sykurtollurinn er enn hærri, hann er 66%, eða 1/3 af innkaupsverði. Af kaffibæti er tollurinn 85% af innkaupsverði. Til uppjafnaðar hækka þessir tollar vörurnar í verði um ca. 70%. Þar við bætist svo álagning verzlana. Þriðjungur til helmingur útsöluverðsins stafar af tollunum eingöngu. Ég veit, að margir hv. þm. kalla þessar vörur munaðarvörur og óþarfar. Að því er sykurinn snertir mótmæli ég þessu algerlega. Hann er í rauninni bein nauðsynjavara, vara, sem einkum er nauðsynleg þeim stéttum, sem búa við þau kjör að verða að sætta sig við fábreytni í matarhæfi. Og um kaffið er eiginlega sama að segja. Kaffinotkun er nú orðin svo almenn hjá öllum þorra landsmanna, að flestir telja kaffið nauðsynlegt og geta tæplega hugsað sér að vera án þess. En jafnvel þó að gengið væri inn á, að kaffið væri óþarfavara, þá nær engri átt að skattleggja þá, sem neyta þess, svo freklega sem hér er gert. Kaffi og sykur er nú hærra tollað en svo að segja allt annað, sem inn er flutt, hversu óþarft og skaðlegt sem það er. Ef menn athuga lögin um verðtoll, þá sést, að hæsti flokkur verðtollsins er ekki nema 30%. Það er helmingi lægra en kaffitollurinn, og það er lítið meira en þriðjungur af tolli kaffibætis, og það er minna en helmingur af sykurtollinum. Kampavínstollurinn er ekki helmingur móts við sykurtollinn.
Ég hygg, að menn verði að játa, að það sé ekki nokkur minnsta sanngirni að leggja svo á eins algenga nauðsynjavöru og sykurinn er, hvort sem borið er saman við beina skatta eða tolla af óhófsvörum, skartgripum og glingri. Ég tel það ekki geta orkað tvímælis, að það sé miklu sanngjarnara að afla ríkissjóði tekna á annan hátt, svo sem með því að hækka nokkuð skatta af hátekjum og arðberandi eignum og nota sér einkasölu á ýmsum vörutegundum fyrir ríkissjóð.
Ég sé ekki ástæðu til að láta fleiri orð fylgja frv., en mælist til, að því verði, að lokinni þessari umr., vísað til fjhn. til athugunar.