07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 822 í C-deild Alþingistíðinda. (1426)

172. mál, einkasala á tóbaki

Forseti (BSv):

Ég hafði hugsað mér, að eitthvað mætti nú grynna á umr. um þetta mál, og hygg, að flestir, sem áhuga hafa fyrir því, séu hér staddir, með því að hv. þdm. máttu eiga von á, að það gæti komið fyrir. Atkvgr. um málið gæti hinsvegar beðið, ef því væri að skipta. (SE: Menn áttu enga von á næturfundi). Hér mun ekki heldur verða háður næturfundur að þessu sinni. (ÓTh: Er ekki hægt að fá fundarhlé, meðan þdm. eru að finna þingskjöl og annað um þetta mál? Það átti engin von á því í kvöld). — Ég get orðið við þessari ósk hv. 2. þm. G.-K. og veiti fundarhlé í 10 mínútur.