07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í C-deild Alþingistíðinda. (1444)
172. mál, einkasala á tóbaki
Forseti (JörB):
Það er rétt, að ekki eru allir þm. nú í bænum, en mér finnst ekki rétt, að afgreiðsla mála sé undir því komin. Hv. þm. Dal. talaði um að láta ekki þetta góða málefni gjalda þess, að þm. eru ekki á fundi, en á því verða þeir, sem fjarverandi eru, að bera ábyrgð. Mér finnst það í mesta máta óhyggilegt að fresta atkvgr., þó þm. séu ekki á fundi og hafa engin forföll tjáð.