16.04.1930
Efri deild: 81. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í C-deild Alþingistíðinda. (1458)

172. mál, einkasala á tóbaki

Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):

Út af orðum hv. 3. landsk. vil ég geta þess, að ekki er rétt, að eigi hafi verið haldinn fundur í n. um málið, en hitt er rétt, að hvorki hann né hv. 6. landsk. voru á þeim fundi. Hefði sjálfsagt verið rétt að kveðja þá á fundinn, en haldið var, að þeir væru þá bundnir við annað. En hvort nál. það, sem hér liggur fyrir, er nál. meiri eða minni hl., skal ég ekki dæma um.