16.04.1930
Efri deild: 81. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í C-deild Alþingistíðinda. (1464)
172. mál, einkasala á tóbaki
Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):
Ég óska ekki eftir að koma hér fram með neinum framsögumannsrétti. En allir vita, að hér er aðeins um ágreining um stefnur að ræða, og því geta nefndarfundir ekki haft mikið að segja í slíku máli.
Frv. þetta er samið að tilhlutun mþn. í skattamálum og flutt í Nd. af formanni fjhn. þar, sem jafnframt er í mþn. Það liggur eigi fyrir í tölum, hve miklu innflutningur á tóbaki hefir numið tvö síðustu árin. En álitið er, að tekjur af heildsölu með þessa vöru nemi um 200 þús. kr. á ári. Að vísu er erfitt að sýna fram á þetta í tölum. En þegar litið er á tollana, verður að ætla, að innkaupsverðið sé allmikið. Held ég því, að eigi sé óvarlegt að áætla, að tóbakseinkasalan myndi gefa 180–200 þús. í ríkissjóð. Nú sem stendur veitir erfiðlega að uppfylla þarfir ríkissjóðs. Og þess er vert að geta, að þessi aðferð hefir verið notuð áður í tekjuaukaskyni, og þá reyndist hún svo vel, að upphafsmaður hennar, hv. 1. þm. Skagf., lét svo um mælt, að hún hefði uppfyllt allar kröfur, sem til hennar voru gerðar. Þetta stendur í Alþt. frá þeim tíma. Þetta er nægileg sönnun þess, að hér er um fastan og góðan tekjustofn að ræða. Annars er ekki ástæða til að vera að fjölyrða um málið, þar sem það hefir verið rætt af þjóð og þingi í mörg ár. Hér liggur fyrir að fá því fullsvarað, hvort Alþingi vill fara þá leið, að ríkið taki þennan tekjustofn í sína þjónustu. Að deila um stefnur hefir enga þýðingu. Ef Ed. er ósammála Nd. um þetta mál, þá fellir hún það, og við því er ekkert að segja.
Hér eru engin atriði, sem þarf að lagfæra. Baráttan er um stefnur. Læt ég því þessi orð nægja til að fylgja málinu úr hlaði.