03.03.1930
Neðri deild: 42. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í C-deild Alþingistíðinda. (1475)

190. mál, átta stunda vinnudagar í verksmiðjum

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Þetta frv. er borið fram eftir áskorun verkamannafélaga víðsvegar um landið, sérstaklega frá Siglufirði, og er aðeins miðað við síldarbræðslu- og fiskmjölsverksmiðjur. Frv. fer fram á að lögákveða vinnutíma þar ekki lengri en 8 tíma.

Eins og hv. þm. vita, er mjög óholl vinna við þessar verksmiðjur, og mestan eða allan hluta starfstíma þessara verksmiðja er unnið samfleytt allan sólarhringinn, svo að vinnutíminn er venjulega 12 tímar fyrir hvern mann.

Til þess að skýra, hvaða verksmiðja þetta frv. nær til, vil ég lesa upp útdrátt úr lista, sem ég hefi fengið frá verksmiðjustjórum:

Verksmiðja G. Johnsen. Starfsfólk: 24 karlmenn, 2 konur. „Hekla“, Vestmannaeyjum. Fiskmjöl. Starfsfólk: 20 karlmenn, 2 konur. G. J., Keflavík. Fiskmjöl. Starfsfólk: 12 karlmenn. Síldarbræðsluverksmiðjan í Krossanesi. Starfsfólk: 50 karlmenn. Síldarbræðsluverksmiðja Goos, Siglufirði. Starfsfólk: 50 karlmenn. Síldarbræðsluverksmiðja dr. Paul. Starfsfólk: 40 karlmenn. Hf. „Fiskimjöl“ Hafnarfirði. Starfsfólk 15 karlmenn. Hf. „Andvari“, Sólbakka. Síldarmjöl. Starfsfólk: 40 karlmenn. „Kveldúlfur“, Hesteyri. Síldarmjöl. Starfsfólk: 60 karlmenn. Dr. Paul, Norðfirði. Fiskimjöl. Starfsfólk: 20 karlmenn. Evanger, Raufarhöfn. Síldarmjöl. Starfsfólk: 30 karlmenn. Fiskimjölsverksmiðjan á Kletti í Reykjavík. Starfsfólk: 12 karlmenn.

Alls eru þetta 380 manns, og virðist full ástæða að hafa löggjöf um þetta efni, til þess að vernda heilsu þessa fólks. Ég leyfi mér að lesa upp kafla úr bréfi, sem mér var skrifað um þetta mál frá Siglufirði, sem upplýsir þetta nokkru nánar. Fyrst er skýrt frá því, að á Siglufirði sé vinnutími nokkuð óreglulegur í verksmiðjum þessum, og á undanförnum árum hafi ekki verið farið eins að á öllum stöðum. Þó hafi allar verksmiðjurnar það sameiginlegt að láta hvern verkamann vinna 10–12 tíma á sólarhring. Vil ég þá lesa kafla úr sjálfu bréfinu, með lyfi hæstv. forseta:

„Þó hefir verið brugðið aðeins út af þessari venju, gerðar tilraunir um það, á hvern hátt verksmiðjan mætti hagnast sem bezt á störfum verkamannsins. Það nýjasta á því sviði var notað s. l. sumar. Skal ég í fáum orðum lýsa því:

Verkamennirnir eru ráðnir upp á þau kjör að skila 60 vinnutímum á viku fyrir mánaðartaxtakaup og einnig að skuldbinda sig til að taka eftirvinnu, sem nemur 12 tímum á viku — gegn eftirvinnukaupi — eða vinna 12 tíma á sólarhring hverjum, en verksmiðjustjóri ákveður, hvenær og hvernig þessum 12 tímum er skilað. Framkvæmdin var þannig, að verkamennirnir voru látnir vinna tvisvar 6 tíma á sólarhring. Urðu þeir því að þola það að hafa tvo vinnudaga á sólarhring hverjum. Hvers vegna er þetta gert? Vegna þess, að verksmiðjueigendur er búnir að sjá það, fyrst og fremst, að með sex tíma vinnu í einu fái þeir verkamenn alltaf óþreytta, verksmiðjan getur alltaf gengið með fullum krafti allan sólarhringinn án þess að verkamenn gefist upp eða hafi ekki við vélunum. En hvaða áhrif hefir þetta á verkamennina? Þeir þurfa að ræsta sig mjög vandlega tvisvar á dag, þegar þeir koma úr þessari óþokkalegu og óhollu vinnu, svo að heimili þeirra ekki alveg gerspillist af ólofti og ódaun, sem fylgir þessu verki. Fer eðlilega langur tími í þetta. Lifnaðarhættir manna verða þannig, að þegar ekki er verið í verksmiðjunni, hafa þeir engan tíma til annars en sofa eða matast, — til þess að safna kröftum fyrir starf á nýjan leik. Útkoman er því þessi: Þeir vinna, borða, sofa og vinna, — lifa að öllu leyti eins og skynlausar skepnur — hafa aldrei neina tómstund til hvíldar og hressingar eða frístund til annara sinna þarfa. Þetta er á einn veg 6 stunda vinnudagur, en dagarnir eru bara helmingi fleiri, í stað þess, að verkamennirnir ættu að vera helmingi fleiri. Með 12 stunda vinnudegi er hægt að viðhafa 6 stunda vinnudag á kostnað verkamannanna, því að tala þeirra er sú sama, sem 12 stundir í einu væru unnar í einu. Hitt er sannanlegt, að með tvískiptum vöktum á sólarhring (12 og 12 tíma) geta vélarnar ekki unnið nema 20–22 tíma á sólarhring, vegna þess að um matartíma verður að stöðva vélarnar, en ákveðin tala manna þarf ávallt að vera við verkið í einu. Ein verksmiðjan breytti til þrjú síðustu árin, sem hún starfaði hér, verksmiðja hinna sameinuðu íslenzku verzlana. Verksmiðjustjórinn, B. Vestesen, skýrði Ivar Vennerström, ríkisþingmanninum sænska, svo frá því, er hann var hér á ferð, að sér gætist bezt að 8 stunda vinnudeginum, bæði vegna verkamannanna og sérstaklega vegna fyrirtækisins sjálfs. Frásögn hans er eitthvað á þessa leið:

Þessi verksmiðja er byggð með það fyrir augum, að 10 menn starfræki vélarnar í einu með tvískiptum vöktum. Þá getur verksmiðjan unnið úr 240 síldarmálum (150 1.) á sólarhring — eða 20–22 tímum, því að matarhlé dregst frá. Þar sem ekki er hægt að koma við fleiri mönnum í einu við vinnuna, er þýðingarlaust að láta vélarnar vinna hraðar heldur en verkamennirnir geta afkastað eða fylgt þeim eftir á svo löngum vinnudegi (12 tíma). En til þess að afkasta meiru þurfa þær að ganga hraðar. En þá þarf líka að skipta um menn ekki sjaldnar en á 8 stunda fresti. Til þess þarf verksmiðjan að bæta við sig 5 mönnum á hverja vakt, eða 10 mönnum í allt, m. ö. o. 50% vinnuafls. Þá verður vinnunni hagað þannig, að 10 menn vinna sína 8 tíma á sólarhring og vökurnar verða þá þrjár. Verksmiðjan fær 24 vinnutíma úr sólarhring fyrir vélarnar og þær voru látnar ganga hraðar en ella. Útkoman varð sú, að í stað 240 mála vinnslu á sólarhring með gamla laginu, komst verksmiðjan upp í 430 mála vinnslu á sólarhring. Verkamennirnir hagnast á þessu og geta lifað eins og menn, og verksmiðjan hagnast miklu meira fjárhagslega, þar sem 50% aukning verkamanna gefur af sér um 100% aukna framleiðslu.

Eitt atriði er enn ekki minnzt á, og það er óloftið, sem síldar- og fiskimjölsverksmiðjumenn verða að vinna við. Það er enginn efi á, að það er ekki á allra færi að halda heilsu til lengdar og anda stöðugt ofan í sig slíkri pest. Enda er þessi atvinna almennt álitin mjög heilsuspillandi. Það segir sig sjálft, að menn, sem keppast við vinnu, muni teyga óspart mjölrykugt og pestarþrungið loftið. Oft er svo mikið mjölryk frá verksmiðjunum, að sporrækt er á götum Siglufjarðar. Fólk getur alls ekki opnað glugga á húsum sínum, því að það er sama og hleypa ryki og ódaun inn í híbýlin.

Verksmiðjuiðnaður er svo stutt á veg kominn hér á landi, að ekki er undarlegt, þótt almenningur hafi ekki veitt því eftirtekt, hve margir hafa spillt heilsu sinni vegna vinnu í síldar- og fiskimjölsverksmiðjum“.

Ég hygg ég þurfi ekki að bæta miklu við þetta. Í þessu bréfi koma fram nægilegar upplýsingar og rök fyrir þessu máli. Ég leyfi mér að stinga upp á, að frv. verði að lokinni umr. látið ganga til allshn.