03.03.1930
Neðri deild: 42. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í C-deild Alþingistíðinda. (1479)

191. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Flm. (Magnús Jónsson):

* Til skýringar þessu litla frv., sem við hæstv. forseti berum fram, skal ég aðeins rifja upp, hvernig þær greinar í skipulagslögunum eru, sem farið er fram á að breyta. — 13. gr. er þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Eftir að skipulagsuppdráttur hefir verið lagður fram til sýnis fyrir almenning, má engin mannvirki gera, sem koma í bága við hann, nema stjórnarráðið hafi gert breytingar á honum“.

Hér er farið fram á þá breytingu, að einhver ákveðinn frestur sé settur, sem menn þurfi að bíða eftir að vita, hvort skipulagsuppdrátturinn verði staðfestur eða ekki.

Eins og 28. gr. er orðuð; er það alveg augljóst, að drátturinn getur orðið eins langur og vera vill, og þá má ekkert gera á því svæði e. t. v. um mjög langan tíma, þó að allt annað fyrirkomulag verði samþ. síðar. Þetta er ósanngjarnt gagnvart þeim, sem eiga verðmætar eignir. Virðist ekki ósanngjarnt að setja hér eitthvert tímatakmark. Hér er miðað við tvö ár. Sé ekki búið að staðfesta fyrirkomulagsáætlun innan tveggja ára, fellur hún úr gildi og þar með þetta bann á eigninni. Greinin er þannig orðuð, með leyfi hæstv. forseta:

„Allar skaðabætur, svo og þóknun til matsmanna, skulu greiðast úr bæjar- og hreppssjóði, nema um yfirmat sé að ræða. Þó verður eigi krafizt, að skaðabætur séu greiddar fyrr en skipulagsbreytingin kemur til framkvæmda, sem skaðabæturnar eru goldnar fyrir“.

Hér er farið fram á, að síðari málsgr. falli niður.

Í stjskr., 63. gr., er sagt, að engan megi skylda til að láta eign af hendi, nema almennings þörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli, og komi fullt verð fyrir.

Nú er augljóst, að eins og maður getur ekki sagt, að fullt verð komi fyrir, þótt eignin sé metin til einhvers verðs, eins verður það heldur ekki sagt, ef verðið fyrir spjöll á eignum verður ekki goldið fyrr en tugum ára eftir matið, þ. e. þegar skipulagsbreytingin fer fram, fárið er að leggja vegi, reisa hús o. s. frv. Þá getur svo farið, að sá, sem sviptur er eign, fái ekki neina greiðslu fyrir. Með þessu er höggið ákaflega nærri ákvæðum stjskr., og þar að auki er augljós hin mesta ósanngirni í þessu fyrirkomulagi. Um þetta ættu að gilda alveg sömu reglur og um annað eignarnám, að eignin sé metin og komi fullt verð fyrir þegar í stað, eða eins og um semur.

Við höfum flutt þetta frv. eftir tilmælum n., sem kosin var af Fasteignafélagi Reykjavíkur. Það er þegar komið fram, að þetta ákvæði í gildandi lögum fer mjög ónotalega í bága við ráðstöfunarrétt manna yfir eignum sínum.

Ég læt staðar numið um þetta að sinni, en legg til, að frv. verði vísað til allshn.