01.03.1930
Neðri deild: 40. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í C-deild Alþingistíðinda. (1491)

200. mál, Verslunar- og útvegsbanki Íslands

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég hélt, að það væri venja að leita álits flm., áður en mál eru tekin af dagskrá. Þótt það hafi nú ekki verið gert hér, vil ég lýsa yfir því, að við föllumst á, að málinu sé frestað nú, ef hæstv. forseti vill lofa því, að láta það koma fyrir fyrst mála næstk. mánudag.