06.03.1930
Neðri deild: 45. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í C-deild Alþingistíðinda. (1511)
212. mál, sundhöll í Reykjavík
Pétur Ottesen:
Ég vil benda hv. 1. þm. Skagf. á það, að þótt fjvn. skili bráðum áliti sínu, er langt frá því, að störfum hennar sé lokið. Fyrir henni liggur fjöldi erinda, sem upplýsingar vantar um og verða ekki afgreidd fyrr en til 3. umr. N. hefir því nóg með sinn tíma að gera við að undirbúa fjárlögin.
Ég vil í þessu sambandi minna á það, að á öndverðu þingi var máli um Skeiðaáveituna þröngvað upp á nefndina. Þessu máli hefir n. ennþá ekki getað sinnt. Ef n. nú á að fá nýtt mál til meðferðar, sem líka þarf upplýsinga um, er ég hræddur um, að nokkuð tefjist fyrir n. að afgr. fjárlögin. Það hefir líka verið fundið að því hér, að n. hafi ekki lokið svo fljótt störfum sem æskilegt væri. En hvað mun þá verða, ef á að fara að hlaða á hana óskyldum störfum?