14.04.1930
Neðri deild: 81. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í C-deild Alþingistíðinda. (1548)
338. mál, gelding hesta og nauta
Jörundur Brynjólfsson:
Þetta frv. gengur nú með flugvélarhraða gegnum hverja umr. af annari. Þótt málið sé sjálfsagt gott og gagnlegt og mikið mannúðarmál, þá finnst mér þó hæpið að samþ. frv. alveg óbreytt. En þess er varla kostur að bera fram brtt., nema þá skriflegar, þegar málið er drifið gegnum deildina á fáum mínútum. Orðalagið er að vísu ekki gott, hvorki á 1. né 2. gr., en þó læt ég það vera, ef ekkert væri verra. En það eru ákvæði 3. og 4. gr., sem gera samþykkt frv. sérstaklega ískyggilega. Í 3. gr. segir, að brot gegn lögum þessum varði sektum, 50–500 kr., nema þyngri refsing liggi við samkv. öðrum gildandi lögum. Nú sýnist mér, að mikið hljóti að vanta á það, að nægilega margir menn, sem hafa þekkingu til að gelda þau dýr, er um ræðir í 1. gr., geti haft þá leikni og þekkingu í meðferð svæfingarlyfja, sem heimtuð er í 2. gr. Eftir 3. gr. sýnist eins og þessir menn eigi að sæta sektum, og er þetta ákvæði enn hæpnara fyrir þá sök, að 4. gr. mælir svo fyrir, að lögin gangi í gildi 1. jan. 1931. Nú er svo nýbúið að taka upp þessa aðferð við geldingar, að ég efa stórlega, að sýslunefndunum verði kleift að útvega nægilega mörgum mönnum kennslu á þessu tímabili. Hvað sem líður ákvæðum þriggja fyrstu gr. frv., þá held ég, að það væri hyggilegt að breyta 4. gr. þannig, að lögin gangi ekki í gildi fyrr en 1. jan. 1932.
Það sakar minna heldur en frágangur frv. sjálfs, þótt rökstuðning þess fari öll í bága við ákvæðin. Það kemur til með að hverfa, þegar lögin verða prentuð í Stjórnartíðindum. En þó er meinlaust að benda á, að í grg. er talað um geldingu húsdýra almennt, hversu ómannúðleg hún hafi verið; og úr því þurfi að bæta. Ef síðan er litið á frv., eru þar ekki nefnd á nafn önnur húsdýr en naut og hestar, og er það óneitanlega ekki lítil þrenging á því sviði, sem frv. er markað í grg., og raunar einnig í fyrirsögninni.
Eftir þeim viðtökum, sem þetta frv. hefir fengið hér í kvöld, skil ég ekki annað en það sigli hraðbyri gegnum Alþingi. Til þess að koma í veg fyrir, að samþykkt þess verði til þess, að menn verði sektaðir í stórhópum, eingöngu af því að þeir höfðu ekki tíma til að fara eftir boðum laganna, mun ég bera fram brtt. við 4. gr., í þá átt, sem ég nefndi áðan. Einnig væri sérstök þörf á að koma með brtt. við fyrirsögn frv., svo að hún gefi ekki í skyn, að það sé um allt annað heldur en það er. Má vera, að einnig komi skrifleg brtt. um það atriði.