14.04.1930
Neðri deild: 81. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í C-deild Alþingistíðinda. (1556)

338. mál, gelding hesta og nauta

Jörundur Brynjólfsson:

Það er leiðinlegt, hvað hv. þm. V.-Sk. er orðsjúkur. Það kemur í ljós í hverju máli, sem frá hv. landbn. kemur, að ef fundið er með rökum að gerðum hennar, þá kastar hann hnútum að þeim, sem það gera. En hv. þm. hefði samt í þetta sinn getað sparað sér þetta hnútukast. Ég hefi ekkert verið að seilast til landbn. né gengið í skrokk á henni, þótt það hefði mátt. En slíkt má vitanlega alltaf gera, að finna að störfum n.; það játa ég. Mér fannst því, að ummæli hv. þm. væru óþarflega hvöss, en ég ætla þó ekki að kvarta, þótt hann sneri svona við ummælum mínum. Ég tók það fram í upphafi, að öllum væri ljóst, hvað við væri átt, þótt ekki væri það vel orðað. Ég treysti mér fljótlega til að orða frv. um, svo það væri bæði gleggra og nær íslenzku máli. Hv. þm. V.-Sk. skal ég til smekkbætis lesa fyrstu málsgr. grg. þeirrar, er fylgir frv. Hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Gelding húsdýra hefir löngum verið mjög ómannúðleg hér á landi. Þessi margra alda ósíður verður að leggjast niður sem allra fyrst fyrir fullt og allt, en það gerist ekki á stuttum tíma, nema með lagaákvæðum, þó vitanlegt sé, að nokkrir dýravinir eru þegar búnir að taka upp þá aðferð, sem frv. þetta stefnir að“.

Þarna er beinlínis verið að tala um að leggja niður gelding húsdýra. En um hvað er svo frv.? Um ekkert annað en gelding húsdýra. Hv. þm. V.-Sk. tók það samt svona illa upp, að ég sagði, að frv. væri ekki heppilega orðað.

Ég veit vel, að víðsvegar um landið kunna menn ekki að svæfa. Ég held því, að ekki veitti af einu ári til að kenna mönnum það. Ég veit að vísu, að læknar kunna þetta og einstaka menn kunna þetta, en almennt kunna menn það ekki, og það í stórum héruðum.

Viðvíkjandi sölu á svæfingarlyfi, sem um getur í 2. gr., þá veit ég það, að bannað er að selja öðrum en þeim, sem lært hafa að svæfa. En það þarf að tryggja, að þessir menn hafi næga þekkingu til að fara með lyfið, og í frv. er ekkert bann lagt við því, að þeir megi nota það til annars. Væri þó viðkunnanlegra og varlegra að hafa slíkt í frv., um það getur ekkert álitamál verið; það er svo sjálfsagt. Og þótt manni eins og hv. form. landbn. sé treystandi til að fara með slíkt lyf, þá er ekki öllum jafnvel treystandi til þess.