15.04.1930
Neðri deild: 83. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í C-deild Alþingistíðinda. (1585)
355. mál, túnyrkja í Nesjum í Hornafirði
Flm. (Þorleifur Jónsson):
Það munu nú vera meir en 3 vikur síðan frv. þetta kom fram, og þótt það hafi verið sett á dagskrá tvisvar sinnum eða svo, þá hefir það verið svo aftarlega, að það hefir aldrei orðið fyrir þeirri náð að komast til umr. Og þar sem komið er alveg að þingslitum, þykist ég sjá, að mál þetta nái ekki fram að ganga á þessu þingi.
Ég hafði hugsað mér í upphafi að flytja allítarlegt erindi um tilgang þessa frv., en þar sem búast má við, að hv. þdm. séu nú þreyttir orðnir eftir þá sennu, sem háð hefir verið nú tvær stundir um þetta stórmál, sem hér var á dagskrá síðast og sem verið var að fresta umr. á, þá mun ég stytta mál mitt og fara fljótt yfir sögu, enda er grg. frv. allrækileg og getur orðið þeim til skýringar, sem hana vilja lesa.
Það er öllum ljóst, sem til þekkja í Austur-Skaftafellssýslu, að upp frá Hornafirði, austan Hornafjarðarfljóts, er undirlendi allmikið og grösugt, sem nefnt er Nes eða Nesjasveit. En fyrir ofan sveitina er fjallgarður með dölum, smærri og stærri, og eru fjallendi þessi mjög gróðurlítil. Í sveitinni skiptist á hóllendi og þess á milli mýrlendi mikil, og er allt undirlendi vaxið grasi. Í Nesjasveit eru 24 jarðir og á þeim jörðum eru nú 30 búendur fyrir utan íbúana í Höfn, sem eru hátt á annað hundrað.
Þrátt fyrir það, þótt Nesjasveit sé yfirleitt grösug, þá eru þar þó ekki neinar sérlegar engjajarðir, því þó að undirlendið sé allt grasi gróið, þá er þó nokkur hluti af því mýrlendi, óhæft til slægna, bæði vegna bleytu, þýfis og sneggju. Þar að auki er það ókostur mikill, að svo að segja allar engjar eru þýfðar og ómögulegt að koma við heyvinnutækjum. Tún voru áður víðast þýfð, og hefir meginhluti jarðabótavinnunnar gengið til að slétta þau. Er því verki nú að mestu lokið og nýlega byrjað að færa túnin út, þó ekki enn nema á stöku stað. Þá kem ég að því, að vegna þess hvað afréttarlönd eru lítil, er sauðfé í Nesjum rýrt á haustin, og af því að engjahey eru mjög létt, þá verður að gefa sauðfé mikið á veturna, þó að mjög sé snjólétt að jafnaði. Þar á mýrlendinu er líka mjög kvillasamt. Ormaveiki hefir geisað þar með stuttu millibili á seinni árum og valdið afarmiklu tjóni. Og ef eitthvað ber út af með fóður eða tíðarfar, er ætíð hætt við megnum afföllum vegna ormaveikinnar. Eins og nú er komið, er mjög erfitt að halda sauðfé við á útheyi, og því síður bæta það. Af þessum ástæðum er því sauðfjárbúskapurinn orðinn afardýr, óviss og afnotarýr. Þar við má og bæta, að eftir því sem fólkshaldið verður dýrara og erfiðara og yfir höfuð allur búrekstur kostnaðarsamari, eftir því borgar sauðfjárrækt sig lakar og lakar á þessum stað, og ekki neitt viðlit að fjölga þeim bústofni.
Aftur á móti er héraðið miklu betur fallið til nautgriparæktar, enda er sumarbeit þar góð fyrir kýr. Menn finna því þörfina meir og meir að breyta um búskaparlag. Sveitin verður að taka upp kúabúskap, en til þess að sú breyt. geti orðið, þarf að leggja í stórfellda ræktun, er framkvæmd sé á tiltölulega stuttum tíma. Að vísu eru nokkrir byrjaðir að færa út tún, en eins og gerist og gengur, fer það hægt, þar sem hver potar sér, og yfirleitt lítil efni fyrir hendi til þess að hrinda af stað stórfelldum framkvæmdum. Ef allt er látið reka á reiðanum, tekur slík breyt. á búskaparháttum, sem þarna er þörf og ég hefi í huga, marga áratugi. (MG: Þarna kæmi þegnskylduvinnan að gagni). Ég hefi ekki haft neina sérlega tröllatrú á henni, og hefi heldur ekki búizt við, að framkvæmd hennar sé svo nærri, að stórverk yrðu gerð fram yfir það, sem unnið er nú. — Þessi ræktun, sem hér er um að ræða, mundi taka marga áratugi, ef ríkið hjálpaði ekki. En hér þyrfti að fjölga kúm á fáum árum, svo að hægt yrði að koma upp mjólkurbúi með líku sniði og gert hefir verið austanfjalls. Og því er þetta frv. flutt til þess, að bændur á þessu svæði geti á fáum árum, með öflugum félagssamtökum og töluverðum styrk úr ríkissjóði, komið breytingum á á skömmum tíma.
Það er gert ráð fyrir að rækta 300 hektara á ekki lengri tíma en 8 árum, og skal það fúslega játað, að hér er um mikið og stórt fyrirtæki að ræða. Það er ekki minna fyrirtæki en að byggja eina af þessum minni háttar höfnum, sem nú er á dagskrá að byggðar verði. Og það er ákveðinn sæmilegur styrkur til þeirra hlutfallslega eins og hér er farið fram á, og jafnframt gert ráð fyrir, að ríkið ábyrgist allt hitt. — Mér finnst alveg eins réttmætt, að lagt sé til svona stórfelldra jarðræktarfyrirtækja álíka styrkhæð, enda er ég þess fullviss, að það rentar sig ekki síður fyrir þjóðfélagið.
Ef Nesjasveit væri gert verulega vel til góða — við skulum segja að þar væri ræktað svona helmingur af ræktanlegu landi, eða um 1600 hektarar —, þá mundu býli geta ferfaldazt að tölu eða meira. Því það skal fúslega játað, að með frv. þessu vakir fyrir mér, að jörðum verði skipt í sundur og býlum fjölgi til stórra muna í sveitinni.
Ég get nú trúað, að sumir hv. þdm. kunni að snúast ekki sem bezt við þessum till. mínum, enda virðist ekki mikill áhugi hjá þeim að hlusta á mál mitt, þar sem margir eru horfnir úr deildinni og flestir stólar auðir. Get ég því búizt við, að einhver kunni að segja sem svo:
Hvað vilja þeir þarna í Hornafirði vera að fara fram á aukastyrk? Láti þeir sér nægja jarðræktarstyrkinn eins og hinir!
Þar til er að svara, að hér er um tilraun að ræða, breytingu á búnaðarháttum á stuttum tíma, og þessi breyt. krefur svo mikils fjárframlags til ræktunar, að það getur ekki gengið nema með öflugum samtökum, góðri stjórn og forgöngu kunnáttumanna í þessum greinum. Og svo er það líka, að eftir því sem fróðir menn hafa reiknað út, þá er sá styrkur, sem farið er fram á í frv., tæpum 1/5 hærri en jarðræktarstyrkurinn er eftir núgildandi lögum.
Ég hefi það skrifað hér á blað hjá mér, af manni í Búnaðarfélagi Íslands, hve mikið myndi samkv. jarðræktarlögunum verða veitt á einn hektara. Skiptist þetta þannig: Ræktun á 1 hektara telst 200 dagsverk; ef girt er nokkuð stórt stykki, má áætla girðingu ca. 30 dagsverk, framræslu um 70 dagsverk. Öll ræktun á ha. verður því um 300 dagsverk, og styrkurinn þá 300 kr.
Það, sem hér er farið fram á, er þá að aðeins 60 kr. hærri styrkur sé veittur á ha. en jarðræktarlögin gera ráð fyrir, því að ég ætlast auðvitað ekki til þess, að Jarðræktarfélagið fái annan styrk en nefndur er í frv. Svo að þetta eru engin ósköp; það verða þá um 18000 kr., sem ríkið mundi leggja til þessara merkilegu tilrauna, fram yfir það, sem það annars myndi gera samkv. jarðræktarlögunum.
Auk ræktunar myndi náttúrlega koma til greina ýms kostnaður annar í kjölfar þessa, t. d. gripahúsabyggingar, kostnaður við mjólkursamlag o. fl. Og þótt það eigi að borga sig síðar og smátt og smátt, þá þarf mikið fé að leggja fram í byrjun.
Það má segja, að ekkert hafi nýlega komið fyrir þessu líkt, en ég vil þó minna á það, að ríkissjóður hefir tekið að sér að láta gera tvö eða fleiri áveitufyrirtæki, sem ég held, að í raun og veru liggi alveg á ríkinu. Ég veit ekki betur en að ríkið hafi alveg tekið að sér Skeiðaáveituna, og Flóaáveitan hvílir víst mikið til á ríkinu, svo að það væri ekki að undra, þótt ríkið styrkti eina túnræktartilraun á þann hátt, sem frv. fer fram á, bæði með allríflegum styrk og heimild til lánveitingar úr Búnaðarbankanum.
Það er gert að skilyrði, að hlutaðeigendur leggi fram sjálfir jafnóðum hluta, og er það skilyrði fyrir því, ai5 ríkisstyrkurinn fáist.
Eftir því sem frv. mælir fyrir, er miðað við, að á öllum jörðum í sveitinni verði ræktaðir 300 ha. alls. Er búizt við, að það fari nokkuð eftir stærð jarðanna, hvað mikið yrði ákveðið að ræktað yrði á hverju býli; á þeim, sem hafa mikið land, ætti að rækta meira, enda meiri kraftar til ræktunar og framlags.
Ætlazt er til að stofna ræktunarfélag með samvinnusniði, sem hefði það hlutverk með höndum að annast um að koma þessu í framkvæmd; hefði það sínar samþykktir, sem heyrðu undir staðfestingu atvmrh. Ætlazt ég til, að allar jarðir taki þátt í ræktun, og í samþykkt sé ákveðið, hve mikið land sé ætlað til ræktunar á hverju býli.
Það er ætlazt til, að ræktunin sé félagsvinna. Unnið sé í félagi að skurðgerð og jörð brotin með dráttarvél, og ef til vill með hestaverkfærum, en allt sé þetta skipulagt af Búnaðarfélagi Íslands, og það hafi einnig eftirlit með ræktuninni og meti kostnað við hana, og miðast ræktunarstyrkurinn við það mat.
Það einasta, sem ég hefi óttazt í þessu máli, er það, hvort bændurnir myndu komast fram úr svona fyrirtæki fjárhagslega. Því að þótt landið sé talið auðræktað, er mikið fé, sem þarf til að rækta 300 ha. Og það væri alls ekki gerlegt, ef auknar afurðir yrðu ekki til að bera uppi kostnaðinn.
Ég vil nú gera ráð fyrir, að menn héldu áfram með sauðfé að einhverju leyti; það yrði vissari eign en nú, þegar hægt væri að fóðra það á kjarnfóðri, ræktaðri töðu. Svo má vona, að upp gæti risið innan skamms samlagsbú, með ca. 200 kúm. Og ef reiknað er með meðalnyt, samkv. skýrslum nautgriparæktunarfélaganna, 2400 lítrar á kú, yrði árleg mjólkurframleiðsla til sölu 480 þús. lítrar á ári, og ef maður reiknar nettóverð 18 aura líter, yrði hin aukna framleiðsla 86400 kr. Af því yrði að greiða vexti og afborganir af ræktunarlánum, byggingum á gripahúsum o. s. frv.
En þar sem það virðist heldur daufur áhugi fyrir málinu hér í hv. þd., þá ætla ég ekki að þreyta þá fáu menn, sem hér sitja, með því að halda lengri ræðu um þetta mál. Ég hafði vonazt eftir, þegar ég bar frv. fram, að það yrði svo snemma á dagskrá, að það mætti ganga til landbn. og yrði athugað þar rækilega, og hún gæti borið málið undir Búnaðarfélag Íslands o. s. frv. En þar sem svo er áliðið þings, býst ég alls ekki við, að það gangi fram á þessu þingi. Ég vil aðeins mælast til þess við hv. d., að hún leyfi málinu að ganga til 2. umr. Til landbn. hefði það átt að fara, en ég býst ekki við, að hún hafi tíma til að athuga það, og verða það forlög allmargra mála á þessu þingi, að þau dagar uppi, en ég vona, að þó svo fari um þetta mál, þá rísi það upp aftur síðar.