25.03.1930
Neðri deild: 62. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (163)

1. mál, fjárlög 1931

Magnús Torfason:

Hvat ek veit, hvort mér aldurhnignum manninum sé hent að láta mig í þá orrahríð, sem hér er háð, og þá því síður, sem utanþingsmönnum er brigslað um fals og þeir nefndir óþokkar hér á þingi. Að ég samt tek nú til máls er af því, að mig hefir lengi langað til að gera nokkra grein fyrir afstöðu minni til sambandssamningsins, sem gerður var 1918 og þess, sem farið hefir síðan fram í því máli.

Eins og menn vita, þá var ég á móti sambandslögunum, ásamt hæstv. forseta þessarar d. og ýmsum öðrum góðum mönnum. Aðalástæða mín fyrir því, að ég var á móti sambandsl. var sú, að með þeim var Dönum, gefið algert jafnrétti hér á landi. Það gekk jafnvel svo langt, að Danir áttu að eignast fullkominn kosningarrétt hér alveg eins og Íslendingar sjálfir. Þegar þeir hefðu verið eitt ár á Íslandi, áttu þeir að öðlazt kosningarrétt. Ég leit svo á, og lít svo á ennþá, að ákvæði eins og þetta gætu tæplega samrýmst því, að við værum talin sjálfstæð og fullvalda þjóð. Hinsvegar geri ég minna úr þeirri hættu, sem okkur hefði getað stafað af þessu. Í því sambandi má minna á sögu Dana. Þeir eru heimakærir og eru ekki sérlega ríkir af þeirra hæfileikum, sem þarf til þess að koma ár sinni fyrir borð í öðrum löndum. Það hafa þeir sýnt hér á landi. Árið 1918 var svo komið fyrir þeim hér á landi, að þeir höfðu misst að mestu leyti eða algerlega þau tök, sem þeir höfðu tekið að erfðum á verzlun landsins, og voru leifar af gömlu einokunarverzluninni. Aðeins fáir Danir settust að hér á landi, og var það full og skýr sönnun fyrir því, að Danir sem stjórnmálamenn hugsuðu ekki til yfirráða hér. T. d. var hér fyrir nokkru stórt danskt fyrirtæki, en Danir hættu við það fyrir tiltölulega lítilfjörlega skuld. Það voru alls ekki meira en 300 þús. kr., sem það vantaði til þess að geta borgað hverjum sitt. Það var því auðséð, að Danir höfðu engan hug á að halda slíkri stofnun áfram, en það er kunnugt, að útlendar þjóðir nota þessháttar stofnanir oftast til þess að ná föstum tökum á löndunum.

Því ber ekki að neita, að draga vildu menn úr þessu jafnrétti; en ekki með því að breyta sambandsl., heldur með sérstökum ákvæðum í stjskr. landsins. Ég leit svo á, að hér væri ekki rétt að farið, sérstaklega þar sem var að ræða um samninga ríkja á milli, og það voru fleiri en ég, sem litu svo á. Þegar svo till. um 5 ára búsetuskilyrði hér á landi, til þess að menn öðluðust kosningarrétt, var borin fram, sem ég vitanlega fylgdi og samþ., þá sagði forsrh. af sér. En ekki nóg með það, að hann segði af sér, þegar stjskr. var samþ. með þessu ákvæði, heldur vildi hann, forsrh., ekki skrifa undir hana, svo að Pétur Jónsson, sem þá var fjmrh., skrifaði nafn sitt undir hana. Ég áleit, að svona aðferð gæti ekki góðu stýrt, en gæti vel orðið til þess að ýfa upp gamlar væringar milli sambandsþjóðanna.

Nú hafa Danir ekki gert sig líklega til að vinna hér land síðan sambandsl. komu, og er því sýnt, að við þurfum ekkert að óttast úr þeirri átt. Ef Danir ætluðu sér nokkuð slíkt, væru þeir löngu byrjaðir á að gera ráðstafanir til þess. En það hafa þeir ekki gert, þvert á móti lítur út fyrir, að þeir álíti, að þeir eigi ekkert að gera til þess.

Þetta er líka mjög skiljanlegt. Eins og við vitum, fengu Danir nokkurn landskika frá Þjóðverjum eftir Norðurálfuófriðinn. Þjóðverjar höfðu síðar beitt bæði fé og ýmsum brögðum til að koma þar ár sinni fyrir borð og reynt að fjölga þar þýzkum mönnum. Danir eru þar minni máttar og vildu því fegnir losna við þá ásókn. Þeir vita þannig, hvar skórinn kreppir að. Það má því öllum vera ljóst, að þeim héldist aldrei uppi að bæla okkur undir sig á neinn hátt, á sama tíma og þeir eru að verja sitt land fyrir ágengni annarar þjóðar.

Við lifum því í fullum friði við þessa sambandsþjóð okkar og getum notað alla krafta okkar til að efla sjálfstæði okkar inn á við. Hitt endurtek ég, að þetta jafnréttisákvæði er afarleiðinlegt, og væri óskandi, að hægt væri að fá það numið úr sambandsl., og það sem fyrst. Ég er tilbúinn að fylgja því. En því yrði vitanlega aðeins framgengt með lagi og góðri samvinnu.

Hv. þm. Dal. minntist nokkuð á grein, sem hæstv. dómsmrh. skrifaði um samband þjóðanna. Ég ætla mér ekki að fara að verja þá grein. Hæstv. ráðh. er sannarlega maður til þess sjálfur. En ég get tekið undir það, að uppistaðan í þeirri grein sé alveg keiprétt, og því fremur get ég tekið undir það, sem ég lýsti yfir því sem minni skoðun á stjórnmálafundi á Skeggjastöðum í sumar, að við yrðum að muna eftir því, að við erum sjálfstætt ríki, og við yrðum að skoða Dani og fara með þá sem hvert annað erlent ríki. Okkur hæfði ekki að gera annað, því að annars höguðum við. okkur eins og við værum í gamla sambandinu við Dani. Þess vegna yrðu öll viðskipti okkar við Dani að fara fram öðruvísi hér eftir en hingað til, við yrðum að ráða þeim málum, sem við þættumst þurfa að sækja í hendur þeirra, og við yrðum að sækja fast rétt okkar í hverju máli fyrir sig. Með því móti gætum við á þessu tímabili, þangað til við getum sagt upp sambandslagasamningnum, unnið talsvert á, en með hinu mótinu alls ekki. Það er ekki aðeins vegna aðstöðu okkar gagnvart Dönum, að ég er á þessari skoðun, heldur vegna aðstöðu okkar til erlendra þjóða yfirleitt, sérstaklega þó Norðurlandaþjóðanna. Ég lít svo á, að fyrir okkur, þetta litla og nýja ríki, sé lífsskilyrði, að við getum unnið okkur vináttu og virðingu frændþjóðanna. Við erum áreiðanlega bezt farnir, að það tækist. En auk þessara almennu raka verðum við að gá að því, að við erum í meiri peningasveltu heldur en nokkur önnur af menningarþjóðunum. Við eigum svo ákaflega margt og mikið ógert, og við erum svo fáir. Mér er nær að halda, að sú skoðun eins af hinum gömlu og góðu sjálfstæðismönnum sé rétt, að við verðum að nota allt það lánstraust, sem við getum fengið hjá öðrum þjóðum, til þess að sækja fram. Hitt er annað mál, að við verðum að verja vel því fé, sem okkur er trúað fyrir. Við verðum með því að styrkja atvinnuvegina, svo þeir geti staðið straum af lánunum.

Einn af þeim mönnum, sem skrifuðu undir sambandsl. skilyrðislaust, var hv. þm. Dal., enda var hann þá í ráðherrasæti. Meðan hann var ráðh. fann ég aldrei annað en hann væri mjög ánægður með sambandsl. En þá fyrst, er hann var oltinn úr ráðherrastóli, þegar hann var orðinn liðlaus og hafði framið þann verknað, að hann var alveg óhæfur til að vera foringi Ísl. út á við, þá fyrst fór hann að prjóna. Mér kom það nú reyndar ekkert á óvart, því mér hefir jafnan fundizt þessi hv. þm. vera mestur í málinu. Hefir jafnan orðið minna úr hjá honum, þegar hann hefir fengið völdin og aðstöðu til að geta gert eitthvað. Þess vegna hefi ég ekki lagt mikið upp úr þessari baráttu hans; hefi látið hana hlutlausa. Hún gat að minnsta kosti ekkert skaðað, og það því síður eftir að maðurinn var orðinn eins einangraður á stjórnmálasviðinu, sem hann var. Svo var það á þinginu 1927, að hann varð svo heppinn að bera fram till., sem samþ. var hér einum rómi. Raunar var það ekki neitt kraftaverk, því það er líklega enginn sá Íslendingur til, sem ekki er reiðubúinn að segja upp sambandslagasamningnum, því hvernig sem á málið er litið, stæðum við ekki að neinu leyti ver að vígi eftir að hafa sagt upp samningnum, heldur þvert á móti. Ég skal ekki fara langt út í þessa sálma, en jafnvel þó semja ætti við Dani að nýju, væri blátt áfram herbragð að segja upp samningnum.

Síðan vann hv. þm. Dal. að þessu máli, og honum tókst að fá í lið með sér Íhaldsflokkinn gamla; flokk þeirra manna, sem yfirleitt hafa verið deigastir í sjálfstæðisbaráttu vorri. Ég skal unna hv. þm. þess sannmælis, að þetta var töluvert afreksverk, og tókst honum prýðilega að leysa það af hendi. Svona af þingmannlegum brögðum var þetta beinlínis listabragð hjá honum. En svo kemur nú það leiðinlega. Þegar þessi nýi flokkur var stofnaður, kom fram gamla veilan hjá hv. þm. Dal. og hv. Íhaldsflokki. Nýja flokknum var valið nafn, sem alls ekki átti við. Sjálfstæðisnafnið er forngripur, fagur og dýr forngripur, eins og heimastjórnarnafnið. Það nafn átti ekki við eftir að stj. var komin inn í landið, og eins á sjálfstæðisflokksheitið ekki við nema hjá þjóðum, sem seldar eru undir aðrar þjóðir. Af því við erum sjálfstætt ríki á það alls ekki við hjá okkur. Það kemur fram reginmisskilningur á aðstöðu okkar hjá þeim mönnum, sem velja flokki sínum þetta nafn nú. Það er eins og þeir lifi langt aftur í tímanum, lifi enn undir gamla þrældómsokinu. Ég held þá minni, að þeir lifi í tímanum fyrir 1918, og þess vegna hafi þeir tekið upp þetta gamla og göfuga nafn, sem sízt á við nú.

Þegar menn mynda nýjan stjórnmálaflokk, er það eitt af því, sem mikið veltur á, hvernig tekst að velja honum nafn. Nafnið á að lýsa þeim viðfangsefnum, sem flokkurinn ætlar að fást við, og því takmarki, sem hann ætlar að keppa að. Slíkt nafn hefir ekki núv. andstöðuflokkur stj. valið sér. Þegar ég frétti, hvaða nafn hann vildi bera, fór ég að hugsa um hvaða nafn flokkur sem þessi ætti að hafa. Og mér datt í hug margsinnis betra nafn handa honum, sem innibindur allt það, sem hann segist vilja berjast fyrir. Ég ætla að geyma það nafn í brjósti mér, þangað til þörf er á því. En það verður áreiðanlega ekki fyrri en svo nærri er komið lokasennunni við Dani, að aðstaðati til hennar fer að skipta mönnum í flokka. Það er ekki orðið ennþá. Það geta vitanlega ekki skipt mönnum í flokka önnur mál en þau, sem skiptar skoðanir eru um. Ekkert slíkt mál hefir verið lagt fyrir þingið ennþá. Allir tjáðu sig sammála um að segja upp samningnum við Dani. Sjálfstæðisflokks-nafnið er algerlega ótímabært nú, og þess vegna á ég svo bágt með að taka þetta gamla og góða flokksheiti mér í munn.

Hv. þm. Dal. kom dálítið að bankamálinu í ræðu sinni. Finnst mér það hefði þó mátt liggja milli hluta við þessa umr. Ég sé ekki, að það sé vel fallið til að notast við eldhúsdagsumr., því yfirleitt er ekki venja að bítast út af málum, sem hlotið hafa einróma samþykki. Hélt ég líka, að hv. stjórnarandstæðingar þættust hafa nógan annan eldivið. Og ég verð að líta svo á, að hv. þm. Dal. hefði manna sízt átt að verða til þess að blanda bankamálinu inn í umr., og allra sízt á þann hátt, sem hann gerði það. Það eru til þær hliðar á því máli, sem lítið hefir verið rætt um á þinginu, hliðar, sem sjálfsagt fer betur á, að sem minnst sé talað um, og Framsóknarflokkurinn hefir leitt hjá sér, þótt hv. þm. Dal. og fleiri íhaldsþm. hafi ekki getað setið á sér að skjóta ýmsum hnútum til okkar framsóknarmanna í þeim samböndum.

Ég get viðurkennt það, að ég var einn af þeim fyrstu, sem nokkra sérstöðu höfðu til bankamálsins, eins og kom líka berlega í ljós við síðustu umr. þess hér í hv. d. En vegna þess, hve rangt hefir verið sagt frá afskiptum þeirra af málinu, sem höfðu svipaða skoðun og ég, er rétt að rifja þetta dálítið upp. Fyrst er þá frá því að segja, að ég veit ekki til, að nokkrum framsóknarmanni hafi komið til hugar að skera Íslandsbanka niður við trog, án þess einhver stofnun kæmi í hans stað, sem tekið gæti við viðskiptum hans. Fyrir mitt leyti get ég sagt það, að það var mín fasta skoðun, þegar fyrir lokaða næturfundinn, að það ætti að stofna nýjan banka. Hitt er annað mál, að dálítið voru skiptar skoðanir um aðferðina. Ég áleit t. d. heppilegast að láta frv. um skiptameðferðina ganga í gegnum þingið og að menn væru settir til að taka að sér fjárreiður bankans. Og ég hygg, að útkoman hefði orðið betri fyrir ríkissjóð, ef sú leið hefði verið farin.

En meðan þetta mál var til meðferðar hér í þinginu, voru fleiri þræðir, sem til greina komu. Sérstaklega var það einn þráður, sem miklu hefir valdið um það, að þingi og stj. tókst þó ekki betur né skjótar að ráða málinu til lykta, heldur en raun varð á. Frá upphafi ætlaði Íhaldsflokkurinn sér þá dul, að fella stj. á þessu máli. Ég segi þetta af því að ég veit það. Þessi hugsun hefir aldrei yfirgefið hv. andstæðinga stj. síðan bankinn lokaði. (PO: Þetta er nú bara vísvitandi lýgi). Þetta er ekki í fyrsta sinni, sem hv. þm. Borgf. grípur fram í fyrir mér á ókurteisan hátt. Hann hefir víst öfundað hv. Ed. af því að hafa kerlingarnöldrið sitt, og nú er hann sjálfur að verða kerlingarnöldur þessarar hv. d. Við vitum að kerlingar eru oft fremur óþolnar, þeim er ekki mikil þolinmæði gefin. Það er heldur ekki nýtt þó hv. þm. Borgf. sé fremur þollítill. Hann þolir ekki að vera annarsstaðar en í meiri hl., og af þeirri ástæðu fór hann í Íhaldsflokkinn. Þess vegna líður honum ekki vel nú orðið, enda eru kerlingardrættirnir farnir að sjást á andlitinu á honum. En orðum eins og þeim, sem hann kastaði til mín nú, dettur mér ekki í hug að svara.

Hugsunin um að fella stj. hefir verið rauði þráðurinn í sögu bankamálsins, að því er snertir framkomu íhaldsmanna. Jafnvel hv. þm. Dal., sem mesta skyldu hafði til að fylgja þessu máli af alvöru, hefir ekki getað losað sig við þessa hugsun. Hér á Alþingi hefir hann hvað eftir annað verið að ympra á stjórnarskiptum, og síðast í ræðu sinni í dag var hann að lýsa eftir lausnarbeiðni frá hæstv. forsrh. Þetta er heldur leiðinlegt hans vegna, en ég skil hann mjög vel. Síðan Framsókn tók við völdunum, hefir þessi hv. þm. lifað og hrærst í þeirri hugsun, að steypa stj. Hann hefir ekki séð annað. Það er því alls ekki tilhæfulaust, þó ég kasti því fram, að hv. Íhaldsflokkur hafi ætlað sér að fella stj. á bankamálinu, enda bendir margt á viðleitni hans til þess. Það er byrjað á því að blása upp þessa lokun Íslandsbanka, sem sérstaka þjóðarógæfu og látið sem allt muni fara í kalda kol. Ég vil nú gjarna trúa því, að þessir hv. þm. hafi trúað þessu, og skal ganga út frá því, að þeir hafi gert það. En hver er svo raunin? Fullar 8 vikur eru nú liðnar síðan bankanum var lokað. Enginn hefir enn orðið var við þá stóru þjóðarógæfu. Enginn orðið var við að allt væri í kalda koli! Enginn verður var við annað en að atvinnu- og verzlunarlífið gangi sínar götur eftir sem áður. Nú getur hv. þm. hugsað sér, að ef einhverjir eru svo góðir að flytja slík og önnur ummæli til útlanda, hver áhrif slíkt hefði getað haft þar. Það sér hver maður, að slík ummæli gátu einmitt þar orðið hættuleg. En þau gátu líka orðið hættuleg innanlands. Slíkar staðhæfingar hlutu að vinna að því að veikja traustið á þeirri einu peningastofnun, sem við áttum eftir. Slík ummæli gátu hæglega valdið peningaflótta. Og ég vil ekki neita því, að nokkuð meira hafi verið sent út af peningum næstu vikur eftir að Íslandsbanki lokaði en eðlilegt var. En ef brögð hefðu orðið að því, að menn sendu peninga sína úr landi, þá var það orðin þjóðarógæfa. Og það gat orðið. Mér er kunnugt um það, að hér var fólk, sem farið var að gleiðgosast yfir því, að peningar væru fluttir út úr landinu. Hver tilgangurinn muni hafa verið með þessu, skal ég ekki um segja. En ef gera skal sér eðlilega hugmynd um það, þá hefði það helzt verið þetta: að þvinga þjóðina til að taka að sér bankann með öllum skyldum og sköttum. Þetta, að vera að ýta undir peningaflótta og vera að hafa í hávaða, hvað tjónið sé mikið, það er erfitt að skilja, að þeir menn, sem það gerðu, hafi vitað, hvað þeir voru að gera. Og það er því erfiðara, sem ýmsir þeir menn, sem að þessum hávaða stóðu, áttu að vera því kunnugir, og hafa ábyggilega vitað það, að allsstaðar í öðrum löndum er reynt, þegar bankahrun ber að, bæði af stj. og bönkum, að gera sem minnst úr tjóninu. Jafnvel í þeim voldugu Bandaríkjum var reynt að gera sem minnst úr tjóninu, sem varð af kauphallarhruninu þar á síðastliðnu hausti. Auðmenn þar gerðu hið sama. Já, það er erfitt að átta sig á framferði manna hér, sem höguðu sér gagnstætt því, sem gerist allsstaðar annarsstaðar. Aðferð þeirra getur varla skilizt á annan hátt en þann, að þeir hafi ekki verið sjálfráðir gerða sinna. Löngunin til að koma stj. frá var svo mikil, að þeir gátu ekki séð svo bláan og beran sannleik eins og þetta.

Ég hefði mikla freisting til að tala meira við hv. þm. Dal. um þetta atriði, en skal láta hér staðar nema, enda býst ég við, að ekki verði mikill árangur af, því „seint er afglapa at snotra“ (forseti hringir). — Ég heyri að hæstv. forseti hringir til mín. Við erum því nú vanir flokksmenn hans, og skal ég ekki fást meira um það að sinni.

Hv. 2. þm. G.-K. hafði nefnt mig í ræðu sinni. Hafði hann fundið það sérstaklega að mér, að ég hefði ekki fylgt fram þál., sem ég hafði borið fram hér á árunum, ásamt hv. þm. Str., um að lækka vexti bankanna. Ég get glatt hv. þm. á því, að fyrir mér er alveg sama alvaran og áður var um það að lækka vextina. Og ég er tilbúinn að fylgja slíku fram þegar unnt er. Háir vextir eru þjóðarböl. Ég get frætt hv. þm. um það, að á öllum þeim þremur þingmálafundum, sem haldnir voru í Árnessýslu núna fyrir þing, voru samþ. einum rómi kröfur um að lækka vextina. Við 1. þm. Árn. vorum ráðnir í að hreyfa þessu máli er á þing kæmi. En við vorum varla fyrr hingað komnir en við heyrðum það, að Íslandsbanka væri að fjara út. Og þá litum við svo á, að ekki myndi verða talinn heppilegur tími nú til að lækka vextina. En ég er reiðubúinn að fylgja till. frá hv. þm. í þessu efni, hvenær sem vera skal og færi gefst. Hv. þm. G.-K. fríar hæstv. forsrh. um hugdeiglu. Mér dettur ekki í hug að fara neitt að lýsa geði eða innra manni hæstv. forsrh. En ég býst við, að hv. þm. hafi meint, að í honum væri geðveila og það fannst á, að honum þótti hæstv. forsrh. ekki vera nógu mikill skörungur í sínu sæti. En þó fannst það einnig á, að honum þótti hann í sumu fullmikill skörungur. En það er nú hægra um að ræða en í að komast. Hv. 2. þm. G.-K. hefir líka fengið þann dóm, að hann væri ekki mikill skörungur. Hann hefir einu sinni fengið þann veg og komizt í þann vanda, að geta ráðið stórmáli til lykta á heppilegan hátt. Það var þegar foringi hans var að hækka krónuna. Þá var hv. þm. í lófa lagið að koma í veg fyrir það. (ÓTh: Og gerði það líka!). Má vera, að einhverju litlu leyti, en alltof seint, því hann lét krónuna hækka alltof mikið. Hann hefði getað tekið í taumana miklu fyrr. En hv. þm. var geðveill og lét því bugast. Hann þekkti ekki sinn vitjunartíma. Ef hann hefði gert það, þá hefði hv. þm. getað orðið einhver mesti maður þessa lands. Og þá hefðu kosningarnar 1927 ekki heldur orðið eins hroðalegar fyrir Íhaldsflokkinn og raun bar vitni um. En hann gerði það ekki. Það er eins og ég sagði áður, hægra um að tala en í að komast.

Ég þekki ekkert þennan hv. þm. En hann talaði um hugdeiglu af svo mikilli mærð, og að því er virtist af svo mikilli þekkingu, að maður gæti hugsað, að hv. þm. hafi tekið marga tíma hjá „aðalsérlækni Norðurlanda“ í þeirri grein, sem hann nefndi. En ég býst samt við því, að hv. þm. hafi ekki gert þetta. Hann hefir nóg annað skemmtilegra. Ég verð því að álíta — jafnfjálglega og hann talaði um þessa „hugdeiglu“ — að hann hafi hér mælt af eigin raun.