25.02.1930
Efri deild: 34. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1315 í B-deild Alþingistíðinda. (1725)
11. mál, yfirsetukvennalög
Fjmrh. (Einar Árnason):
Ég verð að segja það, að mér finnst afstaða sú, sem hv. fjhn. hefir tekið í þessu máli, ekki vera á þann veg, að hún sé sérstaklega friðvænleg til sátta í þessu máli. Ég hafði gert mér nokkrar vonir um, að hægt myndi að fá samkomulag milli þeirra manna, sem hafa staðið dálítið á öndverðum meið undanfarið, með því að flytja samkomulagsleið, sem að áliti okkar, sem höfum viljað gæta hófs í þessu máli, gengur svo langt í samkomulagsáttina, að maður gæti búizt við, að tekið yrði vel á móti. En nú sé ég, að hv. fjhn. slær í e. hlj. á þá framréttu hönd okkar í þessu máli, og þá er fyrst séð, að það verður að skeika að sköpuðu.
Það þarf ekki nú að ræða sérstaklega einstök atriði þessa máls eða flytja margar tölur og útreikninga um það. Það er búið að því á undanförnum þingum og hér liggur í raun og veru ekkert annað fyrir en það, sem áður hefir legið fyrir þinginu, og engar nýjar tölur geta komið fram og skýrt málið.
Hv. frsm. n. hóf ræðu sína með því að segja, að engan mundi undra sú afstaða, sem fjhn. hefði tekið í þessu máli. Það er nú einmitt það, að mig undrar afstaða hennar í málinu, þar sem hún vill ekkert beygja af, heldur halda fram fyllstu kröfum í þessu efni, ekkert tillit taka til þess, sem áður hefir verið talið rétt og sanngjarnt í málinu, og þá finnst mér þýðingarlaust að skipta lengi orðum um það.
Því hefir verið haldið fram, alltaf þegar þetta mál hefir verið til umr., að það væri aðallega flutt vegna þeirra ljósmæðra, sem lökust launakjör hefðu úti um land, vegna þeirra, sem hefðu lítil umdæmi og lág laun. Nú hefir hv. frsm. n. játað í sinni ræðu, að það munaði litlu eða léti mjög nærri um till. stjfrv. og till. n. hvað snertir einmitt þessar ljósmæður. Þá er með þessu viðurkennt, að launabætur ljósmæðra eru eftir frv. mestar þar, sem launin voru lægst, enda tel ég það sanngjarnt.
Hinsvegar var hann að tala um það, að eftir frv. kæmust ljósmæður í stærri kaupstöðum aldrei hærra en í 1100 kr., en eftir till. n. kæmust þær upp í 1.500 kr. Um þetta er í raun og veru engin deila, öllum er ljóst, að það ber á milli, og þetta er því engin röksemd. í málinu.
Hv. frsm. kvaðst hafa í höndum mikið af bréfum utan af landi, bæði frá ljósmæðrum og fleiri mönnum, um þetta mál. Það má vel vera, ég efast ekkert um það, og ég veit, að það hafa verið pöntuð bréf utan af landi. Og hverjum skyldi líka detta í hug að halda því fram, að ljósmæður vildu ekki eins og aðrir fá laun sín hækkuð? Hv. frsm. er alltaf að tala um, að verkafólkið vilji fá hærri laun, og það er ekkert undarlegt, því að það vilja allir. Þetta út af fyrir sig er ekki sterk röksemd. Það verður alltaf að miða launin við getuna til þess að greiða þau, og í annan stað verður dálítið að gæta þess, að samræmi sé í launakjörum yfirleitt hjá starfsfólkinu. Ég veit ekki annað en að flest atvinnufyrirtæki reyni yfir höfuð að launa starfsfólki sínu þannig, að sem mest samræmi sé á milli þess.
Hv. frsm. fullyrti, að ljósmæður vantaði í meira en 30 ljósmóðurumdæmi. Ég vil alls ekki taka þetta gott og gilt, nema hann sanni það.
Ég verð að taka það fram, að það eru ekki einungis útborganir fjármálaráðuneytisins til ljósmæðra, sem sýna, að ekki ber sérstaklega mikið á ljósmæðravöntun. Ég hefi í höndum símskeyti frá öllum sýslumönnum á landinu um, hvað margar yfirsetukonur vantar í umdæmi hvers um sig. Á þessum skeytum ætti að mega byggja, og ég efa alls ekki, að þau skýra rétt frá ástandinu eins og það var, er ég leitaði þessara upplýsinga. Ég ætla ekki að lesa símskeytin upp að svo stöddu, en það getur vel rekið að því, að ég geri það. Ég ætla að bíða og lofa hv. frsm. að leggja fram þau gögn, sem hann hefir í þessu máli. Það, sem fram kom í framsöguræðu hans, fannst mér raunar ekki sérstaklega veigamikið.
Annars hefi ég ekki ástæðu til að fara langt út í þetta mál; ég býst við, að þessar umr. leiði ekkert nýtt í ljós, og er ég því tilbúinn að láta þær niður falla, ef næsta ræða hv. frsm. gefur mér ekki tilefni til andsvara.