25.02.1930
Efri deild: 34. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (1737)

11. mál, yfirsetukvennalög

Halldór Steinsson:

Hæstv. fjmrh. byrjað sína fyrri ræðu með því að segja, að hann hefði nú komið ósköp vel fram í þessu máli, þar sem hann hefði viljað fara samkomulagsleiðina með því að flytja frv., sem hér liggur fyrir. En það samkomulag, að bjóða hv. d. upp á þær till., sem felldar voru á síðasta þingi! Sér er nú hver viðleitnin til samkomulags! Það er síður en svo, að hæstv. fjmrh. hafi verið mjúkur í þessu máli. Ég get ekki betur séð en að hann hefi verið aðalmótstöðumaður þess í hv. deild.

Þá sagði, hæstv. fjmrh., að hjúkrunarstarfsemi kæmi ekki þessu máli við, af því að þetta frv. gerði ekki ráð fyrir þeirri starfsemi. Mikið rétt. Það stendur ekki enn sem komið er í þessu frv., að ljósmæður skuli hafa hjúkrunarstarfsemi með höndum; en öðru eins mætti breyta í nefnd, og er þá það atriði vissulega launamálinu viðkomandi.

Þá þótti hæstv. ráðh. ekki hentugt, að ljósmæður hefðu hjúkrunarstarfsemi jafnhliða. Ég álít það gagnstæða, — að sú hjúkrunarstarfsemi gæti farið fram víðast samhliða. Auðvitað ekki í kaupstöðum eða stórum kauptúnum, því að þar hafa ljósmæður venjulega nægilegt að gera. Og þó að svo kunni að fara, að ljósmóðirin verði stundum forfölluð frá hjúkrunarstörfum, þegar þörf er hjúkrun, mundi yfir höfuð verða mikið gagn að henni eigi að síður. Ég tók það fram, að héruðin mundu þó ekki með þessu fá fullkomna hjúkrunarstarfsemi, en hjúkrunarstarfsemi, sem væri til bóta þangað til betur yrði úr bætt. Þessu gekk hæstv. ráðh. alveg framhjá. Ennfremur sagði hann, að þá mundu giftar konur ekki geta orðið ljósmæður. Ég skal ekki segja um það. Þær gætu það ef til vill í fámennustu umdæmunum, en ekki þeim fjölmennari. En annars álít ég, að ekki sé skaði skeður, þótt ljósmæður séu yfirleitt ekki giftar.

Hæstv. ráðh. fór að tala um kjör annara starfsmanna þjóðfélagsins í sambandi við ljósmæðurnar; og kvað hann margar stéttir verr launaðar, t. d. barnakennara. En hvílík fjarstæða! Hér liggur fyrir frv. frá hv. Nd. um laun barnakennara. Þar er farið fram á 500 kr. laun, auk þess sem þeir hafa fæði, húsnæði, ljós og hita í 6 mánuði, og hefir verið reiknað 450 kr. eða rúmlega það. Eru þá laun barnakennara um 1 þús. kr. hálft árið, og aðgætandi er, að þeir hafa svo betri helming ársins frjálsan til annarar atvinnu. Hafi þeir jafnmikið kaup þann tímann eins og yfir veturinn, er kaupið þá um 2 þús. kr. yfir árið? Hvaða ljósmóðir á landinu hefir þau laun? Samanburður á þessu nær ekki nokkurri átt.

Þegar hæstv. ráðh. fór að tala um skýrslur og símskeyti, sagði hann, að sér dytti ekki í hug að véfengja skýrslur læknanna. (Fjmrh: Ég hefi aldrei sagt það um skýrslur læknanna). Jú, hæstv. ráðh. sagði það í byrjun, en svo endaði hann með því að segja, að hann yrði að taka frekar gild vottorð sýslumannanna; m. ö. o.: hann slær föstu, að leggja ekkert upp úr símskeytum læknanna. Ég ætla ekki að þrátta við hæstv. ráðh. um þetta, en ég vona, að hv. þdm. skilji yfirleitt, að héraðslæknar eru kunnugri hver sínu læknishéraði heldur en sýslumenn í allri sýslunni. (Fjmrh.: Borga þeir ekki launin?). Ég véfengi ekki skýrslurnar, en þeir eru yfirleitt ekki eins kunnugir þessu eins og héraðslæknarnir. (Fjmrh.: Þeir borga launin). Það getur verið, að margar konur hafi sagt upp eftir að launin voru borguð.

Þá kem ég að hv. þm. A.-Húnv. Ég er satt að segja óvanur, að hann reiðist yfir sig, eins og hann virtist nú gera í hv. deild. Hann kvað það einkennilegt, að þessi n. hefði farið að óska eftir bréfi frá læknum þessarar hv. deildar — læknum þingsins, sem vitanlega væru hlutdrægir í málinu. Ég skil ekki, hvernig hv. þm. getur látið sér þessi orð um munn fara. Fyrst og fremst hefir hann engan rétt til að segja, hvorki að ég né nokkur annar læknir þingsins sýni hlutdrægni. (GÓ: Ég sagði það ekki). Hv. þm. sagði það, en hann hefir máske ekki ætlað að segja svo mikið. Hvað lá nær, þegar n. sendi öllum héraðslæknum landsins símskeyti og bað um svör við spurningum, heldur en að taka með þessa tvo lækna á þingi? Varðaði hana ekkert um álit þeirra? Ég skil ekki hugsanagang hv. þm. A.-Húnv. Og ég held hv. þm. ætti ekki að tala um hlutdrægni í þessu máli, er minnast þess úrskurðar, sem gefinn var hér á síðasta þingi. Það er bezt að láta alla hlutdrægni hvíla.

Hv. sami þm. fór að minnast á hjúkrunarstarfsemina í sambandi við þetta mál. Ég læt nægja að vísa í svar mitt um þetta til hæstv. ráðh. Annars er svo að sjá, að forsvarsmenn andstæðinga þessa máls séu komnir í rökþrot og hafi ekki annað á borð að bera en hártoganir og útúrsnúninga.