25.02.1930
Efri deild: 34. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1739)

11. mál, yfirsetukvennalög

Guðmundur Ólafsson:

Ég hélt ég þyrfti ekki að ómaka mig úr forsetastól aftur við þessa umr., en hæstv. þm. Snæf. — (HSteins: Bara háttvirtur). Jæja, hann hefir þá áður verið hæstvirtur. Hann sagði, að ég hefði verið yfir mig reiður, þegar ég talaði hér áðan. Mér þykir það ekki undarlegt, þó að leikmenn séu glámskyggnir á það, í hvaða hugarástandi menn eru, þegar hann, læknirinn, telur mig hafa verið yfir mig reiðan hér í dag. Ég vitna aðeins til hv. deildar um það, hvort hún yfirleitt sá nokkur reiðimerki á mér. Svo vitnaði hann í það, að ég vildi ekki láta leita til lækna í hv. deild, af því að þeir væru hlutdrægir. Ég held, að ég hafi ekki sagt það; en ég sagði, að okkur væri kunn þeirra skoðun. En hvað úrskurði snertir, efast ég um, að hans hafi staðizt betur en mínir. Og úrskurð minn í þessu máli í fyrra býst ég við, að flestir, sem vita hafa á, telji réttan. Nú heldur víst þessi hv. þm., að ég sé reiður, er ekki svo? (HSteins: Nei, nei). Ég held þá, að það hafi aldrei sézt á mér reiðimerki í dag fyrr en ef það væri nú. Ég verð að segja, að hv. þm. stendur ekki hátt sem læknir í því að sjá, í hvaða sálarástandi maðurinn er, sem talar við hann. Ég ímynda mér, að hann hafi lakara vit á, hvað okkur karlmönnunum líður heldur en yfirsetukonunum.