04.04.1930
Efri deild: 69. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1050 í C-deild Alþingistíðinda. (1769)

205. mál, almennur ellistyrkur

Ingibjörg H. Bjarnason:

Ég skal svara hv. 6. landsk. því í sambandi við þennan skakka útreikning minn um hækkun á framlagi ríkissjóðs, að þessi aths. hans er rétt. Mér láðist að geta þess áðan, að framlag ríkissjóðs hækkar auðvitað um 50 aura á hvern gjaldskyldan mann. En þessi hækkun er ekki ægileg, þegar verið er að rétta mörgum hjálparhönd.

Hv. þm. kannaðist við, að gott væri að auka úthlutunarféð. Þetta er aðalatriðið, sem vakir fyrir okkur flm. Hann taldi illa farið, að ekki skyldi farin sú leið, sem ég við 1. umr. málsins tók fram, að við sáum okkur ekki fært að fara nú. Það var ógerningur að taka frv. upp nú og flytja það á sama grundvelli, sem Nd. var fjandsamleg í fyrra. En við treystum því, að menn hefðu e. t. v. eitthvað kynnt sér þetta mál betur og séð, að hér er engin hætta á ferðum, heldur er aðeins verið að reyna að auka það fé, sem ellistyrktarsjóðirnir ráða yfir til styrktar gamal­mennum, sem eru 60 ára og þaðan af eldri. Það er verið að hjálpa ofurlítið mönnum, sem e. t. v. hafa unnið langt og gott starf, en eru efnalausir að loknu æfistarfi og eru í lengstu lög að halda sér frá sveit.

Þetta var það, sem vakti fyrir okkur flm., og að fara að flytja það, sem skynsemi okkar sagði okkur, að hefðist ekkert upp úr, nefnil. að flytja frv. í sama búningi og það var fellt í á síðasta þingi, það álitum við ekki gerlegt.

Ég skal taka það fram, að þessi lög eru aðeins til bráðabirgða. Það er búið að skora á stj. a. m. k. á tveim undanförnum þingum að undirbúa tryggingarlöggjöf, en ekkert er reyndar farið að bóla á þeim framkvæmdum enn. En þótt þetta frv. nái skammt og sé aðeins það, sem sumir kalla kák, mega menn ekki setja það fyrir sig, ef með því er að nokkru hægt að bæta úr því illa ástandi, sem er.

Að setja nýja bót á gamalt fat er gott orðatiltæki, þar sem það á við. Þetta er oft gert, og þykir ekki nema kostur að bæta gamlar flíkur með nýjum bótum, þegar efnið er samstætt. Ég sé ekki, að þessi bót, að auka úthlutunarféð, sé nein fjarstæða, og hún verður ekki óvinsæl. Hitt skal ég játa, að það hefði orðið meiri aukning, ef frv. hefði náð samþykki eins og það var afgr. frá þessari hv. d. í fyrra. En úr því sem er, þá var ekki til nokkurs hlutar að taka málið upp á grundvelli, sem ómögulegt var að fá samþ. í fyrra.

Um þann möguleika, að hv. Nd. kynni nú að vera komin á aðra skoðun í þessu máli en í fyrra, þá hefi ég litla trú á því. Það er því miður allt of sjaldgæft, að menn snúi frá villu síns vegar, þegar þeir hafa bitið sig fasta í eitthvað.

Hv. þm. talaði um, að eiginlega væri engin trygging fyrir því, að ellistyrktarfénu væri æfinlega úthlutað án allrar hlutdrægni. Ég skal fúslega viðurkenna, að ákvæði í núgildandi lögum um það er nokkuð rúmt, og brtt., sem kæmu þar til bóta, væru æskilegar. Það væri ágætt, ef hv. þm. sæi sér fært að koma með einhverjar slíkar brtt., sem tryggðu betur, að úthlutun á hverjum tíma væri ekki háð ýmsum atvikum, eins og nú er.

Ég vona, að hv. þdm. taki með skilningi og velvild í þetta mál og leyfi því fram að ganga, ekki aðeins til 3. umr., heldur einnig út úr deildinni. Finnst mér þá ástæða til að vænta þess, að hv. Nd. sjái sér fært að afgreiða frv. til fullnustu á þessu þingi, þar sem það verður lagt fyrir hana eins og hún samþ. það í fyrra, áður en það var lagt fyrir Sþ. og fellt þar.