27.02.1930
Efri deild: 36. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)
11. mál, yfirsetukvennalög
Forseti (GÓ):
Mér þótti undarlegt, að hv. þm. Snæf. skyldi ganga út frá því sem vísu, að ég vildi ekki verða við þeirri ósk, sem fram hefði komið, um að fresta málinu, þar sem ég hefi ekki lýst yfir neinu í þá átt. Ég legg ekki það kapp á þetta mál, að ég láti mér ekki í léttti rúmi liggja, þó að því sé frestað enn einu sinni. Hinsvegar vildi ég heyra, hvort hv. frsm. n. hefir ekki snúizt hugur við það, að hæstv. dómsmrh. hefir nú boðizt til að vera einnig fjarstaddur atkvgr.