09.04.1930
Neðri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)
11. mál, yfirsetukvennalög
Frsm. 1. minni hl. (Sigurður Eggerz):
Þetta mál hefir verið lengi á ferðinni. Það kom til n. 12. marz og var afgr. af þeim minni hl., sem ég tilheyri, 15. marz, en af öðrum minni hl. n. 20. marz. Nú er kominn 9. apríl, svo að ekki er hægt að segja, að málinu hafi verið hraðað.
Þetta mál er ekki með öllu ókunnugt hér í þessari hv. deild, og vil ég taka það fram, að brtt. þess minni hl., sem ég er frsm. fyrir, eru shlj. þeim till., sem samþykktar voru í fyrra í þessari hv. deild. Skal ég nú gera nokkurn samanburð á þessum brtt. og stjfrv.
Stjfrv. gerir ráð fyrir, að ljósmæður í umdæmum, þar sem fólkstal er 300 eða minna, fái 300 kr. í árslaun, og samkv. 3. lið 1. gr. geta þessi laun hækkað um 100 kr. á 10 árum, þannig að launin verða alls 400 kr. auk dýrtíðaruppbótar. Samkv. brtt. okkar hv. 2. þm. Reykv., en hann skipar 1. minni hl. fjhn. með mér í þessu máli, eru byrjunarlaun yfirsetukvenna 300 kr., en hækka 3. hvert ár um 50 kr., upp í 500 kr. Er þar ótalin dýrtíðaruppbótin. Sést á þessu, að okkar till. skapa mun betri aðstöðu fyrir ljósmæðurnar, og þessi launahækkun nær til þeirra flestra, því að flestar ljósmæður eru í þessum launaflokki.
Í umdæmum, sem hafa fleiri en 300 manna, eru árslaun ljósmæðra samkv. stjfrv. 300 kr., að viðbættum 10 kr. fyrir hverja fulla 5 tugi manna, sem fram yfir eru 300. Auk þessa njóta þær sömu launahækkunar sem ljósmæður í þeim umdæmum, þar sem íbúatalan er 300 eða minni. Samkv. okkar till. eru grunnlaun þeirra ljósmæðra, sem í þessum launaflokki eru, 300 kr., að viðbættum 30 kr. fyrir hverja 100 íbúa, sem fram yfir eru.
Í kaupstöðum, þar sem eru tvær eða fleiri ljósmæður, ætlast stjfrv. til, að íbúatölunni sé deilt jafnt á milli þeirra og þeim svo reiknuð laun á sama hátt og öðrum ljósmæðrum, þó svo, að byrjunarlaunin fari aldrei fram úr 1.000 kr. Samkv. till. okkar á 30 kr. ákvæðið einnig við um launaákvörðun þessara yfirsetukvenna, með þeirri takmörkun, að öll launin, án dýrtíðaruppbótar, fari aldrei fram yfir 1.500 kr.
Ég vil í þessu sambandi gera eina aths. við stjfrv. Þar er svo ákveðið, að laun ljósmæðra, auk dýrtíðaruppbótar, megi aldrei fara fram úr 1.500 kr. Nú eru byrjunarlaunin samkv. stjfrv. hæst 1.000 kr., og eiga þau að hækka um 100 kr. á 10 árum, þannig að launin geta mest orðið 1100 kr. Ég fæ því ekki skilið, hvað þetta hámarksákvæði hefir að þýða. Það er að vísu hægt að hugsa sér, að laun ljósmæðra í umdæmum, þar sem eru 300 eða færri íbúar, geti farið fram úr 1.500 kr., en það er „praktiskt“ ómögulegt. Mér þætti því vænt um að fá skýringu á þessu ákvæði stjfrv.
Eins og ég drap á áðan, eru brtt. okkar hv. 2. þm. Reykv. shlj. þeim till., sem samþykktar voru í fyrra í þessari hv. d. með allmiklum meiri hl. atkv., og einnig í hv. Ed., þó að hæstv. forseti þeirrar deildar úrskurðaði annað. En inn á það skal ég ekki koma nánar hér.
Þessar till. þingsins í fyrra um bætt launakjör ljósmæðra vöktu miklu ánægju meðal stéttarinnar, og þó að ég búist ekki við, að þessi hv. d. fari nú að fella það, sem hún samþ. í fyrra, verð ég að færa fram nokkuð af þeim rökum, sem færð hafa verið á fyrri stigum þessa máls fyrir þessum till., vegna hinnar miklu andstöðu hæstv. stj. gegn þeim.
Er þá fyrst það að telja, að vegna þessara lágu launa ljósmæðra standa mörg umdæmi laus. Er ágreiningur um það, hve mörg þau eru. Læknarnir segja 30, sýslumennirnir 14. Beindi ég þeirri ósk til hæstv. fjmrh. við 1. umr. þessa máls, að hann upplýsti, í hverju þessi mismunur lægi, og vænti ég, að hann geri það nú við þessa umr. En þótt ekki vantaði yfirsetukonur nema í 16 umdæmi, væri það eitt ærin ástæða til þess að hækka launin, svo að ljósmæður fengjust þangað, auk þess sem tími er til kominn að bæta úr því ranglæti, sem þessi þýðingarmikla stétt hefir átt við að búa til þessa, eins og bezt sést á stjfrv. En það eru fleiri ástæður fyrir launahækkun við ljósmæður en eiginhagsmunir þeirra sjálfra. Þjóðin krefst þess, að kjör þeirra séu bætt.
Almenningur fær ekki skilið, af hverju afskekkt héruð, sem eiga langt til læknis, eiga að vera yfirsetukonulaus, enda er slíkt svo mikil harðýðgi, að ekki getur átt sér stað á þessum mannúðartímum. Mig hryllir við að hugsa til þess, að kona, sem er að ala barn, skuli þurfa að fara á mis við nauðsynlega hjálp, vegna þess að hún býr í afskekktri, ljósmóðurlausri sveit. Það er sízt verjandi á þessum tíma, þegar verið er að fara gegnum fjárlög og fjáraukalög, þar sem milljónirnar velta, að þá skuli þurfa að sýna svona mikla harðýðgi við þessa stétt, yfirsetukonurnar, að ekki megi veita þeim einu sinni eins mikil laun og vinnukonur hafa hér í Reykjavík, og þrátt fyrir það, þótt vanti yfirsetukonur í svona mörg héruð. Það er að gefa sveitunum, sem margir þykjast bera fyrir brjósti sér, olnbogaskot, að veita þeim ekki kost á að hafa jafnnauðsynlegar konur í héraðinu eins og yfirsetukonurnar eru.
Það er verið að segja, að sú hækkun, sem yrði á þessum launum, sé svo há, að ef ætti að hækka laun embættismanna á sama hátt, gæti það ekki náð nokkurri átt. Það er rétt, en þess verður að gæta, að þessi stétt hefir sama sem engin laun haft áður.
Mér skilst eftir grg. stjfrv., að mismunurinn á þeirri hækkun, sem ég fer fram á, og frv. hæstv. stj. verði ekki nema 20 þús. kr. Það verður leiðrétt, ef ég fer rangt með. Það er erfitt að reikna þetta út, launin, eru mismunandi í þeim ýmsu flokkum, en ekkert yfirlit yfir það, hvað margar yfirsetukonur eru í hverjum flokki.
Ég endurtek það að það er dálítið broslegt, að þetta mál skuli þurfa að sækja svo fast. Ég veit ekki, hvort það er gert með vilja að draga það fram undir þinglok, og hvort á að skapa því líkan endi og á síðasta þingi, sem var hvorki meira né minna en þinginu til háðungar. Það er hart, að þingsköpin skuli vera útbúin þannig, að mál, sem fær meiri hl. í báðum hv. deildum. skuli falla. En sú réttlætistilfinning, sem maður verður oft var við, þegar þeir, sem eiga erfitt, leita til þingsins, ætti nú að vera svo sterk eftir endalok málsins í fyrra, að það yrði nú samþ. í þeirri mynd, sem það var raunverulega samþ. í á síðasta þingi.
Ef haldið verður áfram að berjast gegn þessu máli, þá hlýtur maður að spyrja: Hvernig stendur á því? Og þá hlýtur að vakna sú spurning, hvort þetta sé áfram hald af því misrétti, sem hér hefir verið milli kvenmanna og karlmanna í þessu landi. Ég veit ósköp vel, að réttarlega aðstaðan er sú sama, en það er ekki hægt að neita því, að ennþá eimir eftir af hinum gamla kúgunarhugsunarhætti, sem skapar konunum lægra sess en karlmönnum. Þetta kemur hér fram, og þetta kemur víðar fram. Kona, sem starfar eins vel og karlmaður, fær lægra kaup. Og það versta er, að konurnar eru ekki ennþá sjálfar búnar að átta sig á þessu.
Þegar ég fór fyrst að fást við stjórnmál, höfðu konur ekki þá sömu réttarlegu aðstöðu og þær hafa nú. En mér var það ljóst, að þetta var blettur á þjóðinni. Og hvenær sem ég gat, reyndi ég að berjast fyrir þessu réttlætismáli kvennanna. En þegar maður sér slíka herferð á móti slíku réttlætismáli sem þessu, þá verður maður að spyrja: Er þetta af því, að hv. þm. vilja, að konan faktiskt skipi lægri sess heldur en karlmaðurinn? Og þá er sannarlega kominn tími fyrir konurnar til þess að nota sinn rétt og senda fleiri fulltrúa inn á Alþingi, Ég er ekkert að mæla út, hvað stór sá skerfur er, sem ég hefi lagt til þessara mála, en viljinn hefir verið nægur. En mér hefir verið raun að því, hvað konurnar sjálfar hafa verið daufar í þessu, og ég vildi óska, að augu þeirra opnuðust og þær sendu nýja fulltrúa hingað inn.
Þó að segja megi, að á ýmsum sviðum sé mikil, jafnvel stórfelld framför í landi voru, þá held ég ekki, að sagt verði, að framför sé í stjórnmálalífi voru. Þvert á móti. Ýmsir atburðir gerast hjá oss, sem benda mjög fast í afturhaldsáttina. Ég veit, að oss vantar nýja, sterka strauma, til þess að rífa rotnunina burt úr stjórnmálalífi voru. En hvaðan eiga þeir að koma? Er ekki eðlilegt að vænta þess, þegar kvenþjóðin vaknar, að hún veiti. inn á Alþingi einhverjum af þessum nýju, sterku straumum, sem þjóðin þarfnast? Ég er viss um, að það þarf meiri hreinleika inn í stjórnmálalíf vort. Umfram allt meiri hreinleika. Þetta er ekki einungis mín rödd, heldur bergmálar þetta sama um allt land. En væri ekki hugsanlegt, að þetta kæmi með því, að kvenþjóðin vaknaði og legði fram sinn skerf.
Ég hefi oft veitt því eftirtekt, að ranglætið — og það er alltaf nóg af því bæði utan þings og innan — getur orðið til þess að vekja menn til andstöðu. Ég vona, að það ranglæti, sem beitt er í þessu máli, geti orðið til þess að vekja kvenkjósendur í þessu landi, svo að þeir rísi upp og rétti landinu hjálpandi hönd, og á þeirri hönd þarf nú að halda.