28.03.1930
Neðri deild: 65. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (182)
1. mál, fjárlög 1931
Magnús Jónsson:
*)
Það er nú orðið nokkuð langt síðan ég talaði síðast. Það var víst á laugardaginn var, svo að þótt eldhúsdagsumr. séu orðnar nokkuð langar, þá er það ljóst, að ég á ekki nema lítinn og eingöngu óbeinan þátt í þeim umr., sem orðið hafa þessa viku. Annars er ég óánægður með að þurfa að tala nú, þar sem aðeins á að vera stuttur fundur í dag og síðan á að ganga til mannfagnaðar. (Dómsmrh.: Menn eiga að verða samkvæmishæfir). Já, undir forystu hæstv. dómsmrh. (Dómsmrh.: Eða með stuðningi hans). Úr því að hæstv. ráðh. er að grípa þetta fram í, skal ég skjóta því að, að mér þykir leitt, hversu mjög hann hefir verið ávítaður fyrir þessa grein sína, þar sem hann hvatti menn til að nota áfenga drykki til að gera sig samkvæmishæfa. Það er ekki svo oft sem hæstv. ráðh. hefir skrifað heiðarlega grein, að hann eigi skilið, að sá sjaldgæfi viðburður mæti eins lítilli samúð og grein hans um áfengismálið.
Ég hefði helzt viljað ljúka eldhúsdeginum í gærkveldi, og var þá til með að fella niður meginpartinn af því, sem ég ætlaði mér að segja. En úr því að hæstv. stj. vildi ekki fallst á það, og það sýnist tilgangur hennar að hafa þessar umr. sem allra lengstar, þá hefi ég enga ástæðu til að stytta mál mitt. En hinn stutti fundartími í dag hlýtur þó að verða til þess, að ég get aðeins stiklað á því stærsta af því, sem svara þurfti.
Vil ég fyrst snúa mér að hæstv. forsrh.
Tók hann að rifja upp úr guðfræðinni það, sem okkur hafði verið kennt forðum; að ræður ættu ekki að taka lengri tíma en hálfa klukkustund. Það þarf náttúrlega ekki að taka fram, að sjálfur hefir hann margbrotið þessa reglu, sem honum finnst svo gullvæg handa mér. En það, að hæstv. ráðh. fór að tala um þetta, er annars ágætt dæmi um framkomu hans í orðaskiptum. Hann tekur reglu úr guðfræðinni, sem í sjálfu sér er góð og gild þar, en ætlar að heimfæra hana upp á stjórnmálaviðskiptin, þar sem allt aðrar reglur hljóta að gilda. En þetta er aðferðin: að taka reglu, sem er góð og gagnleg, þar sem hún á við, og láta eins og hún sé sjálfsögð í öðrum tilfellum, þar sem öðruvísi stendur á að öllu leyti. — Þetta áttu víst að vera einhver mótmæli gegn ræðu minni, að hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði talað í tvær klukkustundir. En það ætti að vera óþarfi að minna hæstv. ráðh. á, að ýmsir merkustu og frægustu ræðumenn heimsins hafa einmitt einatt haldið mjög langar ræður. Án þess að ég vilji á nokkurn hátt líkja mér við þá að mælsku eða andagift, get ég minnt á, að Gladstone t. d. talaði stundum heila nótt, Bismarck drakk oft 2 og 3 whiskyflöskur meðan hann hélt eina ræðu, og þótt hann þyldi mikið karlinn, þá hefir þetta þó hlotið að taka sinn tíma. Hinn ágætasti ræðumaður Frakka, Poincaré, talaði nýlega í þrjá daga samfleytt í franska þinginu. — Nei, ræðulengdin verður að vera alveg eftir atvikum, eftir því, hversu umfangsmikil mál eru til umræðu. Hitt er náttúrlega skiljanlegt, að hæstv. forsrh. vilji hafa ræður andstæðinganna sem stytztar, svo að hann hafi sem minnstu að svara. En við getum ekki að því gert, stjórnarandstæðingar, þótt hæstv. landsstj. hafi gerzt sek um svo margt aðfinnsluvert, að það taki nokkurn tíma að telja það allt upp.
Af ræðu hæstv. forsrh. ætla ég að taka það fyrst, sem hann tók síðast, en það er sá hluti ræðu hans, sem hann nefndi hinn persónulega kafla. Ég hafði haldið því fram, að persónulegar ástæður myndu hafa valdið veitingu eins embættis. hjá hæstv. forsrh. Hann vildi afsanna, að þetta gæti verið rétt og flutti fram nokkur rök fyrir því, og má skipta þeim í tvo flokka. Fyrst er framkoma hans á Alþingi gagnvart ýmsum mönnum, er eitthvað hafa gert á hluta hans fyrr eða síðar, og í öðru lagi afstaða okkar fornkunningjanna, hæstv. ráðh. og mín. — Hæstv. ráðh. nefndi það, að hann hefði greitt atkv. með fjárveitingum til tveggja manna, er hann hafði átt nokkuð í höggi við, Sigurðar Sigurðssonar og Magnúsar Péturssonar. Átti þetta að vera almenn sönnun þess, að hann léti ekki persónulega óvild hafa áhrif á atkv. sitt. Mér finnst þetta óneitanlega heldur lítil sönnun, því að líklega eru fáir þeir þm., sem aldrei hafa greitt atkv. með fjárveitingu til nokkurs manns, er þeir gátu haft einhverja tilhneigingu að vera heldur í nöp við.
Það er eins og hæstv. forsrh. finnist það eðlilegt og nærri því sjálfsagt að setja á sig að vera persónulega í nöp við alla menn, sem að einhverju leyti eru á móti honum. Mér viðvíkjandi get ég minnzt á ritstyrk til eins manns, sem oft hefir reyndar hreytt í mig ónotum. Ég greiddi atkv. með styrknum, eins og ég áleit rétt. Ég á við Halldór Kiljan Laxness. Ég sé nú að þetta hefir verið nokkuð stór dyggð hjá mér að gera þetta.
Ég hefi áður gefið hæstv. forsrh. yfirlýsingar um gott samkomulag okkar á milli fyrr og síðar. Þær má finna í þingtíðindum. Hann var ágætur félagi og skólabróðir, og það er langt frá, að ég reyndi af honum nokkuð slíkt, að ég hafi nokkru sinni borið kala til hans. Ég held, að okkar viðskipti í þessu efni síðan hafi verið nokkuð svipuð.
Það er aðeins eitt, sem hæstv. forsrh. þarf að berjast við að reyna að fyrirgefa mér; það er, að ég hafi hremmt frá sér það embætti, sem hann langaði mest til að fá á ævinni. Af því að svo mætti líta á, að ég hafi gert eitthvað óheiðarlegt, þegar ég fékk dósentsembættið við háskólann, eftir orðum hæstv. ráðh. að dæma, þá finn ég ástæðu til að gera svolítið nánari grein fyrir þessu.
Þegar þetta embætti losnaði, í des. 1916, sóttu nokkrir menn um það. Það hittist svo á, að hæstv. forsrh. var þá staddur hér í Reykjavík. Og af því að þetta var um miðjan vetur og kennsla mátti ekki falla niður, þá var hann fenginn til að gegna, embættinu til bráðabirgða. Og jafnframt tók guðfræðideildin það fram, að hún ætlaði sér að framfylgja ákvæði í 9. gr. háskólareglugerðarinnar um samkeppnispróf milli þeirra, sem um starfið sæktu, áður en embættið yrði veitt. Ég held, að eitthvað af umsóknum hafi þá verið dregið til baka, en það voru þrír menn, sem kepptu, hæstv. núv. forsrh., séra Ásmundur Guðmundsson og ég.
Dómnefnd skipuðu kennarar deildarinnar tveir, sem eftir voru, Haraldur Níelsson og Sigurður P. Sívertsen, sá, sem nýfarinn var, Jón Helgason biskup og tveir menn utan háskóladeildarinnar, próf. Björn M. Ólsen og Jón Aðils dósent. Tveir þeir síðustu áttu sérstaklega að vera til aðstoðar við að leggja dóm á ritgerð og fyrirlestra í kirkjusögu, sem mest áherzla var lögð á við prófið. Þessi 5 manna n. dæmdi eingöngu eftir úrlausnunum, og hún réð því algerlega hverjum embættið væri veitt. Hún varð sammála um að velja mig. Nú get ég vel skilið það hjá hæstv. forsrh., að honum hafi sárnað að verða af þessu embætti. Hitt er mér gersamlega óskiljandi, hvernig það gat komið upp í huga hans, að það gæti komið til nokkurra mála að leggja fæð á mig fyrir það, að ég fékk embættið. Það hefði þá heldur verið dómnefndin. Eða þá við mig fyrir það að sækja um embættið. Ég stóð mjög illa að vígi í þessari samkeppni. Ég var þá heilsutæpur, þoldi illa vinnu og gegndi auk þess einu af erfiðustu embættum landsins. Þetta held ég að hæstv. forsrh. hafi vitað og skilið, og ég hefi heldur aldrei fundið gremju hans bitna á mér. Ég man, að hann tók mjög hlýlega í hendina á mér og óskaði mér til hamingju með embættið.
Ég komst einu sinni áður í nákvæmlega sömu stöðu. Ég hafði sótt um þetta sama embætti áður, það var árið 1911, þegar háskólinn var stofnaður. Þá var ég nýlega útskrifaður og hafði tekizt að ná mjög háu prófi og hafði fengið nokkra von um kennaraembætti við guðfræðideild háskólans. Vorið 1911 var séra Eiríkur Briem settur til að gegna embættinu, og töldu allir víst, að honum yrði veitt það. Ég fór vestur til Ameríku og dvaldi þar um sumarið, en kom aftur heim fyrri part vetrar. En þegar til kom, sækir séra Eiríkur ekki. Þá var ég eini umsækjandinn, og mönnum fannst sjálfsagt að framlengja umsóknarfrestinn. Í stað þess að taka mig, var sóttur maður austur á land, séra Sigurður P. Sívertsen. Engan hefir langað meira en mig þá til að takast þetta embætti á hendur. Ég hafði ferðast um England og Þýzkaland til að fullkomna mig í þessari grein og var fullur af áhuga. En aldrei nokkurn tíma hefir mér dottið í hug að leggja fæð á þann mann, sem embættið fékk. Milli okkar Sigurðar Sívertsens hefir jafnan verið eins gott og orðið getur milli samverkamanna. En hæstv. forsrh. talar um, hve mikil eldraun það hafi verið fyrir sig að koma vel fram við mig.
Svo var það, þegar ég fékk prófessorsembættið núna nýlega. Ég vildi ekki fara að atyrða hæstv. stj. fyrir þá veitingu, því að bæði er málið mér náið, og svo verður ekki veitt á annan réttlátari hátt en að veita eftir till. háskóladeildarinnar, eins og hæstv. stj. gerði að síðustu. Það eina, sem brugðið hefir út af þessu, var það, þegar hæstv. dómsmrh. þverskallaðist við að veita mér embættið eftir till. deildarinnar. (Dómsmrh.: Hefði haldið því lengur áfram). Annars hefir aldrei verið brugðið út af því, að farið hafi verið eftir till. háskóladeildar. Það var annars upplýst í Tímanum, að þetta hefði verið gert til þess að geta veitt eitt eða tvö embætti önnur. (Dómsmrh.: Það var bara verið að afsaka veitinguna). Ég leyfi mér að trúa því, að hæstv. ráðh. hafi veitt mér bara af því, að honum hafi fundizt það vera rétt.
Það er eins og kaldhæðni örlaganna, að þessi ágæti maður, sem þurfti endilega að fá embætti, skyldi vera svona illa staddur, eins og hv. 2. þm. Reykv. talaði um. Ég get hugsað mér, að það kynni að finnast ósköp lítil, aðeins sýnileg, ögn af hégómagirni hjá hæstv. forsrh. Það hittist svo á í fyrra um þessa þrjá gömlu umsækjendur um dósentsembættið, að hann var kominn í þá stöðu að hafa veitingarvaldið. Hann er þrátt fyrir allt kominn svo hátt, að hann getur veitt hinum báðum embætti við háskólann. Ég get vel unnað hæstv. forsrh. þeirra sárabóta.
Og ég veit, að hann á engum manni á landinu eins mikið að þakka og mér, — ja, þetta er náttúrlega of mikið sagt — hann á engum óskyldum manni eins mikið að þakka og mér alla sína upphefð í stjórnmálum. Því að aldrei hefði hann farið svona út í þau, ef hann hefði hreppt embættið.
Hæstv. stj. og hæstv. forseti ráða því, að hér er ekki tekin nema stutt brýna á hverjum degi, enda þykja þessar eldhússumr. vera orðnar nokkuð langar. Ég skal hvenær sem er verja það, þó að nokkrum tíma sé eytt til þess að ræðu stjórnarfarið í heild sinni. Þess er engin vanþörf, og er ólíkt meira umfangs en t. d. refamálið sæla, sem fjögur heil frv. og geysimikinn tíma þurfti til að afgreiða. En samt sem áður held ég, að rétt hefði verið, og hefði vel mátt takast, ef menn hefðu viljað, að ljúka við eldhússverkin í nótt sem leið. Hæstv. ráðh. hafa næstum ekki barizt heiðarlega. Þeir hafa hyllzt til þess að taka alltaf bezta fundartímann. Þeir hafa talað stundum allan kvöldfundinn út. Hingað hafa komið menn úr bænum, sem ekki hafa tíma til að hlusta á umr. nema á kvöldin, og þeir hafa kvartað yfir því að fá aldrei að heyra neitt nema þetta sama hjá ráðh. Hæstv. stj. fer líkt að eins og maður, sem réttirnir eru fyrst bornir fyrir við borðið og notar sér það til þess að taka allt af bezta bitann. Menn eru aldrei eins gunnreifir hér eins og á kvöldin og aldrei meira fjör í umr.
Hæstv. forsrh. fór að verja þær embættaveitingar sínar, sem ég hafði aðallega gert að umtalsefni. Ég sagði, að þegar stj. fylgdi ekki þeirri reglu sinni að veita með hlutdrægni, þá hrykkju menn við. Slíkar undantekningar þarf til þess að sanna regluna, eins og menn segja, og þær hafa komið fyrir.
Ég er sammála hæstv. stj. um það, að ekki sé nauðsynlegt, að þeir menn, sem valdir eru bankastjórar, hafi verið áður starfsmenn í bönkum. Alhliða störf í banka eru vitanlega góður skóli, svo langt sem þau ná. En það þurfti að veita manni, sem hefði verulega víðtæka þekkingu, fyrst og fremst á landbúnaði og atvinnumálum þjóðarinnar, og þó engu síður víðtæka fjármálaþekkingu og reynslu yfirleitt í þeim efnum. Hvernig hefir þessa verið gætt? Aðalbankastjórinn hefir ekkert af þessu. Það getur vel verið, að hann læri þetta allt. En það var ekki meiningin, að hann ætti að fá bankastjórastöðuna til þess að læra. Hann hefir verið prófessor í sögu; þar er hans sérgrein. Hann fær ekki að halda því starfi áfram. Hann virðist ekki hafa nein skilyrði fram yfir fjölda annara til að vera bankastjóri, nema ef vera skyldi það, að hann er óaðfinnanlegur flokksmaður hæstv. stj. Hæstv. forsrh. sagði, að allt blessaðist í höndum hans. Það er ágætt, ef hægt er að sýna að skyld störf hafi blessast hjá honum. Á hæstv. ráðh. við, að hann hafi samið margar bækur? Að hann hafi samið spjaldskrár og handritaskrár við bókasöfn? Það hefir blessast vel í hans höndum. Einhver sagði mér, ég held nærri því í gamni, að Þjóðvinafélagið hefði blómgazt undir stj. hans. Hvernig sem reynist bankastjórn dr. Páls Eggerts Ólasonar, þá hefir hann ekki sýnt það áður en honum var veitt embættið, hvort hann sé góður maður til þessa starfs.
En það var annar maður, sem einmitt þessi störf höfðu blessazt hjá. Hann varð að láta sér nægja að verða undirbankastjóri, en átti tvímælalaust að verða aðalbankastjóri, ef nokkurt réttlæti hefði ráðið hjá hæstv. stj. Það var Pétur Magnússon. Hann var búinn að stjórna þeim deildum, sem áður voru til. Hvaða ástæða gat verið til að setja hann hjá? Hæstv. ráðh. svaraði því, að hann væri líka bankastjóri. Þessir tveir meðstjórnendur eru ekki annað en eins konar gæzlustjórar. Og laun þeirra sýna, að þeim er ætlað að hafa aukastörf. Hann sagði, að ég hefði verið á móti stofnun Búnaðarbankans. Ég hreyfði andmælum við síðustu umr. málsins í fyrra, en það var ekki af því, að ég væri á móti málinu, heldur voru það tvö atriði, sem ég gat ekki fallizt á. Annað var það, að bankinn sýndist eiga að fá fé með því að draga svo og svo mikið af sparifé Landsbankans til sín. Afleiðingin hefði orðið, að með Búnaðarbankanum hefði verið sköpuð ný lánsþörf. Þá hefði aðeins verið aukið fé til eins atvinnuvegar en tekið frá öðrum og Landsbankinn skilinn eftir með alla þá lánsþörf, sem fyrir var í landinu. Af því hlaut að leiða aukna kreppu. Það er ekki óhugsandi, að þetta geti með tímanum gert það að verkum, að erfitt verði að koma fram lækkun á hinum háu vöxtum.
Þá drap ég á það, að mér hefði þótt óþarfi að hafa umbúnaðinn svo mikinn utan um þessa byrjun til lánveitinga handa landbúnaðinum, enda minnir slíkt sannast að segja mest á brynju sveinsins Davíðs. Benti ég á það í því sambandi, að ef einstakur maður hefði hér átt hlut að máli, mundi hann ekki hafa sett á fót nýja stofnun, heldur sameinað þessa lánastarfsemi Landsbankanum og falið umsjón hennar sérstökum fulltrúa, eða þá bætt einum bankastjóra við. En það virðist vera beint stefnumál hæstv. stj. að koma upp sem flestum stofnunum. Er ekki laust við, að slíkt skjóti skökku við sameiningarstefnuna, sem hæstv. dómsmrh. var að prédika fyrir öllum landslýð fyrir nokkrum árum, þegar hann reit greinaflokka sína „Komandi ár“. Þá var það Framsóknarflokkurinn, sem vildi sameina hin ýmsu embætti og stofnanir, en „Íhaldið“, sem öllu vildi sundra og dreifa. Nú hefir þetta snúizt við, að því er virðist. Nú er það Framsóknarflokkurinn, sem vinnur að því að sundra, og forðast eins og heitan eldinn að færa út verksvið hinna eldri stofnana, þó að hægurinn sé á með að gera það, til þess að geta sett á laggirnar sem flestar nýjar stofnanir.
Annað dæmi þessa sama er útgerð Esju, sem nú hefir verið tekin úr höndum Eimskipafélagsins og sett undir sérstaka stj. Og eins er um útvarpið, sem samkv. l. frá í fyrra átti að vera undir landssímastjóra, að öðru leyti en því, að hann átti ekki að hafa umsjón með því efni, sem útvarpað yrði, heldur skyldi það falið öðrum á hendur. Allt sýnir þetta greinilega sundrunarstefnu hæstv. núv. stj.
Að öðru leyti en þessu hefi ég ekki út á stofnun Búnaðarbankans að setja. Skal ég þó játa það, að ég hefi enga tröllatrú á því, að hægt verði að reisa landbúnaðinn við með lánsfé. Þegar búið er á óræktuðu landi eða lítt yrktu; gefur búskapurinn svo lítið af sér, að erfitt verður að standa straum af lánunum. Teldi ég því fyrir mitt leyti, að réttara hefði verið að veita bændum beinan styrk til jarðræktar og jarðabóta, því að þegar búið er að rækta, horfir það öðruvísi við að reka búskapinn með lánsfé. Ég er því hræddur um, að reynsla Búnaðarbankans verði sú, þar sem ræktunin er ekki lengra á veg komin en ennþá er hjá okkur, að erfiðlega gangi að ná lánunum inn, og að þetta verði því jafnvel hefndargjöf. Má í því sambandi minna á þá reynslu, sem fengizt hefir austanfjalls, um notkun lánsfjár til ræktunar og áveitugerða. Eftir henni að dæma virðist sem það hefði verið ólíkt hyggilegra að verja því fé, sem Búnaðarbankanum er ætlað, til þess að sjá bændum fyrir lánsfé til þess að styrkja jarðræktarframkvæmdir, og leggja þannig nauðsynlegan grundvöll að framtíð landbúnaðarins. En hæstv. forsrh. virðist ekki hugsa svo mjög um þetta. Fyrir honum virðist það vera aðalatriðið að koma á fót sem flestum stofnunum, til þess að honum gefist því fleiri embætti að veita.
Mér kemur annars í hug í sambandi við þetta, það sem hæstv. forsrh. sagði í þeim orðaskiptum, sem hann átti við hv. þm. Ísaf. út af kjördæmaskipuninni. Hann taldi enga nauðsyn á að breyta henni, vegna þess að með auknu lánsfé til sveitanna mundi fólksfjöldi þeirra vaxa. Undanfarið hefði vaxtarbroddurinn verið í kaupstöðunum. Fólkið hefði flutt í þá úr sveitunum, vegna þess að þar hefði verið nóg lánsfé. Nú yrði lánsfénu beint til sveitanna, og mundi af því leiða, að fólkinu fjölgaði þar. Vaxtarbroddurinn færðist úr kaupstöðunum yfir í sveitirnar, og myndi kjördæmaskipunin þannig lagast af sjálfu sér.
Þetta er það, sem vanalega er kallað að hafa endaskipti á orsök og afleiðingu, og minnti mig á grein, sem ég las fyrir nokkru í erlendu skopblaði. Þar var sýnt fram á það, að brosið væri í raun og veru ekki fólgið í öðru en að munnvikin teygðust út og upp á við, og væri því hægurinn á að fá menn til að brosa, ef hægt væri að finna upp vél, sem teygði munnvikin svo til. En það er bara sá gallinn á, að þó að tækist að finna upp slíka vél, er ekki víst, að það bros, sem hún framleiddi, vekti tilsvarandi hugarhræringu.
Lánsfé leitar ekki annað en þangað, sem þörf er á því, þó að hægt sé reyndar að pressa það í aðrar áttir með því að borga með því. Sjávarútvegurinn íslenzki á sitt upphaf þar, að einstakir dugnaðarmenn fara að gera út í stærra stíl og hentugra en áður tíðkaðist. Og þá stóð ekki á lánsfénu. Aukning þessa arðvænlega atvinnurekstrar kallaði á það. En hæstv. forsrh. ætlar að kalla á aukninguna með lánsfénu og er þó vitanlegt,að hún næst því aðeins, að landbúnaðurinn taki sömu stakkaskiptunum sem sjávarútvegurinn gerði á sínum tíma fyrir breyttar aðferðir og vinnuháttu. Lánsféð fer ævinlega þangað, sem skilyrði eru fyrir það að vinna. (LH: Líka þó að það sé ekki til?). Það hefir ekki verið neinn skortur á því. Þó að sjávarútvegurinn og kaupstaðirnir hafi að vísu dregið til sín lánsféð, hefir landbúnaðurinn þó alltaf verið látinn sitja fyrir, og eftirspurnin úr sveitunum eftir lánsfé hefir aldrei verið meiri en hægt hefir verið að fullnægja, eftir því sem bankastjórar bankanna hér hafa upplýst. Þessi réttlæting hæstv. forsrh. á núveranda kjördæmaskipulagi er því alveg dæmalaus fjarstæða. En hæstv. ráðh. verður að afsaka það með einhverju, að hann stendur á móti því, að þeim sem í kaupstöðunum búa, sé veittur slíkur íhlutunarréttur um opinber mál, sem þeim ber. Og það sýnir skarpleik hæstv. ráðh., að hann skyldi geta fundið þetta upp sem ástæðu fyrir aðstöðu sinni í þessu máli, að óþarft sé að breyta kjördæmaskipuninni, vegna þess að fólkinu muni fjölga í sveitunum fyrir starfsemi Búnaðarbankans.
Ég skal ekki ræða mikið um útvarpsstjórann að þessu sinni, enda gerist þess ekki þörf, þar sem menn munu almennt sammála mér um það, að ekki verði mikils réttlætis að vænta frá honum í þeirri stöðu. Hæstv. forsrh. þótti það koma úr hörðustu átt, þegar ég og fleiri, sem hefðum skorað á stj. í fyrra að flýta útvarpinu, værum nú að áfellast hann fyrir veitingu útvarpsstjórastöðunnar. Það er alveg rétt, að þingið í fyrra skoraði á hæstv. stj. að flýta útvarpinu, en það er dálítið annað en að skorað hafi verið á stj. að ráða útvarpsstjóra sem fyrst. En það er einmitt það, sem hæstv. forsrh. hefir gert og verðskuldar að fá áminningu fyrir. Hann byrjar á neglunni, ræður útvarpsstjóra löngu áður en nokkrar líkur eru fyrir að útvarpið fari að taka til starfa. Slíkt var auðvitað ekki tilætlun þingsins; það bar útvarpið fyrir brjósti, en ekki hinn væntanlega útvarpsstjóra.
Ég get ekki stillt mig um að geta þess hér, að alþingishátíðarnefndin hafði til meðferðar fyrir skömmu einkennilegt erindi frá útvarpsstjóranum, þar sem hann telur það hina mestu vanvirðu fyrir okkur Íslendinga, að ekki skuli verða hægt að útvarpa fréttum af alþingishátíðinni. Hyggur hann, að þetta verði tekið sem vitni þess, hve langt við séum á eftir öðrum þjóðum, og skoraði því á n. að leggja fram fé, til þess að koma á fót bráðabirgðaútvarpi.
Þetta erindi útvarpsstjórans sýnir það greinilega, eins og menn vissu reyndar áður, að engar líkur eru til þess, að útvarpsstöð rísi hér upp á næstunni, þó að stj. hafi þegar ráðið mann til þess að sjá um rekstur hennar. Og ekki nóg með það, heldur gerði stj. þennan mann einnig út í austurvíking. Hefir hann nú herjað þar um stund, en með þeim mun frá því, sem áður var, að þá öfluðu menn sér fjár og frama, en hann mun hafa eytt hvorutveggja. Það er annars eftirtektarverð játning, sem kemur fram í því hjá hæstv. stj., að eftir að hún hefir ráðið útvarpsstjórann, ber hún fram frv., þar sem það er tekið skýrt fram, að ríkja skuli eindregið hlutleysi um allt val þess efnis, er varpað verði út. Það er eins og hæstv. stj. hafi fundizt, að fyrirbyggja þyrfti með l., að þarna yrði beitt hlutdrægni og ranglæti, eftir að búið var að ráða Jónas Þorbergsson sem útvarpsstjóra. Ég er nú hálfhræddur um, að erfitt verði að fyrirbyggja þetta, en það er gott að hafa viðurkenningu hæstv. stj. fyrir því, að ástæða sé til að standa á verði í þessu efni, þar sem fyrrv. ritstjóra Tímans hefir verið falin umsjón útvarpsins.
Hæstv. forsrh. þóttist vera saklaus af því að hafa sýnt pólitíska hlutdrægni, þó að hann hefði veitt jafnaðarmanninum Sig. Baldvinssyni póstmeistaraembættið, þar sem þessi maður væri ekki flokksmaður hans. Það er nú kunnugt, að hæstv. núv. stj. hefir orðið að ganga jafnvel enn lengra í hlutdrægni, til þess að geta veitt jafnaðarmönnum stöður, fyrir þann stuðning, sem þeir veita henni. Það liggur meira að segja við, að segja megi, að þeir séu aðalhestarnir á jötunni. (Forsrh.: Þeir eru ekki stuðningsmenn stj., heldur hlutlausir). Ef svo er, að þeir neiti stj. um stuðning sinn, virðist það því undarlegra; að þeir skuli verða að fá hverja stöðuna á fætur annari hjá hæstv. stj. Er þess skemmst að minnast, að jafnaðarmenn heimta nú bankastjórastöðu við Útvegsbankann og munu fá hana. Eiga þeir þó alls ekki að fá þeim vilja sínum framgengt, því að þeir hafa gert sig bera að fjandskap við þessa stofnun. (HG: Hvaða fjandskap hafa jafnaðarmenn sýnt Útvegsbankanum?) Frá því að Ólafur Friðrikssonvar ritstjóri Alþýðublaðsins, hefir ekki linnt ofsóknum jafnaðarmanna gagnvart þessari stofnun, og meðan á bankamálinu stóð, var honum falið að skrifa um það, til þess, að sýna fjandskapinn.
Deilurnar milli mín og hæstv. forsrh. hafa aðallega staðið um veitingu póstritaraembættisins. Ég tók þá afstöðu, að hæstv. ráðh. hefði ekki veitt Magnúsi Jochumssyni hana af persónulegum ástæðum. Ég gat engar aðrar ástæður fundið. Magnús Jochumsson hafði í mörg ár gegnt stöðu, sem er næst póstritaraembættinu, og þjónað því sjálfu í 1½ ár. Hann hefir hin beztu meðmæli frá aðalpóstmeistara. Hvað lá því nær en veita honum þetta embætti, sérstaklega þar sem hæstv. ráðh. veitti engum hinna umsækjendanna það? Hvað bar til þess, að hæstv. ráðh. veitti Magnúsi ekki þessa stöðu, heldur manni, sem ekki hafði sótt um hana, og var andstæðingur hæstv. ráðh., að því er hann segir? Hæstv. ráðh. hefir gefið það í skyn, að hann hafi ekki treyst Magnúsi Jochumssyni til að bera hina fjárhagslegu ábyrgð, sem þessari stöðu væri samfara. Það er eina skýringin, sem hæstv. ráðh. hefir gefið á því, að hann veitt Magnúsi ekki embættið. En er nokkuð að Magnúsi Jochumssyni í þessu efni? Aldrei hefi ég heyrt neitt um það, að minnsta kosti. Það var því í alla staði eðlilegt, að ég tæki þá skýringu á þessu, sem fram hefir komið í erindi því, sem Magnús Jochumsson hefir sent til þingsins. Þar segir svo:
„Aðalpóstmeistari lagði til við ráðh., að mér yrði veitt embættið, en nærri því var ekki komandi, og mun ráðh. hafa látið nokkuð dólgslega og haft á orði, að meðan hann færi með völd, skyldi Magnús Jochumsson aldrei fá neitt, sem hann sækti um, vegna þess að hann hefði skrifað niðgrein um sig og látinn bróður sinn fyrir fimm árum síðan“.
Meðan þetta er ekki afsannað og engar aðrar ástæður eru færðar fyrir því, að hæstv. forsrh. veitti Magnúsi Jochumssyni ekki þessa stöðu, verð ég að halda mér við þessa skýringu, þrátt fyrir það þó að ég hafi ekki reynt hæstv. forsrh. að slíku. En allt verður einu sinni fyrst. (Forsrh.: Það væri æskilegt að fá að heyra meira úr þessu bréfi). Ég skal játa það, að bréfið er nokkuð svæsið í garð hæstv. ráðh., en þessi maður hefir sér það til afsökunar, að honum hefir leikið mjög hugur á að fá þetta embætti, alveg eins og var með hæstv. ráðh. og dócentsembættið hérna um árið.
Magnús Jochumsson víkur að því í þessu bréfi sínu, að einn af umsækjendunum um póstritaraembættið hafi þýtt bannlögin á frönsku fyrir hæstv. ráðh. Dettur mér í hug, hvort það muni rétt, að hann hafi fengið 1000 kr. fyrir þetta viðvik, eins og sagt er. Þessi þýðing var send til Þjóðabandalagsins, en sem betur fór, lenti hún í höndum einhverra góðra manna, sem sendu hana aftur með þeim ummælum, að hollara væri fyrir sæmd landsins, að önnur ný yrði gerð. Var hið argasta hrognamál á þessari þýðingu, setningaskipun öll bjöguð og brengluð, og kynferðum orða misþyrmt í mesta máta. Er mjög illt fyrir landið, ef slíkt og annað eins kemur fyrir, og má með engu móti endurtaka sig. Hinsvegar þýðir ekki að fárast um orðinn hlut. (PO: Hæstv. forsrh. hefir lofað því, að, slíkt skuli ekki koma fyrir aftur). Ef svo er, tek ég hér með við iðrun hans og veiti honum aflausn.
Hæstv. forsrh. þótti lítið hafa verið fundið að embættaveitingum sínum, þegar litið væri til þess, hve mörg embætti hann hefði veitt í stjórnartíð sinni. Mér er kunnugt um það, að margir, sem hlustuðu á ræðu mína, sem var illa undirbúin og illa flutt, voru mjög undrandi, ekki af því, að þeir hefðu ekki heyrt um þær embættaveitingar hæstv. stj., sem ég drap á, heldur af hinu, hversu mikillar spillingar gætti hjá stj. í embættaveitingum hennar, þar sem hægt væri að gegnumganga listann yfir þær, án þess að rekast á nokkurt dæmi um óhlutdræga veitingu. Hæstv. stj. hefir beitt hlutdrægni við veitingu hvers einasta meiraháttar embættis, sem kunnugt er um, að hún hafi veitt á þessu ári, og ég efast ekki um, að sama máli gegni um veitingu hæstv. stj. á hinum smærri embættum, þó að ég kunni þar fá dæmi að nefna, af því að af þeim veitingum fara færri sögur.
Ég skrifaði niður hjá mér ýmislegt, af því, sem hæstv. forsrh. sagði um Íslandsbankamálið, en af því að það snerti ekki mína ræðu, held ég, að ég leiði hjá mér að svara því. Hæstv. ráðh. sagði meðal annars, að um það hefði verið deilt, hvort standa ætti við allar skuldbindingar bankans eða ekki. Þetta er ekki rétt.
Hæstv. fjmrh. talaði um að deilan hefði staðið um skuldbindingar Íslandsbanka, en það er rangt, því að stjórnin hafði ekki annað fram að bera en að það skyldi ekki staðið við þær. Frá upphafi vildi hún leggja hann niður og taka bú hans til skiptameðferðar, og þess vegna er það hlægilegt, þegar stjórnarblöðin hamra á þeirri heilögu einfeldni, að það sé vegna hinna föstu taka stj., að tekizt hafi að safna hlutafé til bankans.
Stj. tók málið hvorki föstum né lausum tökum. Hún vildi bara keyra skiptameðferð í gegn og ekkert annað, og ef þingið hefði ekki tekið í taumana, þá hefði allt farið á annan veg. — Ég get fúslega viðurkennt, að ég varð fyrir töluverðum vonbrigðum yfir því, að stj. skyldi ekki segja af sér eftir slíka útreið, og ég get ekki séð, að það sé af óhreinum hvötum að ég vil að stj. falli, því að hún hefir fyllilega verðskuldað það. Mér finnst það illt og óviðunandi að verða að samþ. slíkt frv., sem hér var um að ræða, í hendurnar á þeirri stj., sem ég gat ekki borið traust til í þessu máli, því að hana skipa einmitt mennirnir, sem búnir voru að sýna sig að berum fjandskap við málið og að þeir voru ekki færir um að eiga við það.
Annars verð ég að segja það, að mér virtist hæstv. fjmrh. óvenjulega hvass og jafnvel dálítið reiður, og mér þykir gaman að því, að það er eins og ég sé kallaður til að hrista af honum slenið, eins og núv. ritstjóra Tímans, sem aldrei getur opnað augun, en fylltist ógurlegri vonzku, svo sem menn mega muna, er ég reit þingsöguna forðum.
Hæstv. fjmrh. virtist hafa löngun til að ræða við mig um rit mitt um Pál postula, en ég sé ekki ástæðu til, að við gerum það núna, heldur einhverntíma síðar í góðu tómi. Annars vil ég geta þess, að mér hefir fundizt eins og andstæðingar mínir séu gramir við mig út af því, að mér tókst að semja þá bók þrátt fyrir allar annirnar. Þeim er auðsjáanlega illa við, að mér skuli hafa auðnazt að semja vísindarit, sem hefir fengið hina ágætustu dóma hjá sérfróðum mönnum og þeim, sem ég hefi engan kunningsskap við. Andstæðingum mínum þykir leiðinlegt að geta ekki gefið mér það að sök, að ég vanrækti starf mitt sökum stjórnmálanna, en hæstv. fjmrh. þarf ekki að láta sér gremjast þetta, enda get ég sagt honum það, að ég hefi tilbúin fleiri slík rit undir prentun, en það, sem allt strandar á er kostnaðurinn við slíkar útgáfur. Nei, ég hygg að hæstv. stj. verði að finna einhverja aðra ásókun en þá gegn mér, að ég vanræki verk mitt, ef hún vill leitast við að setja mig af.
Hæstv. fjmrh. var gramur út af því að ég hafði sagt, að óreiða væri á landsreikningunum, og að hann kynni ekki sitt verk. Til að sanna þau orð mín get ég bent á það, að nú er búið að útbýta fjáráukalögunum, og þá kemur það í ljós, að í stað þeirra 128 þús. kr., sem búið er að ávísa framkvæmdastjóra alþingishátíðarnefndar, stendur, að honum hafi verið ávísaðar 350 þús. kr. Þetta sýnir, að hæstv. fjmrh. ávísar út um hvippinn og hvappinn því fé, sem alþingishátíðarnefndin á að hafa til umráða, og það sýnir, að bókfærslan er ekki í lagi, og hæstv. fjmrh. má vara sig á því, að slíkt kemur í ljós þegar Magnús Kjaran fer að gera upp reikningana, og hann verður að vara sig á að láta hvern þann, sem kann að krefjast, fá fé út úr ríkissjóði og skrifa það síðan á kostnað hátíðarnefndar.
[Fundarhlé].
Ég vil skjóta því til hæstv. forseta, að með því að allmikil ókyrrð er í d., þá vildi ég helzt, að fundi væri slitið í bili, til þess að ég geti haldið ræðu mína í meiri kyrrð síðar: Það liggur hvort eð er fyrir að fresta umr. innan skamms, vegna mannfagnaðar þess, sem okkur er búinn í kvöld, og því álít ég, að út á eitt kæmi, þótt fundi sé slitið strax.
*) Ræðuhandr. óyfirlesið.