17.03.1930
Neðri deild: 55. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1405 í B-deild Alþingistíðinda. (1884)

13. mál, Skeiðaáveitan o.fl.

Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen):

Eins og menn sjá af nál. á þskj. 289, þá gat ég ekki orðið samnm. mínum samferða um afgreiðslu þessa máls. En eins og ennfremur er getið um í þessu nál., var það ekki af því, að ég álíti ekki eins og þeir, að úr því sem komið er hag þessa hreppsfélags, Skeiðahrepps, þá verði ekki hjá því komizt, til þess að tryggja framtíð manna á þessu svæði, að ríkissjóður hlaupi undir bagga og rétti nokkra hjálparhönd. Og það er ekkert nýtt, að þetta sé gert, því að það er búið 3 undanfarin ár að borga upp í vexti og afborganir af þessu áveituláni úr ríkissjóði 6.000 kr. á ári. Á síðasta þingi var svo samþ. heimild fyrir stj. til þess að greiða það af þessari áveituskuld, sem nauðsynlegt væri, eða það, sem bændum á þessu áveitusvæði væri ókleift að greiða sjálfum. Svo að Alþingi er búið að samþ. á 4 undanförnum þingum heimildir fyrir stj. til þess að taka þátt í greiðslu skulda manna á þessu svæði. Og sú samþykkt, sem gerð var um þetta á síðasta þingi, gengur það langt, að landsstj. hefir það nú í sinni hendi og getur óátalið af meiri hl. Alþingis, sem samþ. þessa heimild í fyrra, greitt það af skuldum þessara bænda, sem þeir, að áliti nefndar þeirrar, sem fjallað hefir um ástæður manna austur þar, eru ekki færir um að greiða. Stj. hefir ekki viljað nota þessa heimild og skotið málinu á ný til úrslita hér á Alþingi. Hefir hún í því efni tekið upp þær till, sem þessi n. hefir gert, og byggt frv. sitt algerlega á þeim. Þess vegna er aðeins um það að ræða á þessu þingi, þegar litið er til þess, hvað búið er að samþ. áður, og þá sérstaklega á síðasta þingi, hvaða leiðir eigi að fara til þess að létta þessari skuldabyrði af Skeiðamönnum. Og það er um leiðir, sem skoðanirnar skiptust í fjvn.

Meiri hl. hefir fallizt á að leggja til, að ríkisstj. taki að sér greiðslu á öllum áveituskuldunum, sem eru, eftir því sem n. gefur hér upp, 264878,84 kr., þegar frá eru dregnar skuldir, sem hvíla á tveimur utanhreppsjörðum, sem félag eitt, Titan, á. Í þessu frv. er farið fram á, að stj. sé gefin heimild til þess að taka að sér greiðslu þessara skulda, að því tilskildu; að sett skilyrði séu uppfyllt; og þessi skilyrði eru í tveimur, eða öllu heldur þremur liðum, þar sem í þriðja liðnum er gert ráð fyrir, hvernig ríkissjóður eigi að ná nokkrum hluta af þessum útgjöldumi aftur af þeim Skeiðamönnum.

Í fyrsta lagi er það gert að skilyrði, að skipuð verði þriggja manna n. af atvmrh., til þess að leita nauðasamninga fyrir hönd Skeiðamanna við þá lánardrottna, sem eiga hjá þeim annað fé heldur en það, sem tekið hefir verið að láni til Skeiðaáveitunnar.

Ég verð að benda á það, að síðasta þing samþ. fyrir sitt leyti, að létta mætti að verulegum mun á bændunum austur þar. Ég sé því enga ástæðu fyrir þingið að fara að grípa inn í fjárráð þeirra manna, sem áveituskuldin hvílir á og eru skuldugir ýmsum stofnunum.

Þegar athugað er skattaframtal búenda í Skeiðahreppi 1928, kemur í ljós, að þeir eiga 148.354 kr. eign umfram skuldir. Þar er áveituskuldin ekki talin með. Það hlýtur því öllum að vera ljóst, að ef horfið er að því ráði, sem ég legg til, að áveituskuldunum sé létt af þeim að ¾ hlutum, svo að ¼ hvíli á þeim, verður skuldlaus eign þeirra 82 þús. kr. að minnsta kosti. Ég ætla, að ef athugaðar væru skattskrár allra hreppsfélaga á landinu, myndu fyrir finnast mörg hreppsfélög, sem eiga minni eign skuldlausa en hreppsfélag Skeiðamanna. Afleiðingin af því að ganga inn á skuldagreiðslur þessara manna af kostnaði áveitunnar að öllu leyti væri sú, að þau hreppsfélög, sem enga skuldlausa eign ættu eða aðeins litlar eignir fram yfir skuldir, færu að leita á náðir Alþingis um styrk, gegn því að aðrir lánardrottnar þeirra afskrifuðu svo og svo mikið af skuldum þeirra. Þetta getur verið að fara út á hættulega braut fyrir ríkissjóð, hvað þá ef gengið er svo langt, sem hæstv. stj. gerir ráð fyrir í þessu frv., að láta semja við einstaka menn og stofnanir um allar skuldir og greiðslur þeirra. Ég vil vekja athygli á þessu og vænti, að hv. þdm. geti ekki fallizt á þessi ákvæði frv.

Annað skilyrði, sem sett er, er það, að þeir greiði á árunum 1930–1980, eða í 50 ár, 2% af höfuðstól lánanna. Hefi ég áður getið um, hver þau eru.

Það er náttúrlega ekkert við þessu að segja og því síður hefi ég neitt út á það að setja, þar sem ég í mínum till. geri líka ráð fyrir, að þeir greiði nokkuð af þessum kostnaði. En mér skildist það vera nokkuð meira, sem þeir greiða samkv. þessu en ég geri ráð fyrir í mínum till., þrátt fyrir það, þótt árlegar greiðslur eftir þeim séu nokkuð hærri en eftir frv. Í þess stað verða þær færri.

Þá er 3. atriðið, sem í raun og veru má telja skilyrði fyrir því, að Skeiðamenn fái þær ívilnanir, sam ég nú hefi nefnt. Það er um það, hvernig ríkissjóður eigi að vinna upp það tap, sem hann líður við þessar till. Ef ég skil hv. frsm. meiri hl. rétt, þá er það tap um ¼ millj. kr. (JÓl: Já). Og leiðin til þess að vinna upp þennan halla er sú, að leggja á svokallaðan verðhækkunarskatt. Það hefir töluvert verið ritað hér á landi um verðhækkunarskatt yfirleitt. Það er alkunnugt, að það er einn liður á stefnuskrá þeirra manna, sem hallast að þjóðnýtingu eða sósíalisma. Þeir hafa það á stefnuskrá sinni til þess að gera fasteignir einstakra manna að eign ríkissjóðs. Það eru mismunandi leiðir, sem menn vilja fara til að koma þessu fram, og er þessi verðhækkunarskattur ein þeirra. Um þetta hefir verið allmikið ritað í tímarit eitt, sem nefnist Réttur og gefið er út á Norðurlandi. Þessi stefna hefir fengið litlar undirtektir hér á landi og mætt mestri andúð í sveitum. Hér á nú að fara að innleiða þessa stefnu með því að láta þá Skeiðamenn greiða þann halla, sem ríkissjóður bíður við það að hlaupa undir bagga með þeim, með verðhækkunarskatti.

Þessi verðhækkunarskattur er eftir þessu frv. tvennskonar. Fyrst og fremst þannig, við bændur þar austur frá borgi skatt af þeim mismun (hækkun), sem verður á fasteignamati 1921 og 1940, og eftir það af þeirri hækkun, sem verður á matinu á 10 ára fresti við endurtekið fasteignamat til 1980.

Ég býst við, að á tímabilinu 1940–1950 verði hægt að fá nokkurn skatt á þennan hátt. Þetta kemur af því, að fyrsta fasteignamatið, sem gert var á árunum 1916–1920 og staðfest var árið 1922, var að miklu leyti miðað við verðlag fyrir stríð, og þess vegna verður mikill munur á fasteignamatinu 1922 og söluverði á þessu tímabili. Hinsvegar er víst, að um fasteignamat, sem fer fram á þessum árum, verður mjög stefnt að því að miða við raunverulegt verðmæti fasteignarinnar eins og það er á hverjum tíma og gefnar fastar reglur um, hvernig miða skuli við gildi peninga, hvert sem það nú er. Það er því ekki vafa undirorpið, að þegar fram líða stundir, verður lítill munur á fasteignamati og söluverði jarða.

Hér virðist því, að þessi aðferð til að leita ríkissjóði tekna njóti sín ekki nema á árunum 1940–1950, því þá kemur fram munurinn á fasteignamatinu 1922 og söluverði á þessum tíma. Hinsvegar álít ég, að hér sé aðeins um óverulega tekjugrein fyrir ríkissjóð að ræða, en stefna sú, sem hér kemur fram, er sú sama fyrir því.

Í öðru lagi á að taka söluskatt af jörðum á þessu svæði. Á hann að vera 20% af því, sem söluverðið er hærra en fasteignamatið á sama tíma. En séu gerðar jarðabætur eða húsabætur á þessu tímabili, má draga það frá, sem þær umbætur eru metnar, svo að skatturinn nái ekki til þeirra.

Um þetta er það sama að segja og hitt. Ég geri ráð fyrir því, að af þessu fáist nokkrar tekjur á tímabilinu 1940–80, því þá er miðað við fasteignamatið 1922. En svo mun þessi tekjustofn sæta sömu forlögum og hinn skatturinn og gefa lítið af sér. Álít ég þetta ennþá óvissara en hitt. Það eru ótal leiðir til þess að fela raunverulegan mismun á fasteignamati og söluverði. Ég ætla aðeins að benda á eitt dæmi þessu til sönnunar.

Hér í Reykjavík giltu einu sinni svokölluð húsaleigulög. Mátti eftir þeim ekki leigja húsnæði nema fyrir ákveðið gjald. En þá var farið þannig að að samið var um lögmæta greiðslu, en raunveruleg greiðsla varð allt önnur og gerð bak við tjöldin. Ég geri ráð fyrir, að svipað fari um kaup og sölu á jörðum þar austur frá. Vænti ég því, að af þessu verði aðeins örlítill hagur fyrir ríkissjóð og þess vegna álít ég ekki áhorfsmál að láta slíkt falla niður og vera um leið laus við að innleiða þessa skattastefnu, sem kemur fram í frv.

Í 7. gr. frv. er eitt atriði, sem ég vil minnast á, þótt það sé ekkert stefnuatriði. Þar segir svo:

„Nú greiðir jarðeigandi að fullu hluta jarðar sinnar af stofnkostnaði áveitunnar áður en 10 ár eru liðin frá því lög þessi öðlast gildi, og er þá jörð hans undanþegin öllum skatti samkv. lögum þessum“.

Ég vil nú spyrja: Er það meiningin, að maður, sem eftir 11–15 ár greiðir allar skuldir, sem hvíla á eign hans, eigi að sæta þessari kvöð framvegis? Það er ekki hægt að sjá það af frv., að þessari kvöð verði þá létt af. Þrátt fyrir það, þótt skuldin verði greidd að fullu, hvílir þessi kvöð því á jörðinni eftir sem áður.

Þá er eitt atriði enn, sem ég vil benda á, þegar er að ræða um aðstoð ríkissjóðs til Skeiðaáveitunnar, og það er, að ég býst við, að atvmrh. setji reglur um eftirlit með framkvæmd Skeiðaáveitunnar, eða svo að ég noti þau orð, sem standa í grg. frv., bls. 16, „fullkomin afskipti ríkisins um viðhald og starfrækslu áveitunnar framvegis“. Þetta er líka tekið upp í frv. sjálft (11. gr.), þar sem talað er um viðhald og starfrækslu.

Ég lít svo á, að með þessu fullkomna eftirliti með Skeiðaáveitunni framvegis taki ríkissjóður á sig svo miklar skyldur, að hann verði að leggja fram fé til áveitunnar í framtíðinni. Það, sem stendur í skýrslu n., styður ennfremur mál mitt. Not áveitunnar eru eigi svo mikil nú, sem ætla mætti, og orsakast það m. a. af vatnsskorti og ónógri framræslu. Það er enn mikil vinna eftir við áveituna, og þegar ríkissjóður tekur að sér fullkomin afskipti, virðist leiða af því, að ríkissjóður verður líka að taka á sig einhverjar skyldur.

Skeiðabúum kemur það vitanlega bezt, að fljótt greiðist úr um lán þeirra, og lá á þann hátt, að ríkissjóður leggi þetta fé fram, og það er mikils virði fyrir þá, að það sé gert fljótt. En auk þessa er það mikils virði fyrir ríkissjóð, að hér sé um hrein skipti að ræða.

Þær till., sem ég ber hér fram, eru viðurkenndar af hv. frsm. meiri hl. fyrir það, að það skíni út úr þeim fullkomin velvild og samúð með þeim erfiðu ástæðum, sem menn á þessu svæði eiga við að búa. Mínar till. gera ráð fyrir því, að hér sé um hrein skipti að ræða milli ríkissjóðs annarsvegar og Skeiðamanna hinsvegar.

Skal ég þá víkja nokkrum orðum að brtt. mínum og efni þeirra. Ég ætla, að það, sem ég meina með mínum brtt., sé svo skýrt framsett, að allir, sem það lesa, geti fyllilega áttað sig á því. Ég ætla aðeins í stuttu máli að taka fram örfá atriði.

Það er þá fyrst, að atvmrh. sé heimilt, með þeim skilyrðum, sem þar eru sett, að greiða úr ríkissjóði að hálfu leyti þau lán, sem á Skeiðabændum hvíla vegna áveitunnar. Þar frá dragast þau lán, sem hvíla á býlum utan Skeiðahrepps.

Þá er það skilyrði fyrir því, að þetta verði gert, að ríkisstj. nái samkomulagi um eftirgjöf á ¼ hluta af eftirstöðvum lána þeirra úr veðdeild Landsbankans og viðlagasjóði, sem hvíla á eigendum jarðanna, og jafnframt er sett ákvæði um það, að stjórnum veðdeildar Landsbankans og Búnaðarbankans sé heimilað, hvað ríkissjóð snertir, að gera þetta. Þetta er beint tekið fram, svo enginn misskilji það, að ef samkomulag næst, er jafnframt fengið samþykki Alþingis til að gera þetta.

Þá er ¼ hluti eftir og er ætlazt til, að Skeiðamenn greiði hann samkv. þeim samningi, sem nú gildir um alla lánsupphæðina, eða á því tímabili, sem í samningnum stendur um þetta. Vextir og afborganir af þessu verða 5 þús. kr. árlega, og eftir því, sem Skeiðaáveitunefndin áleit um gjaldþol þessara manna, er þeim fært að greiða 5–6 þús. kr. árlega, og í mínum till. var byggt á því, hvað Skeiðamenn gætu árlega innt af hendi.

Þá er haldið óbreyttu ákvæði, sem er til enn frekari tryggingar því, að veðdeild Landsbankans og viðlagasjóður fái sitt greitt. Þá kemur ábyrgð hreppsnefndar, svo málið þurfi ekki að standa á því, að ekki sé örugg trygging fyrir því, sem eftir stendur af skuldinni.

Þá er eitt viðbótarákvæði í brtt. mínum um það, að fé það, sem þegar hefir verið greitt úr ríkissjóði upp í skuldir bænda í Skeiðahreppi vegna áveitunnar, skuli ekki endurkræft. Í frv. stj. er ekkert um það, hvernig um það fé skuli fara. Eins og tekið hefir verið fram, hafa verið greiddar úr ríkissjóði í þessum tilgangi 6.000 kr. í 3 ár, eða alls 18.000 kr.

Hv. frsm. meiri hl. vék lítillega að brtt. mínum, og það, sem hann taldi þeim aðallega til foráttu, var það, að ríkisstj. mundi ekki takast að ná samkomulagi við stjórnir Landsbankans og Búnaðarbankans um eftirgjöfina af þessum hluta lánsins. Ég held þetta sé ástæðulaust, og það því fremur, sem í frv. felst fullkomin heimild til að gera það, svo ekki þarf að óttast átölur Alþingis, þótt slíkt sé gert.

Þá minntist hv. frsm. meiri hl. á, að lagt væri inn á hættulega braut, ef samþ. væru brtt. mínar, að því leyti, sem þar er farið fram á, að veðdeildin gefi eftir sinn hluta af skuld Skeiðamanna. Það mundi veikja tiltrú manna á veðdeildinni, svo erfiðara yrði að afla henni fjár með bréfasölu. En ég held það sé alveg ástæðulaus ótti. Hann getur a. m. k. ekki byggzt á öðrum möguleika en þeim, að Alþ. fari gálauslega með vald sitt í þessu efni, þar sem það getur alveg haft ráð á veðdeildinni.

Ég hefi leitað mér upplýsinga um, hvað mikið fé liggur í varasjóðum 1., 2., 3. og 4. flokks veðdeildarinnar. En þegar einn flokkurinn er útseldur, erfir næsti flokkur varasjóð hans, og svo koll af kolli. (Forsrh.: Varasjóður 1. flokks rennur til Ræktunarsjóðsins). Þessi ákvæði gilda eingöngu um varasjóð 1. fl. veðdeildarinnar, en um varasjóð hinna flokkanna fer svo sem ég hefi sagt. Varasjóðir þessir nema nú 282 þús. kr., svo þó til kæmi, að veðdeildin gæfi eftir 66 þús. kr., væri ekki hægt að líta svo á, að um neina hættu væri að ræða. Enda er það svo, að málum veðdeildarinnar er skipað að öllu leyti eftir ákvörðunum Alþ. á hverjum tíma, svo ekki þarf að vera um neina hættu að ræða. Eiginlega er varasjóðurinn eign ríkissjóðs, svo það liggur í hlutarins eðli, að Alþingi hefir fulla heimild til að gera þar á þá skipan, er því sýnist. Ég held því, að þetta sé í sjálfu sér engin ástæða til að ekki megi fara þá leið í þessu máli, sem ég hefi lagt til, að farin yrði.

Það er nú svo, að ekki einungis bankarnir tveir, heldur einnig sparisjóðirnir, hafa tapað miklu fé á undanförnum árum, með eftirgjöfum og á annan hátt. En það er alveg að hverfandi litlum hluta, sem þau töp hafa stafað af örðugum kringumstæðum og gjaldbresti í sveitum landsins. Mér finnst því undarlegt, ef ekki má orða það, að lánsstofnanir gefi ofurlítið af skuldum eins sveitahrepps eftir, þegar það er talið nauðsynlegt, að létta skuldabyrði hlutaðeigandi bænda. Ég sé ekki annað en það sé vel forsvaranleg tilhögun, að skipta niður á milli lánsstofnananna og ríkissj. þeim skuldum Skeiðabænda, sem óhjákvæmilegt er að létta af þeim, til þess þeir geti komið fyrir sig fótunum og notfært þau jarðargæði, sem þar eru, og þær umbætur, sem þar hafa verið gerðar.

Ég þarf svo ekki að fara mikið fleiri orðum um þetta. Sjálfum virðist mér vitanlega mínar till. heppilegasta úrlausn þessa máls fyrir mennina, sem eiga við þær erfiðu kringumstæður að búa, sem lýst hefir verið. Og ég held, að það sé bezt fyrir ríkissjóð líka, að gera þetta allt hreint upp strax í byrjun, eins og mínar till. gera ráð fyrir.

Að lokum eru það aðeins eitt eða tvö atriði í nál. Skeiðaáveitunefndarinnar, sem ég ætla að minnast á með örfáum orðum. Er það sérstaklega það, sem hún segir um ástæðurnar til þess, að komið er fyrir bændunum á þessu svæði eins og komið er. Ég er nú ekki nógu kunnugur þarna austur frá til að dæma um þær ástæður. En undarlegt þykir mér, eftir þeirri kynningu, sem ég hefi á bændum í mínu héraði og annarsstaðar, ef það er aðalorsökin til ófarnaðar Skeiðabænda í fjármálum, að þeir hafi haft of greiðan aðgang að lánum. Það væri harður dómur, ef slíkt væri sagt um bændur þessa lands yfirleitt, enda er hann svo langt sem mín þekking nær allsendis rangur. Ég get ekki, vegna ókunnugleika, dæmt um, hvort hann er réttur um þessa bændur. En það vakti athygli mína, að í nál. er það talið aukaatriði, hvað kostnaðurinn við áveituna fór gífurlega fram úr áætlun, vegna aukinnar dýrtíðar og annara orsaka. Og hin geysilegu útgjöld, sem menn urðu fyrir vegna fóðurbætiskaupa í harðindunum 1920 og komu illa við fjárhag margra bænda, — þarna eru þau líka talin aukaatriði. Þó ég geti ekki dæmt um orsakirnar til skulda Skeiðabænda, þá býst ég við, að í dómi n. séu nokkrar öfgar. Að svo miklu leyti sem það eru áveituskuldirnar, sem eru að vaxa bændum yfir höfuð, finnst mér aðalástæðan hljóta að vera sú, auk þess hvað kostnaðurinn var mikill, að áveitan hefir ekki gefið nógan arð til að svara þeim kostnaði, sem í hana er búið að leggja. En ef ekki hefði verið um áveituskuldirnar að ræða, hefði áreiðanlega ekki verið farið að bera þessa bændur á bænarörmum fram fyrir þingið nú.