17.03.1930
Neðri deild: 55. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1413 í B-deild Alþingistíðinda. (1885)

13. mál, Skeiðaáveitan o.fl.

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil leyfa mér að þakka hv. fjvn. fyrir afgreiðslu þessa máls, bæði fyrir það, hvað hún hefir afgr. það fljótt eftir að hafa lokið afgreiðslu fjárl., sem vitanlega varð að sitja fyrir, og einnig er ástæða til að þakka það, að 6 nm. af 7 hafa getað orðið sammála um að mæla með frv. óbreyttu. Einnig vil ég beina sérstöku þakklæti til hv. frsm. meiri hl. fyrir það mikla og góða starf, sem hann hefir unnið í þágu þessa máls, bæði nú og áður í Flóa- og Skeiðaáveitunefndinni.

Ég sé ekki neina ástæðu til að fara mikið út í einstök atriði frv., því hv. frsm. meiri hl. hefir gert það mjög rækilega, og ég er alveg samþykkur hans framsetningu á málinu. Ég vil aðeins drepa á eitt atriði í sambandi við brtt. hv. minni hl.

Ég skal kannast við, að ég hafði við undirbúning þessa máls tilhneigingu til að ganga að nokkru leyti inn á þær brautir, sem brtt. hv. þm. Borgf. gera ráð fyrir, tilhneigingu til að halda fram þeirri kröfu, að veðdeildin gæfi einnig eftir eitthvað af skuldunum, jafnframt því, sem ríkissjóður tekur á sig nokkurn hluta þeirra. En ég hafði þá ekki athugað nægilega gaumgæfilega þær ástæður gegn þessum brtt., sem hv. frsm. meiri hl. kom dálítið inn á, en einmitt þær sannfærðu mig um, að ekki mundi svara kostnaði að fara þessa leið, sem hv. þm. Borgf. bendir nú á. Álit veðdeildarinnar út á við krefst þess, að Alþ. noti ekki vald sitt til að grípa fram fyrir hendur á stj. hennar og skylda hana til að gefa eftir skuldir. Ég tel ekki um svo mikið fé að ræða hér, að það réttlæti, að gengið sé inn á þá braut, ef það gæti orðið til þess, eins og hv. frsm. meiri hl. benti á, að fella veðdeildarbréfin í verði. Því lét ég sannfærast, og beini nú þeim tilmælum til hv. þd., að hún fallist á þá till. hv. meiri hl. að samþykkja frv. óbreytt.

Það er rétt, sem ég skaut inn í ræðu hv. frsm. minni hl., að það er búið að ráðstafa varasjóði 1. flokks veðdeildarinnar á ákveðinn hátt. Í 2. gr. laga um Ræktunarsjóðinn er ákveðið, að 1. flokkur veðdeildarinnar renni inn í höfuðstól Ræktunarsjóðsins. Þó ekki hafi enn verið ráðstafað á sérstakan hátt hinum flokkum veðdeildarinnar, þá bendir ráðstöfun 1. flokksins á það, að á líkan hátt gæti orðið farið með þá.

Viðvíkjandi n. þeirri, sem 3. gr. frv. gerir ráð fyrir að atvmrh. skipi, vil ég aðeins geta þess, að ef ég ætti að fara með það vald, mundi ég skipa í þá n. þá sömu þrjá menn, sem áður hafa starfað að þessu máli; þeir hafa þegar sett sig svo vel inn í kringumstæður Skeiðabændanna, að ég álít þá bezt fallna til að láta uppi álit sitt um, að hvað miklu leyti þeir geta staðið við skuldbindingar sínar.

Þá vík ég að ræðu hv. frsm. minni hl. Það eru aðeins örfá atriði í henni, sem ég ætla að minnast á, því hv. frsm. meiri hl. talar sennilega á eftir mér og svarar þá því, er honum þykir ástæða til.

Í nál. minni hl., eða hv. þm. Borgf., er sagt, að stj. hafi þegar verið heimilað að greiða úr ríkissjóði þann hluta af áveitukostnaðinum, sem Flóa- og Skeiðaáveitunefndin teldi bændum ofvaxið að standa straum af. Þetta er rétt. En ég vil benda hv. þm. á, að þessi n. hefir aldrei komið og sagt, að ríkissjóður þyrfti að greiða þetta eða þetta. Heldur kom hún og sagði: Þetta mál er nú ekki svo einfalt, að það sé nægilegt að segja, að ríkissjóður eigi að greiða þetta og bændurnir hitt, heldur þarf að gera þær víðtækari ráðstafanir, sem í þessu frv. felast. Ég var henni sammála um þetta; því voru till. hennar lagðar fyrir þingið, og nú hefir mikill meiri hluti fjvn. einnig fallizt á þær.

En ég vil benda á, að það er mjög óvanalegt, að ríkisstj. skuli fá hálfgerðar snuprur fyrir að bera mál undir Alþ., en ráðstafa því ekki á sitt eindæmi. (PO: Er nokkur að snupra hana?). Ég sagði hálfgerðar snuprur, og ég álít það rétt, að telja megi ummælin í nál. hv. minni hl. liggja nærri því að vera snuprur.

Þá minntist hv. frsm. minni hl. á verðhækkunarskatt; sagði, að hann væri eitt af stefnuskráratriðum jafnaðarmanna, og væri því verið að stíga eitt sporið í áttina til þeirra með þessu frv. jafnframt lagði hann mikla áherzlu á, að frv. væri stjfrv. Þó hann beindi þessu einkum til mín; vil ég minna hann á, að hv. 3. þm. Reykv. leggur einnig til að leggja þennan skatt á. (PO: Ég segi nefnilega mína meiningu við hvern sem er). Hv. 3. þm. Reykv. er ágætur skjöldur fyrir mig og hv. meiri hl. fjvn. í þessu máli, og ætti hv. frsm. minni hl. fyrst og fremst að beina andmælum til hans. Því þá má nú fara að gruna flesta um græsku, ef hv. 3. þm. Reykv. er farinn að vinna að því að koma stefnuskrármálum jafnaðarmanna í framkvæmd, og fær meðal annara hv. 2. þm. Skagf. til að mæla með því.

Þá minntist hv. frsm. minni hl. á skyldur ríkisins gagnvart áveitunum í framtíðinni. Talaði hann um vatnsskort áveitunnar og áleit, að áveitan þyrfti miklar aðgerðir og viðbætur í framtíðinni. En hv. frsm. meiri hl. hefir nú upplýst, að svo var gengið frá í sumar á þeim stað, þar sem áveituvatnið er tekið úr Þjórsá, að varla mun þurfa að óttast vatnsskort lengur. Hinsvegar lít ég svo á, að almennar skyldur ríkisins gagnvart áveitunni séu töluvert miklar, eins og gagnvart öðrum fyrirtækjum, sem ríkið og Búnaðarfélagið hafa haft með höndum framkvæmd á. En ég held, að hv. frsm. minni hl. hafi enga ástæðu til að óttast frekar um skyldur ríkissjóðsvið þessa áveitu heldur en við önnur mannvirki, sem ríkið og Búnaðarfélagið hafa haft afskipti af á undanförnum árum.

Hefi ég svo ekki fleira að segja út af framsöguræðunum, en geri mér hinar beztu vonir um afgreiðslu þingsins á þessu máli. Ég get tekið undir þau ummæli hv. frsm. meiri hl., að öll n. er að miklu leyti sammála um þetta mál, þar sem báðir nefndarhlutarnir sjá nauðsynina á því að létta skuldabyrðinni að miklu leyti af Skeiðabændum, þó að minni hl. hafi sérstöðu að því er snertir fyrirkomulag á framkvæmd þess.

Að síðustu vildi ég segja nokkur orð almennt í sambandi við afgreiðslu þessa máls.

Það er alltaf sorglegt, þegar þannig fer um stór mannvirki, að gera þarf vegna þeirra slíkar ráðstafanir sem þessar, byggðar á því, að fyrirtækið hafi á einhvern hátt að sumu leyti misheppnazt. Sérstaklega er þetta sorglegt nú, þar sem hér er um að ræða eina af fyrstu stórfelldu framkvæmdunum á sviði landbúnaðarins á Íslandi. Ég vil benda á það, að Árnessýsla hefir orðið til þess að ganga á undan öðrum héruðum landsins í ýmsum stærri framkvæmdum, sem misjafnlega hafa reynzt. Og þar sem slíkar leiðinda ráðstafanir, sem hér er um að ræða, geta fljótt á litið sýnzt bera vott um verri fjárhagsafkomu yfirleitt í því héraði, sem þeirra þarfnast, heldur en annarsstaðar, þá þykir mér mjög gleðilegt að geta einmitt nú lagt fram plagg, sem bendir í alveg gagnstæða átt að því er Árnessýslu snertir. Bregður það allt öðrum svip yfir þetta hérað en það mál, sem hv. þd. hefir nú til meðferðar. Undanfarna daga hefir nefnil. verið unnið að því að gera upp styrkgreiðslur samkvæmt jarðræktarlögunum síðastl. ár. Við það kom í ljós, að Árnessýsla er fyrst í röðinni af öllum sýslum landsins að því er ræktunarframkvæmdir snertir. Er það mjög ánægjulegt, að þrátt fyrir mistökin, sem orðið hafa á þessu svæði hvað áveiturnar snertir, skuli þó framkvæmdahugur og dugnaður manna þar vera í svona miklum blóma.