25.01.1930
Neðri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1909)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Hákon Kristófersson:

Hv. þm. Borgf. hefir nú drepið á margt af því, er ég vildi sagt hafa um I. kafla frv. þessa, svo ég hefi litlu við að bæta.

Hæstv. fors.- og atvmrh. tók það réttilega fram, að frv. um þetta hafi verið hér á ferðinni í fyrra, en ekki náð fram að ganga. En svo sagði hæstv. ráðh., að nú kæmi það aftur fram ágætlega undirbúið. Að vísu er það nú satt, að mál þetta hefir verið falið hinni svokölluðu landbn., sem starfað hefir milli þinga, enda eru fingraför hennar sjáanleg á því. Nú snýst nokkur hluti frv. um annað en það, sem var hér til umr. í fyrra: Og þótt megnið af því muni nú vera í ákvæðum reglugerða sýslunefnda um refaveiðar, þá má þó máske segja, að frv. sé fyllra nú að sumu leyti. Þó hygg ég, að ýmsir annmarkar séu á því nú. T. d. finnst mér nokkuð langt gengið að taka valdið af hreppsnefndum um frjálsa samninga við skotmennina, enda hygg ég, að erfitt verði að fylgja einni og sömu reglu um það, vegna mismunandi staðhátta.

Þá vil ég skjóta því til athugunar þeirrar hv. n., sem nú tekur við frv., hvort ekki sé með því gengið helzt til langt inn á rétt þeirra manna, sem lönd eiga þar, sem refir halda til. Ég sé ekki, að rétt sé að gefa sveitum meiri rétt um þetta en landeigendum. Hér er um tekjugrein að ræða, sem vafi getur leikið á, hvort landeiganda ekki ber. (BSt: Hver er réttur landeiganda nú?). Ég býst við, að hv. þm., sem spurði, sé kunnugri þessu en ég, því hann á sæti í þessari virðulegu n., sem smíðaði frv., því í nál. stendur, að n. hafi leitað upplýsinga víðsvegar að!! Ég þekki aðeins til í mínu umhverfi. Þar hygg ég, að þetta sé nokkuð óbundið, enda mun nálega enginn kostnaður leggjast á hreppana nú orðið vegna grenjavinnslunnar. Nú er orðið mjög auðvelt að fá skotmann, sem áður fyrr var oft mjög erfitt.

Í einni gr. frv. er kveðið svo að orði, að sýslusjóðir skuli greiða 10 kr. fyrir hvert hlaupadýr, sem vinnst á öðrum tíma en þeim, sem grenjaleit fer fram. Er meining n. með þessu að fá samþykki Alþ. til þess að skylda sýslusjóði til að greiða þessa upphæð, eins þótt skotmanni hafi verið stór hagnaður að því að vinna dýrið? — Nú er það svo eftirsótt að ná í hvít og mórauð skinn að vetrarlagi, að ég sé ekki, að verðlauna þurfi neinn til að reyna það.

Ég býst nú við, að n. meini hér aðeins dýr, sem unnin eru að sumri, en hér vantar alla skilgreining á því, og vona ég, að sú n., sem fær frv. til meðferðar, taki þetta til athugunar, og ennfremur aðrar misfellur á frv., er hún kynni að verða vör við.

Þá get ég ekki verið sammála um það ákvæði frv., að eyjar geti ekki verið trygg varzla fyrir dýrin. Margar eyjar liggja svo langt frá landi, að þær verða ekki samísa við land, nema þá í fádæma hörðum vetrum. Hitt er vitanlega rétt, að til eru margar eyjar, þar sem varzla er ekki trygg.

Ég hygg, að kjör þau, sem frv. þetta býr grenjaskyttum, séu svo þröng, að ef það verður gert að lögum óbreytt, þá sæki fljótt í sama horf og áður var, að erfitt verði að fá grenjaskyttur. Að það sé til, að skotmenn hlífi fullorðnum dýrum, má kannske hugsast, en hreint ekki segjast, enda er hreppsnefndum það í sjálfsvald gefið að velja þá menn eina til starfans, sem þær treysta til samvizkusemi í þessu. Ég þekki ekki dæmi um neina óráðvendni frá hálfu grenjaskyttna um þetta. En hv. mþn. veit máske af mörgu í sambandi við þetta mál, sem ég veit og þekki ekki.

Mér þótti fara vel á till. hæstv. forsrh., að máli þessu verði vísað til landbn. þessarar d. Mér fannst það benda í þá átt, að hæstv. ráðh. telji þörf á, að ákvæði frv. verði tekin til rækilegrar yfirvegunar á ný.