25.01.1930
Neðri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (1917)
7. mál, refaveiðar og refarækt
Benedikt Sveinsson:
Umr. þær, sem fram hafa farið um þetta frv., benda til þess, að mikil þörf sé að setja 1. um þetta efni. Enda eru nú tímamót í viðskiptum manna og refa. Áður var eingöngu um kostnað að ræða, en nú hafa þessi dýr á síðustu árum gefið landsmönnum talsverðan arð. Er því vert, að vel og skynsamlega sé til þessa máls vandað, og rétt að sú n., er um frv. á að fjalla, fái sem gleggstar bendingar nú þegar við 1. umr. Frv. þetta ber nafnið „frv. um eyðing refa og refarækt“, en aðalatriði þess mun þó vera það, sem fyrri hluti nafnsins bendir til: að eyða refum. Hér er þó eingöngu talað um grenjavinnslu og verðlaun fyrir að skjóta hlaupatófur. Á eitrun og vélavinnslu er alls ekki minnzt. Má vera, að því sé hætt að eitra fyrir refi, síðan belgir þeirra hækkuðu svo mjög í verði. En sú eyðingaraðferð er svo grimm og siðuðum mönnum hvergi samboðin, að hún ætti ekki að þekkjast né vera leyfð. Það getur og komið til greina um ýmsar fleiri aðferðir, hvort leyfa skuli. Um það þyrfti að standa ákvæði í frv. ásamt því, að eitrun væri með öllu bönnuð.
Þá þykir mér ákvæðin um hagnaðarhlut landeiganda varla tekin nógu skýrt fram. Veit ég og eigi heldur, hversu nauðsynlegt er, að hreppsnefndir velji skotmann. Getur t. d. verið, að landeigandi sé sjálfur skytta, og væri þá efamál, hvort hann ætti ekki að hafa rétt til þess að vinna grenið sjálfur, ef honum mætti til þess treysta.
Þá veit ég enn ekki, hvort allar hreppsnefndir vilja fallast á, að rétt sé að borga skyttu þeim mun hærra kaup, sem hún drepur fleiri dýr. Ef til vill getur það verið hagnaður fyrir almenning, að fullorðnu dýrin séu ekki drepin. (PO: Að því getur aldrei verið hagur). Ég ætlast ekki til, að hér verði um friðunarlög að ræða, heldur að vissum landshlutum verði heimilað að gera samþykkt um að sleppa fullorðnu dýrunum.
Ég skal víkja aftur að því ákvæði frv., að landeigandi eigi að fá hálfan hagnað af yrðlingatöku í landi sínu. Hvernig á að finna þann hagnað? Hver á að selja yrðlingana? Nú vill landeigandi máske sjálfur ala þá upp, og þá kemur hagnaðurinn ekki í ljós fyrr en þeir eru seldir næsta vetur eða síðar. Hvernig á þá að finna og skipta hagnaðinum? Ég held, að ekki veiti af, að ákvæði frv. væru töluvert gleggri um þetta atriði og ýms önnur.
Ég hefi ekki bent á þessi atriði til þess að hnekkja frv., heldur til þess, að það verði sem gaumgæfilegast athugað frá ýmsum hliðum, áður en það verður gert að lögum.