05.03.1930
Neðri deild: 44. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1452 í B-deild Alþingistíðinda. (1927)
7. mál, refaveiðar og refarækt
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Eins og nál. á þskj.147 ber með sér, hefir landbn. orðið sammála um að mæla með frv. þessu, en með allmörgum breyt. þó.
Um brtt. er það að segja, að það eru ekki nema sumar þeirra efnisbreyt., en hinar orðabreyt. og margar smávægilegar. Það verða því ekki mörg orð, sem ég þarf að segja fram yfir það, sem í nál. stendur.
Ég ætla þá að byrja á 2. brtt. n., því að sú fyrsta er aðeins orðabreyt.
Í fyrsta lagi er þess að geta, að þegar svo stendur á, að hreppur á upprekstrarland utan sýslunnar, þá telur n. rétt að kveða skýrt á um það, að hann sjái um grenjaleitir og grenjavinnslu í því landi.
Í 2. málsgr. sömu brtt. eru sett ákvæði um það, að þegar fleiri hreppar eiga saman afréttarland, þá kjósi þeir sér trúnaðarmenn til þess að annast þessar framkvæmdir, og að þeir hafi sama verkefni í þessum efnum fyrir upprekstrarfélagið eins og ákveðið er um hreppsnefndir í einstökum hreppum.
Einnig þótti n. rétt að gera till. um það, að þegar fullvíst þykir, að ekkert gren sé til í heima- eða afréttarlöndum, þá sé sýslunefnd heimilt að veita þeim hreppum undanþágu frá grenjaleitum. Það stendur sumstaðar svo á, að engin gren geta verið þar, og er þá ekki ástæða til að íþyngja mönnum að óþörfu. Ég get t. d. í þessu sambandi nefnt Landeyjar, sem vitað er með vissu um, að aldrei hafa gren fundizt í.
Þriðja brtt. fer fram á að bæta 2 nýjum gr. aftan við 2. gr. frv., en í raun og veru er þar ekki um miklar efnisbreyt. að ræða.
Um a-liðinn er það að segja, að eftir frv. var ætlazt til, að skotmaður réði sér vökumann, en samkv. brtt. á hreppsnefnd eða þeir, sem upprekstrarfélag felur að sjá um grenjavinnslu, að gera það. Þó er skilyrði fyrir slíkri ráðningu, að skotmaður taki hann gildan. Um b-liðinn er það að segja, að þær raddir komu fram, og virðast á nokkrum rökum byggðar, að ákvæði frv. væri ekki nógu strangt. Dæmi þess voru nefnd, að aðrir en þeir, sem hreppsn. hefði ráðið til grenjavinnslu, hafi ótilkvaddir og upp á eigin spýtur leitað uppi gren og tekið yrðlingana og selt þá. Þetta þótti n. sjálfsagt að reyna að fyrirbyggja, og um það er seinni liður brtt.
Fjórða brtt. er eiginlega engin efnisbreyt. Í frv. er hverjum manni, er gren finnur, gert að skyldu að tilkynna það tafarlaust, en snúa síðan aftur á grenið og vera þar þangað til skotmaður kemur. N. þótti rétt að undanskilja ferðamenn þeirri kvöð að fara aftur á gren. Það gæti verið mjög bagalegt fyrir þá ferðamenn, sem brýnt erindi eiga, að hamla þeim að halda áfram för sinni, og ósanngjarnt í mesta máta að tefja þá svo að óþörfu. Enda var það aldrei ætlun þeirra manna, sem frv. orðuðu, að tefja ferðamenn að nauðsynjalausu, en n. vildi, að þetta kæmi skýrt fram, og því er brtt. flutt.
Hvað 5. brtt. snertir, þá er þar aðeins tekið skýrt fram um það, sem vera mun reglan viðast hvar um eignarrétt á yrðlingum. N. þykir rétt að ákveða það í lögunum, að hreppurinn eða þeir, sem kostnaðinn bera af grenjavinnslu, eigi yrðlinga þá, sem finnast, hvort sem er í greni eða annarsstaðar. Að vísu mun þó í sumum sveitum hafa verið dálítið óljóst um þetta atriði, en hér er aðeins um að ræða staðfestingu á því, sem víðast hefir átt sér stað. Sumstaðar mun það tíðkast enn, að skyttan fái alla yrðlingana, eða einhvern hluta þeirra, en ákvæði þetta kemur ekki á neinn hátt í bág við það, að svo geti haldizt áfram, að skyttan fái yrðlingana í kaup. Það er samningsatriði milli beggja aðila.
Þá er síðari málsl. 5. brtt., hvernig fara skuli um ágóðann, þegar yrðlingar eru teknir í landi einstakra manna. N. þótti rétt að undanskilja afréttarlönd, þótt þau séu eign einstakra manna, þar sem hreppsfélagið ber allan veg og vanda af eyðingu refa. Þetta er aldrei talið til hlunninda, enda eru slík lönd hvorki keypt né seld með það fyrir augum að hafa tekjur af yrðlingatöku. Hitt þótti rétt, þegar gren finnst í heimalandi, að landeigandi og ábúandi fái þá nokkurn arð af sölu yrðlinganna. Nokkur ágreiningur varð um það, hvort landsdrottinn eða ábúandi ætti að njóta þessara hlunninda, en það varð að samkomulagi að skipta arðinum jafnt á milli þeirra. Um þetta má auðvitað deila, og geri ég ráð fyrir, að enginn algildur sannleiki verði fundinn í þessu efni, en n. þótti sanngjarnt, að landeigandi og ábúandi bæru sama úr býtum.
Eins og þm. muna, er í 5. gr. frv. ákvæði um greiðslu til skotmanns, þannig, að ef hann fullvinnur gren, fái hann hálft verð dýra og yrðlinga. Vinni hann annað dýrið og nái yrðlingunum, fái hann þriðjung ágóðans, en nái hann aðeins yrðlingunum, fái hann áttung. Var til þess ætlazt, að þessi ákvæði yrðu til þess að örva áhuga skotmanna á því að vinna grenin sem rækilegast og fyrirbyggja, að þeir slepptu dýrunum viljandi. Meiri hl. n. hefir þó ekki viljað fallast á þessa tilhögun, heldur varð það ofan á, að borgun til skotmanns fari eftir fyrirfram gerðum samningi milli hans annarsvegar og hreppsnefndar eða trúnaðarmanna upprekstrarfélags hinsvegar. En um þetta atriði vil ég ekki fjölyrða, því ég hefi áskilið mér óbundið atkv. um það, og hefi að því leyti sérstöðu í n. Ég get að vísu fallizt á, að eitthvað hefði þurft að breyta ákvæðum frv. um þetta, en hinsvegar þykir mér of langt gengið í hina áttina eins og ákveðið er í 6. brtt.
Hvað 7. og 8. brtt. snertir, þá má skoða þær sem skýringar á því, sem í frv. stendur. Í 7. brtt. er það tekið fram, að hreppar, sem kosta grenjavinnslu, skuli njóta arðsins, ef nokkur verður, og í 8. brtt. er gert að skyldu að halda reikning yfir tekjur og gjöld, sem af grenjavinnslunni kann að leiða. Þó að ekki séu skýr ákvæði um þetta í frv., fólst það þó, að mínu áliti, í því, en auðvitað spillir það ekki að taka þetta skýrt fram, eins og n. leggur til.
Í stað þess, að í frv. er gert ráð fyrir, að atvmrh. semji reglugerð, sem eigi að gilda um land allt um grenjavinnslu, þá hefir n. álitið betra, að sett yrði reglugerð fyrir hverja einstaka sýslu, eftir því sem þörf gerist. En vitanlega verða slíkar reglugerðir að vera innan ramma laganna. Um þetta er 9. brtt. n. Ástæðan til þessa er sú, að ólíkir staðhættir eru víða á landinu og erfitt að binda það í einni og sömu reglugerð, sem alstaðar getur átt við. N. vildi því heimila hverri sýslu að geta tekið tillit til sinna staðhátta í þessu efni.
Tíunda brtt. er um það, að bæta við nýrri gr., sem verði upphaf II. kafla frv., og í henni ákveðið, að leyfi sýslunefnda skuli þurfa til þess að setja á stofn refabú. Þetta getur að vísu orðið ágreiningsatriði, en n. leit svo á, að almenningur ætti svo mikið undir því, að refavarzlan væri örugg, að hún vildi tryggja það sem bezt, að þeir einir veldust til þess að setja upp búið, sem sýslunefnd tryði til þess.
Þá vil ég ennfremur nefna brtt. n. um að setja sektarákvæði fyrir hvert dýr, sem sleppur úr vörzlu, sem er nýmæli í brtt. n. N. taldi rétt að ákveða sektarupphæðina 200 kr. fyrir hvert dýr. Að vísu er svo ákveðið í frv., að hafa skuli nákvæmt eftirlit með refagirðingum. en þrátt fyrir það getur komið fyrir, að refir sleppi. Refagirðingar eru að nokkru leyti niðri í jörð, og er ekki gott fyrir eftirlitsmanninn að vita, nema einhverjar skemmdir hafi orðið neðanjarðar. Ef refir sleppa, eru hagsmunir almennings í hættu, og því er rétt að láta eigendur refabúa eiga nokkuð á hættu, ef refur sleppur, svo að þeir hafi vakandi auga á girðingunum. Sektin er ekki há, þegar hún er borin saman við það tjón, er af getur hlotizt, ef refur sleppur úr vörzlu.
Ég sleppi því að minnast á nokkrar af brtt. n., sem eru aðeins orðabreyt. eða skýringar. Hinsvegar vil ég minnast á síðustu málsgr. 14. brtt., við 12. gr., sem er þess efnis, að bannað skuli að flytja út yrðlinga fyrir 20. sept. Samkv. frv. átti að banna að flytja út hvíta yrðlinga, en látið óbundið um aðra. N. vill breyta þessu. Í fyrsta lagi er upplýst, að arðsmunur vor og haust er meiri en nemur fóðri og gæzlu yfir sumarið, og því er ekki vafi á, að þetta ákvæði er rétt frá þjóðhagslegu sjónarmiði, því að á þennan hátt koma meiri peningar inn í landið. Líka eru fleiri ástæður fyrir því, að n. leggur þetta til. Þess var getið í fyrra, að Norðmenn hefðu það til að segja ekki rétt til um refi héðan, svo að jafnvel beztu refir héðan væru taldir frá Grænlandi, en hinir lélegu frá Íslandi. Ef einhver brögð eru að þessu, hlýtur þetta að spilla fyrir sölu á íslenzkum refum. En Norðmenn eiga miklu hægara um vik um slíkar blekkingar, ef þeir fá yrðlingana unga héðan. Ég fullyrði ekki, að þetta hafi átt sér stað, en víst er það, að ef útlendir menn fá marga yrðlinga héðan og setja þá í búr, þá eiga þeir margfalt hægara með að segja um beztu refina: Þetta er frá mér, en úrkastið er íslenzkt. Ef hið bezta, sem við framleiðum, gengur ekki undir íslenzku nafni, hlýtur það auðvitað að spilla fyrir verzlun okkar.
Því hefir verið haldið fram, að öll ákvæði í þá átt að takmarka sölu á yrðlingum yrði til að lækka á þeim verðið og til tekna og eflingar fyrir refabúin. En ég tel ekki mikla hættu á þessu. Refabúin eru orðin mörg, og hafa víst engin sambönd sin á milli um kaup á yrðlingum, en fremur að samkeppni sé á milli þeirra um að fá yrðlinga. Svo er ekkert því til fyrirstöðu, að menn setji upp refabú eða refaeldi, og ef þeim líkar ekki verð á yrðlingum innanlands að vorinu, geta þeir geymt söluna til hausts, eða slátrað yrðlingunum heima um áramót og selt af þeim skinnin.
Ég held því, að þetta ákvæði geti ekki talizt ranglátt, heldur miði það að því að tryggja þennan atvinnuveg, svo að þjóðin sem heild hafi meira upp úr honum en ella. Hér er litið meira á framtíðarhag þjóðarinnar en vafasaman stundarhagnað einstakra manna.
Ég held, að ekki sé ástæða til að hafa fleiri orð um þetta að sinni, enda er málið talsvert rætt áður.