08.03.1930
Neðri deild: 48. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (1933)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Pétur Ottesen:

Ég sé raunar ekki hv. frsm. landbn. En ég sný mér þá að formanni n., og af því að ég þarf að gera fyrirspurnir til n. um skilning á ýmsum ákvæðum, jafnframt því sem ég geri grein fyrir till. mínum, þá vildi ég biðja hann að skrifa hjá sér það helzta og færa frsm. Það er annars svo um þetta mál, eins og önnur, að hv. þdm. verða að greiða atkv. um það, og það er ekki alveg sama, hvernig menn greiða atkv., svo að ég vildi mælast til þess, að ef þeir vilja ekki lesa, þá vilji þeir hlusta. Því að ég geri ráð fyrir, að hv. þdm. álíti sig hingað komna til að kynna sér mál, sem lögð eru fram til umr.

Hv. frsm. landbn. vildi ekki við það kannast, að það væri verulegur munur á þessum brtt., sem n. hefir flutt hér, og því frv., sem mþn. í landbúnaðarmálum flytur. Það þýðir náttúrlega ekki að vera að gera lítið úr þessum mismun. Því að það sjá allir, sem bera saman frv. og brtt., að það er enginn smáræðis mismunur á þessu tvennu. Það er nefnil. svo, að upp í þetta frv. eru tekin ýms nauðsynleg ákvæði um það, hvernig framkvæma skuli grenjavinnslu og hverjir skuli gera það. En um það vantaði nauðsynlega skilgreiningu, eins og bent var á við 1. umr., í frv. mþn. Í brtt. er kveðið skýrt á um það, að engir nema þeir, sem til þess eru ráðnir af réttum aðilum, megi fást við grenjavinnslu. Ákvæði um þetta vantar algerlega í frv. mþn.

Þá er heimilað í brtt. að láta falla niður grenjaleit, þar sem engin gren eru og ekki hefir orðið vart við dýr í tug ára. En það er skylt eftir frv. að láta líka fara fram grenjaleit á slíkum stöðum. Það er alveg óþarfur kostnaður.

Samkv. brtt. verða þeir, sem ætla að setja upp refaræktarbú, að fá leyfi til þess. Þess þurfti ekki samkv. frv. Þetta eru aðeins fá dæmi af mörgum um það, hvað brtt. eru skýrari og greinilegri en frv.

Hv. frsm. sagði, að með brtt. væri í engu breytt til um stefnu frv. mþn. Jú, það er breytt um stefnu; það er fullkomin stefnubreyting. Ég skal benda á nokkur dæmi. Fyrst má nefna greiðslu fyrir grenjavinnslu. Í frv. eru hreppsnefndir rígbundnar við að semja um greiðslu fyrir grenjavinnslu á þann hátt, að skotmaður fái hluta af verði dýranna. Samkv. brtt. eru hreppsnefndir og aðrir hliðstæðir aðilar óbundnir og sjálfráðir um, hvernig borgun fyrir þetta skuli hagað.

Í frv. er gert ráð fyrir, að skotmaður ráði vökumann. Samkv. brtt. á hreppsnefnd að ráða hann.

Í frv. er mælt svo fyrir, að stjórnarráðið setji reglugerð um refavinnslu. En það er miklu hagkvæmara, að sýslunefndir geri þetta, eins og lagt er til í brtt. eftir bendingu hv. 1. þm. Skagf.

Í frv. er svo fyrir mælt, að finnist gren í landareign einhvers manns, þá á landeigandi alltaf að fá hálfan hagnað af greninu. Í brtt. segir skýlaust, að allir yrðlingar, sem teknir eru á greni eða annarsstaðar á víðavangi, séu eign þess sveitarfélags eða upprekstrarfélags, sem annast grenjavinnsluna á því svæði.

En í þeim tilfellum, þar sem til greina kemur skipting á ágóða af sölu yrðlinga, þá á að skipta þeim hluta ágóðans, er helgast af landinu, jafnt á milli landeiganda og ábúanda. Þetta eru allt saman stefnubreytingar, og svo mætti lengi telja.

Þá ætla ég að víkja að brtt. mínum og þeim viðtökum, sem þær hafa fengið. Hv. frsm. n. er ekki kominn enn, svo að ég verð að biðja hv. form. að flytja honum orð mín. Hann benti á, að brtt. mín um að bæta þarna við sérstökum aðila, sem á að standa fyrir grenjavinnslu, þar sem svo stendur á, að fleiri hreppar en einn hafa sameiginlegan fjallskilasjóð, er á að kosta algerlega grenjavinnsluna, þá séu þeir, sem standa fyrir honum, hliðstæðir við hreppsfélög, þar sem þeir í þessu falli eru fyrir sameiginlegu upprekstrarfélögin, — hann benti á, að hægt væri að setja reglugerðarákvæði í hennar stað. Því skyldi þá ekki vera nægilegt að hafa það í reglugerðum, að hreppsnefndir skuli sjá um vinnsluna, eða, þar sem svo stendur á, að upprekstrarfélagið sjái um þetta. Trúnaðarmaður sameiginlegs fjallskilasjóðs fleiri hreppa er alveg hliðstæður aðili í þessu falli við hreppsnefndir og upprekstrarfélagið. Eigi að taka það upp í lögin sjálf, að hreppsnefndir og upprekstrarfélögin sjái um þetta, þá á líka að taka það upp í lögin, að sá maður eða þeir menn, sem hafa á hendi stjórn hins sameiginlega fjallskilasjóðs fleiri hreppa, sjái einnig um þetta, þar sem svo hagar til. Ég skil ekki, hvers vegna n. vill ekki taka þetta inn í frv., en hefir önnur alveg hliðstæð ákvæði í lögunum. Ef hún vill vera sjálfri sér samkvæm, þá sé ég ekki, að hún geti haft neitt á móti þessu.

Viðvíkjandi því ákvæði í þessu frv., að einstakir menn eigi að fá hlutdeild í ágóða af refum, verð ég að segja, að mér skildist á hv. frsm. í fyrri ræðu hans, að réttur þessara einstaklinga til þessarar hlutdeildar næði til heimalanda, sem leituð eru á kostnað hreppsfélagsins. En í síðari ræðu sinni sagði hv. frsm., að þetta ætti við öll heimalönd. Mér sýnist hv. þdm. viðurkenna þetta með þögninni.

Nú getur vel farið svo, og mun einnig fara svo, að ekkert verði upp úr þessu að hafa, nema kostnaðinn einn saman, nefnilega þegar engin gren finnast. Verði hinsvegar hagnaður af þessu, á landeigandi eða ábúandi að njóta hans að hálfu, án þess að nokkrar skyldur séu lagðar á hann á móti. Getur því svo farið, að landeigandi hafi drjúgan skilding upp úr þessu, þó að um engan raunverulegan hagnað sé að ræða fyrir hlutaðeigandi hreppsfélag, heldur jafnvel þvert á móti tap, peningalega séð. Grenjavinnslan getur gengið svo t. d. þrjú ár í röð, að um engan raunverulegan beinan hagnað fyrir hin hlutaðeigandi hreppsfélög eða upprekstrarfélög sé að ræða, og þó að þetta kunni að gefa eitthvað af sér fjórða árið, getur vel farið svo, að það fái ekki vegið salt á móti þeim kostnaði, sem af grenjavinnslunni spratt þau þrjú árin, sem hún gaf hreppsfélaginu eða upprekstrarfélaginu ekkert í aðra hönd. Þó að landeiganda eða ábúanda séu nú engar skyldur á herðar lagðar í þessa átt, á hann engu að síður að fá í sinn vasa helming hagnaðarins. Þetta brýtur í bág við þá reglu, að skyldur og réttindi eigi að haldast í hendur, en þeirri reglu tel ég, að fylgja eigi í þessu máli sem öðrum. Mínar till. hníga í þá átt, að þessu verði breytt þannig, að jafnvægi verði með skyldum og réttindum, og tel ég það hina beztu lausn á þessu máli að þessu leyti, ef þær næðu fram að ganga.

Ég vil ennfremur benda á það, að orðalagið á brtt. n., þar sem talað er um rétt landeiganda til hlutdeildar í ágóða af grenjavinnslu, orkar mjög tvímælis, frá mínum bæjardyrum séð. Þar segir svo:

„Nú eru yrðlingar teknir í heimalandi einstakra manna, og skal þá landeigandi eða ábúandi fá samanlagt hálfan ágóða af sölu þeirra yrðlinga, er skiptist jafnt á milli þeirra“.

Ég vil leyfa mér að spyrja hv. frsm. n., hvort hann lítur svo á, að hreppsnefnd og þeim öðrum aðiljum, sem til greina geta komið í þessu sambandi, sé heimilt að semja við skotmann um grenjavinnslu í heimalandi einstaks manns, þannig að skotmaður fái alla þá yrðlinga, sem nást kunna, fyrir starf sitt. Hefi ég því meiri ástæðu til þess að spyrjast fyrir um þetta, þar sem þetta er nú algengur greiðslumáti fyrir grenjavinnslu. Eftir ákvæðum frv. virðist svo, sem hreppsnefndum og upprekstrarfélögum sé þetta heimilt, en ég vil leyfa mér að benda á það, að ef svo til tækist, að skotmaður, sem ráðinn væri með þessum kjörum, yrði fyrir sérstökum höppum, næði óvenju mörgum yrðlingum og hefði mikinn ágóða af grenjavinnslunni, er hætt við því, að landeigandinn, sem á að fá hálfan hagnað, en fær ekkert, færi að líta í kringum sig og athuga, hvað ákvæðið um ágóðahlut honum til handa í frv. þýddi.

Hv. frsm. gekk inn á það, að rétt mundi að fella niður dýralækniseftirlit í þessum efnum, þar sem um væri að ræða eftirlit um skamman tíma, en þótti þó nauðsynlegt að fyrirskipa það, ef um veika yrðlinga væri að ræða.

Yrðlingar eru svo dýr hlutur, að ég held, að það sé með öllu óþarft að vera að lögskipa mönnum að leita læknis, ef þeir eru veikir. Ég held, að menn geri þetta af sjálfsdáðum og ótilkvaddir. Eins held ég, að ef þú kaupir yrðlinga, muni það láta lækni skoða þá áður en þeim er hleypt inn fyrir girðingarnar. Mér virðist sem það sé óþarfi að setja 1. um það, að menn gæti hagsmuna sinna.

Út af þeirri brtt. n., að ekki megi flytja út refi fyrr en eftir 20. sept., verð ég að segja það, að verði sú till. samþ., er sú samkeppni, sem verið hefir um sölu yrðlinga 2—3 síðustu ár, ómótmælanlega skert, ef þá ekki útilokuð með öllu. Frsm. n. benti á það, að refabúunum mundi fjölga, en ég vil benda á það, að þegar um stór refabú er að ræða, sem ráða yfir miklu fé, er erfitt fyrir einstaka menn að keppa við þau. Hefi ég að vísu ekkert á móti því, heldur tel þvert á móti gott, að refabúin dafni, en ég fæ ekki séð, að þau geti ekki gert það í frjálsri samkeppni. Ég er algerlega á móti því að leggja skatt á einstaka menn, sem leggja á sig vökur og erfiði á fjöllum úti við illan aðbúnað yfir lengri tíma, til þess að draga úr dýrbitum og þeim voða, sem búfénaði stafar af þeim. Ég geng aldrei inn á brtt., sem ganga í þá átt, að þessir menn fái minna fyrir feng sinn en í frjálsri samkeppni. (LH: Það er verið að hlynna að hækkuðu verði á yrðlingum). Ef verið er að hlynna að nokkru með þessu, þá er verið að hlynna að refabúunum, draga úr samkeppninni og áhuga manna fyrir grenjavinnslu.

Hvað dýralækniseftirlitið snertir er það að segja, að ekki eru miklar líkur til, að það sé einhlítt. Hefi ég fengið upplýsingar um það hjá kunnugum mönnum, að dýr geta verið fædd með ýmsum erfðasjúkdómum, sem ekki þurfa fremur að koma fram fyrir 20. sept. en eftir þann tíma. Eru engar líkur til þess, að því er mér er tjáð, að dýralæknar lesi vanheilsumerkin á dýrunum fremur þótt þau séu nokkuð þroskuð. Þó að dýralækniseftirlitið, sé sjálfsagt út af fyrir sig og komi í mörgum tilfellum að notum, er ekki þar fyrir nein ástæða til að lögákveða, að ekki megi flytja út refi fyrr en eftir 20. sept. Það fór sem mig grunaði, að það var aðeins byggt á lauslegum umsögnum, að dýr myndu hækka meira í verði en sem svaraði þeim kostnaði, sem hlytist af að geyma þau. Hefir ekkert komið fram þessu til sönnunar, því að þó að slíkar upplýsingar kunni að hafa komið frá mönnum, sem að refabúunum standa, verður ekkert á því byggt vegna þess, að það hefir engan stofnkostnað í för með sér, að yrðlingum sé bætt við í búin, en hinsvegar hefir þetta mikinn kostnað í för með sér fyrir menn, sem þurfa að koma sér upp girðingum til þess að geta geymt yrðlingana.

Um reikningsskilin þarf ég ekki að fara mörgum orðum. Ákvæði 8. liðar á þskj. 147 rekast á síðari málsgr. 14. gr. Í nál. er talað um það, að hreppsnefndir eða upprekstrarfélög skuli fyrir gangnaniðurjöfnunarfund, eða fjallskilafund þar, sem fleiri hreppar eiga afrétt saman, leggja fram sundurliðaðan reikning yfir tekjur og kostnað við refaeyðing í afréttar- og hrímalöndum þeirra. Slíku er ekki hægt að koma við þar, sem á þeim tíma er ekki búið að selja yrðlingana, og þótt áætlað sé, hvað mikið þeir muni seljast fyrir, verður aldrei um glögg reikningsskil að ræða. Verður því að geyma þessi reikningsskil til næsta árs, því að eðlilegast er, að reikningar þessir séu lagðir fram og endurskoðaðir af sömu mönnum og endurskoða reikninga sveitarfélaganna fyrir næsta ár. Er heldur engin ástæða til að heimta þessi reikningsskil fyrr, enda ekki hægt að koma þeim við í mörgum tilfellum.

Ég hefi þá svarað hv. frsm. n., og vænti ég þess, að þeir hv. þdm., sem fylgzt hafa með í máli mínu, sjái, að till. n. eru til bóta á frv. og mínar till. til bóta á till. n., og ljái þeim því fylgi sitt. Læt ég svo útrætt um málið að sinni, þó að ýmislegt í frv. þurfi athugunar við til 3. umr., enda þótt það sé nú orðið tiltölulega fátt.