10.03.1930
Neðri deild: 49. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1481 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Pétur Ottesen:

Það er aðeins út af þeim útreikningum, sem hv. frsm. n. fór með til samanburðar á því, hver hagur væri að því að yrðlinga mætti flytja út þegar að vorinu, ellegar að ala þá til hausts.

Hv. frsm. komst að þeirri niðurstöðu með þessum útreikningi, að á haustin fáist 500—600 kr. fyrir hvert dýr. Þegar þetta er borið saman við það, hvað greitt er fyrir yrðlinga á vorin og kostnað þann, sem leiðir af eldi þeirra yfir sumarið, mundi hagnaðurinn vera um 200 kr. af hverju dýri. Um þennan kostnaðarreikning er þó þess að geta, að hv. frsm. byggir þessar upplýsingar sínar á áliti þess manns, sem hefir eitt stærsta refabúið hér á landi. En þessar upplýsingar hv. frsm., sem allar byggjast á áliti þessa sama manns, eru rangar. Kostnaðarreikningurinn er eingöngu miðaður við eldiskostnað. Þar er enginn kostnaður gerður fyrir refagirðingum, en auðvitað verður að telja hann með. En til athugunar á því, hvort þetta sé rétt, vil ég benda á það, að það er algengt á refabúum, að þau slátra refunum og selja síðan belgina. Eftir þeim upplýsingum, sem fengizt hafa, hefir verð belgjanna af þessum dýrum verið frá 100 og upp í 200—250 kr., og í hæsta lagi 300 kr. Og lætur nokkur maður telja sér trú um, að refabúin fari að ala refina fram á vetur, til þess að fá 100—300 kr. fyrir þá, ef hægt er að selja yrðlingana á erlendum markaði fyrir 600 kr. Og mig undrar það, að nokkur maður skuli láta sér detta í hug að leggja annað eins frv. og þetta fyrir þingið og að nokkur maður skuli flytja svo staðlausa stafi sem þessar upplýsingar, sem hvergi byggjast á staðreyndum og eru hvergi til nema á reikningum. (BSt: Ég tók það fram, að reiknað væri með afföllum). Ég tók tölurnar upp eftir hv. frsm. eins og þær lágu fyrir hjá honum, svo engin rangfærsla er í þeim milliburði. Það er svo augljóst mál, að þetta er aðeins gert til þess að slá einhverju fram og tilraun til þess að slá ryki í augu manna. En hvað gengur þeim til Og hvað getur þessum refabúsforstjórum gengið til þess? Enginn hefir sett þeim reglur um það, hvenær þeir megi flytja út dýr, sem þeir ala. Þeir geta gert það þegar þeir álíta það heppilegast. Þetta er því í því augnamiði einu, að þeir, sem standa fyrir refabúum, geti fengið yrðlinga með lægra verði en ef fullkomin samkeppni væri. Það er þetta og ekkert annað, sem stendur bak við þessar till. Þeir vita sem sé, að það eru svo miklir örðugleikar fyrir almenning að setja upp refagirðingar. Kostnaðurinn, sem þetta hefir í för með sér, er svo mikill, að allur fjöldi manna getur ekki komizt undan þeim samtökum, sem búast má við að verði hjá refabúum, þegar þau eru orðin einvöld um verðið. Niðurstaðan verður því sú, að þeir, sem afla dýranna, verða neyddir til að selja þau þessum refabúaforstjórum og við því verði, sem þeim þóknast að skammta fyrir þau.