10.03.1930
Neðri deild: 49. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1486 í B-deild Alþingistíðinda. (1950)
7. mál, refaveiðar og refarækt
Forseti (BSv):
Ég vil þakka hv. þm. Borgf. fyrir að standa upp, því seinni parturinn af ræðu hans var einmitt það, sem ég vildi sagt hafa. Ég ætlaði með till. minni að leysa úr þessu vandamáli, en ef n. vill ekki taka málið aftur að sér, væri æskilegast, að hv. 1. þm. N.-M. vildi taka brtt. sínar aftur til 3. umr.