05.04.1930
Efri deild: 70. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1505 í B-deild Alþingistíðinda. (1977)
7. mál, refaveiðar og refarækt
Jón Baldvinsson:
Hv. frsm. þykist víst hafa sterka röksemd, þegar hann segir, að réttindi og skyldur eigi að fylgjast að. En þetta getur verið alveg eftir því, hvernig á það er litið. Stundum öðlast menn réttindi án þess að nokkrar skyldur fylgi, eingöngu vegna annara manna. Þannig er það t. d. um styrk samkv. berklavarnalögunum. Hér stendur dálítið svipað á útrýming refa fer fram fyrst og fremst vegna heildarinnar, en ekki vegna þess einstaka ábúanda, er grenið hefir í landi sínu. Því síður er ástæða til að láta ábúandann kosta útrýmingu refanna, ef það er rétt hjá hv. frsm., að refur bíti ekki nærri greni sínu, og að bein hlunnindi séu að hafa nokkra refi í landareigninni til að gæta lambanna. — Annars virtist hv. frsm. nú vera tekinn að óttast um afgreiðslu málsins, því að hann var tekinn að nota grýlur á hv. íhaldsmenn, til að hræða þá til fylgis við sig. Hann hótaði sem sé að kalla þá ójafnaðarmenn eða kannske jafnaðarmenn, ef þeir fylgdu mér í þessu.
Út af orðum hæstv. forseta skal ég segja, að ég orðaði brtt. mína strax í landbn. og skrifaði undir nál. með fyrirvara. Hér er því ekki um neinn snúning að ræða af minni hálfu.