11.04.1930
Neðri deild: 77. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1508 í B-deild Alþingistíðinda. (1989)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Jörundur Brynjólfsson:

Þegar þetta mál var til 3. umr. hér í þessari hv. d., hafði ég ekki tækifæri til að skipta mér af afgreiðslu þess. N. gekk þá svo frá frv. hvað grenjavinnslu snertir, að ég tel það litlu bætt, þótt þessi brtt. verði samþ.

Tilgangurinn er auðvitað fyrst og fremst sá, að tryggja vinnslu dýranna. Þessari d. varð sú skyssa á að kippa þessu atriði burt. Það verður aldrei vel séð fyrir grenjavinnslu, nema maðurinn, sem vinnur grenið, fái hluta af veiðinni, og sú hlutdeild á að byggjast á því, að hann vinni dýr. Hingað til hefir hann haft mesta hagsmuni af því að láta þau lifa. Það hefir meira að segja bólað á því hér á landi, að skotmenn hafa sleppt dýrunum viljandi til þess að eiga vísar tekjur næsta ár. Í sumum sveitum er greiddur viss skothlutur fyrir hvern yrðling. Ég veit t. d., að í einni sveit er það 100 kr. fyrir yrðling. Með þessu er mönnum gefið undir fótinn að sleppa eldri dýrunum til þess að hafa fastar tekjur.

Verð yrðlinga er oftast um 100 kr., en getur orðið um 300 kr. ef mórauðir yrðlingar eru.

Það hefir tíðkazt undanfarin ár, að skotmenn hafa samið um að mega leita á vissum svæðum, gegn því að greiða 100 kr. fyrir yrðling til hlutaðeigandi sveitarfélags. Af hverju ætli þeir séu að gera þetta? Þeir vita, með hvaða lit þessi dýr eru af því að þeir slepptu þeim þar árið áður og vita, hvar þau eru nú. (HH: Með hvaða lit. Heyrðist mér það rétt!). Já, hv. þm. veit, að þau hafa mismunandi lit. Svo hefir sprottið af þessu ýmiskonar ágreiningur þegar til framkvæmdanna kom. Þegar þeir hafa selt yrðlinga með háa verðinu, þá hefir sveitin því ekki fengið sín 50%, sem hún átti. Hreppsnefndin hefir þá ekki gert ráð fyrir meira verði en 200 kr. Svo hafa orðið málaferli út af þessu.

Þetta virðist Alþingi ekki vera kunnugt um. Það hirðir svo lítið um þetta atriði, sem þó er höfuðatriði I. kafla frv., um refaveiðar. Það er því ekki nema skóbótaskipti, sem landbn. flytur nú við frv., eða eina gr. þess, 6. gr., um það, með hverju móti þeir, sem eiga heimaland eða lögbýli, eigi rétt til tekna af grenjavinnslu.

Þetta kann að vera til einhverra bóta, en víst er það, að það er ekki til mikilla bóta, og spá mín er sú, að út af þessu atriði geti orðið miklar deilur. Ef hagnaðurinn er mikill, gætu ábúendur notað sér af því og heimtað sinn arð, ef ekki er formlega frá gengið.

Ég veit ekki, hve formlega hefir verið frá grenjavinnslum gengið undanfarið. En ég veit, að margar stefnur hafa um þetta gengið, hvort sem það hefir komið til dómstóla eða ekki. Það veit ég ekki.

Ég get sagt það, að um fyrri kafla frv. læt ég mér í léttu rúmi liggja, hvort það verður afgr. eins og það nú er eða lítið breytt. Þeirri hvöt, sem var fyrir þá, sem vinna annað dýrið eða bæði, hefir verið gersamlega kippt burt. Alþ. hefir oft samþ. káklöggjöf, og hér er eitt dæmi þess. (HK: Mikið rétt. — HJ: Hvernig á að vinna tvö dýr, ef ekki er nema eitt til?). Það er þá a. m. k. annað dýrið, og væri það til bóta.

N. hafði frjálsar hendur með það, hverja hún tók sér til leiðbeiningar. En með þeim breyt., sem hún hefir gert á frv., verð ég að segja, að hún hefir gersamlega brugðizt skyldu sinni í þessu efni. Það mundi þá verða framhald af því, sem verið hefir á þessu eina refabúi, sem er hér á landi, og þarf enga löggjöf um það. (BÁ: Það þarf lög til þess að vernda eignarréttinn). Hv. þm. virðist vilja styðja að því, að tófan sé ekki réttdræp eftir gildandi lögum.

Mér finnst þetta því lítilvæg breyt. og ekki til bóta, og mun því greiða atkv. á móti henni. (Forseti: Það eru nú 3 aukaþing hér í d., sem ég vil biðja að hætta störfum sínum). Það er ekkert nýtt, að það séu aukaþing í þessari d. Það væri víst bezt að greiða alltaf þegjandi atkv. í öllum stærri málum. (PO: Það er alltaf þegjandi atkvgr. nema þegar það er nafnakall. — SE: Það er þá líklega bezt að fara að leysa upp þingið, ef svo er, og fá nýjan meiri hl.). Ég get fallizt á það að fá nýjar kosningar.

Ég mun því greiða atkv. móti þessari brtt. Ef Alþ. á annað borð vill vera að samþ. þessa káklöggjöf, þá vil ég heldur, að hún verði eins og hv. Ed. skildi við frv., og mun ég þó greiða atkv. á móti því út úr þessari d.