11.04.1930
Neðri deild: 77. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1518 í B-deild Alþingistíðinda. (1995)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Lárus Helgason:

Hv. 1. þm. Árn. reis hér upp og bar þungar ásakanir á landbn. Hann sagði, að n. hefði brugðizt skyldu sinni. En hv. þm. reyndi ekki með einu orði að rökstyðja þetta. Slík slagorð geta strákar sent hver í annan, en það sæmir ekki þm. í þingsal. Hv. þm. sagði, að n. hefði haft að leiðarvísi þá menn, sem hefðu hagnað af því, að dýrunum væri sleppt. Hv. þm. á eftir að færa rök að þessu, og eins hinu, að n. hafi farið meira að ráðum þessara manna en góðu hófi gegndi. Það er alltaf sjálfsagt, þegar n. eiga að fjalla um einhver mál, að leitað sé álits og umsagnar kunnugra manna.

Það má heimfæra upp á hv. 1. þm. Árn., að „hverjum þykir sinn fugl fagur“. Hv. þm. sárnaði, að hans frv. var ekki tekið óbreytt. Það þyrfti auðvitað að vera, þegar mþn. hafa fjallað um eitthvert mál, að þingn. þyrftu ekki að breyta þeim svo mjög, sem við höfum orðið að gera í þessu falli. Að því leyti er von, að hv. 1. þm. Árn. hafi sárnað.

,Það var að heyra á hv. þm., að ákvæðið um að fela hreppsnefndum að semja við skotmenn væri óhafandi. Hitt væri sú gullvæga regla, að skotmaður fengi part af veiðinni. En það er nú mjög gölluð aðferð, því að það er ekki rétt að hegna góðum skotmanni, þó að hann veiði ekki fullorðin dýr. Auk þess er sýnilegt, að það er á valdi hreppsnefndar að semja við skotmenn á þá leið, að þeir skuli hafa svo og svo mikið af yrðlingum. Það er í lófa lagið. Það er óskiljanlegt, að hv. þm. skuli gera svo lítið úr hreppsnefndum, að hann treysti þeim ekki til að velja skotmenn. Hv. þm. er hræddur um, að hreppsnefndirnar lendi á svikulum mönnum, sem sleppi dýrunum viljandi. Ég verð að segja, að þetta eru ljótar aðdróttanir til hreppsnefndanna og þjóðarinnar í heild. Hverskonar vitnisburð getur almenningur búizt við að fá frá hv. þm., þegar hreppsnefndirnar, sem sé beztu mennirnir í hverjum hreppi, fá hann slíkan?

Hv. þm. sagði, að út úr þessu mundu rísa málaferli. En ég vil spyrja hv. þm.: hvenær er hægt að semja þau lög, sem ekki rísa málaferli út af? — Hv. þm. sagðist vera á móti brtt. Honum er það guðvelkomið. Ég hugsa, að hv. d. sjái, að brtt. er til bóta, og samþ. hana. Hvort hv. l. þm. Árn. greiðir atkv. með eða móti, get ég því látið mér í léttu rúmi liggja, einkum eftir hina ómaklegu sleggjudóma hans. N. er alveg ómeidd af árásum hans, af því að þær eru svo illa hugsaðar.

Hv. þm. Barð. taldi lögin vera mesta afskræmi, án þess þó að færa nokkur minnstu rök fyrir máli sínu. Verst þótti honum ákvæði 9. gr. En meðan hv. þm. færir engin rök fyrir staðhæfingum sínum, telur n. enga þörf á að svara þeim.