11.04.1930
Neðri deild: 77. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1523 í B-deild Alþingistíðinda. (2001)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Lárus Helgason:

Það kom skýrt fram hjá hv. 1. þm. Árn., að hann gerði lítið úr hreppsnefndunum. Hann sagði reyndar, að það væri öðru nær en hann vildi gera það, en hvernig er hægt að gera lítið úr þeim, ef ekki með því að vantreysta þeim til að semja við skotmennina? Ég vil aðeins spyrja: Hvernig er hægt að sýna hreppsnefndum meira vantraust en með því að trúa þeim ekki til að fá þá beztu menn, sem hægt er að fá, til að eyða þessum bitvargi úr högum bænda?

Annars hefi ég mjög litlu að svara þessum hv. þm., því að eins og skotið var fram í áðan, þá er hann mjög búinn að draga niður seglin. Hann sagði, að n. hefði gert eftir beztu vitund, en missýnzt, en það er allt annað en það, sem hann var búinn að segja áður, að n. hefði brugðizt skyldu sinni og valið menn sér til leiðsögu, sem ekki væri treystandi vegna þeirra eigin hagsmuna. Þetta hefir hann tekið aftur, svo að ég hefi ekki ástæðu til að vera óánægður.

Hv. þm. Barð. fullyrti í fyrri ræðu sinni, að enginn maður mundi láta sér koma til hugar að hirða yrðlinga fyrir utan grenið, en mér þykir næsta ólíklegt, að það væri nokkur maður, sem gerði það ekki. Og ég get ekki hugsað mér nokkra hreppsnefnd svo ósanngjarna, að hún borgaði það ekki umtölulaust, sem manninum bæri, sem tæki yrðlingana. (HK: Hvar stendur það í frv?). Það stendur í frv. ákvæði um, að hver skuli fá sitt ómak borgað.

Ég ætla þá ekki að tefja tímann meira.

Það er búið að tala nóg um þetta mál, svo að ég býst ekki við, að það taki neinum umbótum, þó að umr. sé haldið áfram.