14.04.1930
Efri deild: 77. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1524 í B-deild Alþingistíðinda. (2006)
7. mál, refaveiðar og refarækt
Frsm. (Jón Jónsson):
Þetta frv. um refaveiðar er komið til okkar aftur frá hv. Nd. Hún hefir breytt því örlítið, aðallega í 6. gr. Þeirri grein var breytt hér á þann hátt, að ábúandi ætti kost á því að fá helming af tekjum af yrðlingum, sem unnir eru í landi hans, með því skilyrði, að hann bæri helming kostnaðar við vinnsluna. Nú hefir hv. Nd. aftur breytt svo til, að það skuli lagt í sjálfsvald ábúenda, hvort þeir vilji þetta eða ekki, og þeir eiga þá að segja til hreppsnefndaroddvitum eða fjallskilastjórum fyrir sumarmál, hvort þeir óski að taka þennan þátt í kostnaði, eða vilja heldur, að sveitarfélagið sjái alveg um þetta og hafi þá allan kostnað og allar tekjur. Meiri hl. landbn. sér ekki ástæðu til að setja þessa breyt. fyrir sig, og leggur því til að samþ. þetta óbreytt.
Þá var einnig brtt. við 9. gr., sem var samþ. í Nd. Er hún um verðlaun fyrir svokölluð hlaupadýr, sem drepin eru. Í frv. var gert ráð fyrir, að greiddar væru úr sýslusjóði 10 kr. Brtt. heimilaði sýslunefnd að hækka þetta gjald eða lækka.
Þetta eru svo litlar breyt., að n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það nú liggur fyrir.