31.03.1930
Neðri deild: 67. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (201)
1. mál, fjárlög 1931
Sigurður Eggerz:
Ég má nú aðeins gera 5 mínútna aths., en hve mikil ástæða væri ekki til lengri ræðu. Hæstv. ráðh. sagði, að samningurinn frá 1918 hefði tekizt illa. Já, það er rétt, að samningurinn er meingallaður. Á þetta hefir enginn bent skýrar en ég, en hinsvegar var sjálfsagt að gera samninginn vegna uppsagnarákvæðisins í 18. gr. Ef þessi samningur hefði ekki verið gerður, þá væru horfurnar í sjálfstæðisbaráttu vorri aðrar en þær eru nú. Og ekki hefðum vér komizt langt í sjálfstæðismálunum með þeirri hörku, sem núverandi stj. sýnir í þeim. En hve mikið vannst ekki við það 1918, að vér fengum réttinn til að segja samningunum endanlega upp.
Hæstv. dómsmrh. lagði áherzlu á, að það hefði verið skrökvað upp á sambandsþjóð okkar, að hún hefði gert á hluta okkar. En hver er það, sem hefir skrökvað upp á hana? Aðallega hefir verið lögð aherzla á, hve hættulegt það mundi reynast oss, ef Danir notuðu sér þann rétt til fulls, sem þeir eiga samkvæmt 6. og 7. gr. sambandslaganna. Hitt hefir ekki verið sagt, að Danir enn hafi notað þennan rétt svo að af því stafi hætta.
En vegna hættu þeirrar, sem felst í þessum greinum, er nauðsyn hin mesta á því, að uppsögnin fari fram eins fljótt og unnt er.
Hæstv. ráðh. veit það, að til þess að samningsslit geti tekizt, þarf mikinn meiri hl. bæði. í þinginu og meðal landsmanna. Það, sem hættulegt er í baráttu hæstv. ráðh. er það, að hann gerir allt sem hann getur til að fá landsmenn til að gleyma því, að okkur getur stafað hætta frá Dönum. Með því er hann að svæfa þjóðina, reyna að fá hana til að gleyma, hver er skylda hennar í þessu máli.
Þegar hæstv. núverandi ríkistj. tók við völdum lofaði hún að vinna fyrir þessu máli, en það loforð hefir hún illa staðið við. Það hefir orðið að neyða hana til að minnast á þetta mál. Hæstv. ráðh. vill ekkert gera úr hættunni frá Dana hálfu. Hann veit það þó, hæstv. ráðh., að Danir hafa haft mjög mikinn áhuga á því, að koma af stað fiskveiðum norður í höfum. Generalkonsul Yde hefir skrifað lærða bók, hvatningu í þessa átt. Nefnd hefir nýlega verið kosin undir forustu hans til að íhuga málið. Er það þá ekki eðlilegt, þegar það er vitað, að hugir sambandsþjóðar vorrar hneigjast í þá átt, að koma upp miklum sjávarútvegi norður í höfum, að vér viljum tryggja það, að oss séu ekki gerðar of þungar búsifjar með þessari ráðabreytni. Ráðh. segir, að oss liggi ekki neitt á í þessu efni fyrst um sinn. Ráðh. vill ekki byrgja brunninn fyrr en barnið er dottið í hann.
Í grein í Tímanum 15. febr. stendur svo, með leyfi hæstv. forseta: „En er leið að fundarlokum, kvaddi Kragh, fulltrúi vinstrimanna, sér hljóðs og óskaði eftir, að fram kæmu af hálfu Íslendinga skýringar á því, hvað Danir hefðu gert á hluta Íslendinga, sem hefði þurft að leiða til þess, að heill landsmálaflokkur væri myndaður á Íslandi með nafni, sem benti til þess, að nokkrum hluta Íslendinga þætti líklegt, að Danir væru að innlima landið pólitískt, fjárhagslega eða menningarlega“.
Þessi grein er skrifuð af hæstv. núverandi dómsmrh.
Hæstv. ráðh. sagði síðast í ræðu sinni, að ef Danir vildu nokkuð skipta sér af því, hvaða nafn þessi flokkur á Íslandi bæri, þá hefðu þeir spurt að því. En nú hefir innanríkisráðh. spurt að því. Hann spurði nefndina, og hæstv. dómsmrh. varð fyrir svörum. Er hæstv. ráðh. búinn að gleyma því, að hann hefir skýrt frá þessu í grein sinni? Og sannarlega er spurningin einkennileg frá danskri hlið, því á því er þó enginn vafi, að vér ráðum sjálfir flokksn. vorum. Og ekkert er eðlilegra en taka þetta nafn upp fyrir þjóð, sem enn þá fer ekki með utanríkismál sín að öllu leyti og sem enn er ekki búin að fá eignarrétt á sínu eigin landi.
Hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði skapað þetta jafnréttisákvæði. Ég hefi alltaf staðið gegn því, alltaf. En hitt er annað mál, að ég vildi taka sambandslögin, þó þetta ákvæði væri í þeim, vegna uppsagnarákvæðisins, sem gefur oss rétt til að losna við jafnréttisákvæðið, sem ekki er jafnréttisákvæði, og við sambandslögin.
Hæstv. ráðh. sagði, að Íslandsbanki væri stærsta gjaldþrotabúið, sem komið hefði fyrir hér á landi. Fyrra matið leiddi það í ljós, að hann ætti fyrir skuldum, en síðara matið sagði, að 3½ millj. vantaði, en bankastjórnin benti á 1600000 kr. til frádráttar þessari upphæð, og í aths. við matið var talað um, að 1800000 kr. gæti komið aftur, en samkv. þessu eru bæði mötin lík.
Ég ætla ekki að fara út í þetta mál nú, hefi gert það svo rækilega áður. Vil aðeins benda hv. þd. á, af hve mikilli ósanngirni hæstv. ráðh. talar, er hann vill láta líta út fyrir, að öll töp þjóðarinnar hafi orðið gegnum Íslandsbanka. Þó veit hann það sjálfur ósköp vel, að það var talsvert meira en 3½ millj. kr., sem vantaði til þess að Landsbankinn ætti fyrir skuldum, er hann var metinn fyrir 2 árum síðan. Og hæstv. ráðh. veit það slíka sjálfur, að þessi töp urðu vegna erfiðleika þeirra, er komu yfir þjóðina. — Ég sé, að hæstv. forseti stendur með hamarinn á lofti, svo að mér gefst ekki tækifæri til að svara hv. 2. þm., Árn. Þessi hv. þm. var að líkja mér við séra Sigvalda í Manni og konu. Það er ekki orðið mikið um rök á Alþingi Íslendinga, þegar hv. þm. styðja málstað sinn á þennan hátt. En þegar ég sé hv. 2. þm. Árn. vera að tvístíga fyrir framan hæstv stj. henni til varnar, þá dettur mér í hug annar maður í Manni og konu. Þessi maður hét Hjálmar, og í sögunni er stundum talað um það, þegar hann var að tvístíga fyrir framan séra Sigvalda, til að fá eitthvað í nasirnar, sem hétu Mjóna og Alvíð. Já, hann tvístígur svo einkennilega, hv. þm., fyrir framan hæstv. stj. Ég held hann hljóti að vera að minna á Mjónu og Alvíð.