21.03.1930
Efri deild: 57. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1530 í B-deild Alþingistíðinda. (2012)
8. mál, bændaskóli
Jónas Kristjánsson:
Ég hafði ýmislegt við þetta frv. að athuga og hefi því skrifað undir nál. með fyrirvara. Taldi ég þó réttast, að það gengi í gegnum þessa hv. d. til frekari rannsóknar hér og svo í hv. Nd.
Það hefir að nokkru leyti verið tekið fram, sem ég hafði við frv. að athuga. Ég tel t. d. til bóta nýbýlahugmyndina handa kennurum skólans, svo að ég get skrifað undir það.
Um ríkisreksturinn er það að segja, að hann verður líklega að teljast nauðsynlegur í þessu tilfelli, þar sem þarf að gera ýmsar hagnýtar tilraunir um ræktun og annað viðvíkjandi búskap. Þess vegna er e. t. v. réttara að reka þar búskap á ríkisins kostnað, og það því fremur, sem t. d. á Hólum er allmikil aðsókn gesta á sumrin, af því að skólinn er á þessum fornfræga stað. Það er því hart að láta ábúandann, sem getur verið fátækur maður, kosta þá risnu, sem þessu fylgir, af eigin fé; svo að ég get fallizt á það.
Heimildin fyrir aukinni undirbúningsfræðslu álít ég, að aðeins ætti að koma til greina þar, sem ekki er fyrir neinn unglingaskóli. Það getur t. d. varla komið til á Hvanneyri, því að þar er góður unglingaskóli fyrir, en þar til er slíkur skóli verður til í nágrenni við Hóla, er ég ekki á móti því þar.
Hinu er ég ekki samþykkur, að bætt sé þessari bændadeild við skólana. Ég álít, að það væri aðeins undantekning, sem skapaði þá þörf, og að betur hefði verið séð fyrir henni á annan hátt. Ég er nefnilega hræddur um, að þegar kostur er á að ganga í gegnum bæði minna nám og meira nám, verði þeir margir, sem kjósa heldur að taka styttri tímann, til þess að baka sér minni kostnað, og verður það einnig til þess að draga úr aðalfræðslunni. Það verða t. d. margir, sem kjósa þann kostinn að ganga í bændadeildina, og verður því aðalbúnaðarkennslan á hakanum, og skólinn líður fyrir þessar sakir.
Þar fyrir utan er ég hræddur um, að þetta gæti orðið til þess, að meiri kennslukröftum yrði að bæta við skólana, þar sem yrði að kenna í fleira lagi, vegna þessarar tvískiptingar á kennslunni. En aðaláherzluna legg ég á það, að þetta muni verða til að draga úr fullkominni búfræðikennslu, og skaða þannig skólann og álit hans út á við, og valda þess vegna minnkaðri sókn til búfræðináms.