21.03.1930
Efri deild: 57. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (2014)

8. mál, bændaskóli

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég mun ekki leggja mikið til þessa máls á þessu stigi.

Ég vil geta þess, að þó brtt. þær, sem hv. landbn. hefir flutt við frv., á þskj. 310, séu talsvert fyrirferðarmiklar, þá tel ég ekki, að í þeim felist mikil efnisbreyting. En það litla, sem það er, hefi ég ekki mikið við að athuga, og get því sætt mig við, að þær séu samþ.

Það, sem mér þykir merkilegast við afgreiðslu hv. n. á þessu máli, er það, að hún hefir öll getað orðið sammála um ríkisrekstur á skólabúunum. Einn nm. telur það aðalatriði, og hinir tveir hafa getað sætt sig við það. Ég fyrir mitt leyti tel vafaatriði, hvort það er bezta fyrirkomulagið, og ég get verið hræddur um, að deildirnar greini á um þetta atriði, því í hitteðfyrra, þegar rætt var um búnaðarskólana í hv. Nd., komu fram sterkar raddir gegn því, að ríkið ræki sjálft skólabúin. En úr því hv. landbn. hefir orðið einhuga um það, geri ég ráð fyrir, að meiri hl. þessarar hv. d. hnigi að því ráði. Mun ég því fyrir 3. umr. athuga, hvort rétt sé að bera fram brtt. í þá átt, að koma inn í frv. fullkominni heimild handa ríkisstj. til að láta fara fram viðtækari starfsemi á skólabúunum jafnframt verklegri kennslu.

Það er mikil þörf á hliðstæðum átökum á sviði kvikfjárræktarinnar þeim, sem þegar hafa verið tekin á jarðræktarsviðinu. Og ef ríkið á að taka að sér búreksturinn á skólajörðunum, finnst mér sjálfsagt að láta leysa þar ýms þau verkefni, sem óleyst eru í þágu búpeningsræktarinnar. Ef við rekstur hins opinbera á skólabúunum ynnist það, að bætt aðstaða fengist til að leysa þessi verkefni, mundi ég ekki hika við að vera honum fylgjandi. Það vill nú svo vel til, að það mun vera von á skólastjóra annars af bændaskólunum hingað til bæjarins næstu daga, svo e. t. v. verður hægt að leita álits hans um þetta efni fyrir 3. umræðu.

Það voru tvö atriði í ræðu hv. 4. landsk., sem ég er ekki á sömu skoðun um og hann.

Hann minntist nokkuð á þær breyt., sem eru að verða á atvinnurekstri bænda. Hann sagði víst ekki beint, að þessum breyt. hefði verið þröngvað upp á bændur, en ummæli hans féllu þó eitthvað í þá átt og hann talaði um flaustur í því sambandi. Ég vil þvert á móti halda því fram, að breytingarnar á búnaðarháttum hafi verið vel undirbúnar og að þeim hafi ekki verið hrundið af stað af utanaðkomandi áhrifum, heldur af framkvæmdahug bændanna sjálfra. Það er félagsskapur þeirra sjálfra, sem unnið hefir að umbótunum og stutt þær; það er samvinnufélagsskapurinn, búnaðarfélagsskapurinn, og pólitísk samtök þeirra. Framfarir búnaðarins eru ávöxtur þeirrar félagshreyfingar, sem fest hefir svo djúpar rætur meðal bændastéttarinnar íslenzku.

Þá vék hv. 4. landsk. að verkfærakaupum bænda; var honum ljóst, að þau eru mjög nauðsynleg, og kvað þau vera óðum að aukast. En hann var hræddur um, að bændur myndu reka sig á líkt og sjómennirnir, þegar þeir fóru að kaupa vélbátana athugunarlítið. Kvað hann sjómennina hafa beðið mikið tjón af því í fyrstu, að þeir höfðu ekki þekkingu til að velja vélarnar né fara með þær. Það má vel vera, að eitthvað hafi verið gert og verði gert í sambandi við verkfærakaup bænda, sem ekki er nægilega athugað fyrirfram. En breytingin á starfsháttum bænda hefir verið undirbúin ólíkt betur heldur en breyt. á sjávarútveginum var á sínum tíma. Miklar tilraunir hafa verið gerðar með landbúnaðarverkfæri, og þær eru gerðar enn. Búnaðarfélagið hefir mikið eftirlit með því, hvaða verkfæri eru keypt, í sambandi við styrkveitingar verkfærasjóðsins. Og Búnaðarfél. hefir gefið út skýrslur um reynslu margra tegunda af verkfærum, og aðrar tegundir er það enn að gera tilraunir með. Hv. 4. landsk. þarf því ekki að vera mjög kvíðinn um þetta, því mikið er gert til að reyna að koma í veg fyrir það, að samskonar mistök verði hjá bændum, sem hann talaði um að orðið hafi hjá sjómönnum.