21.03.1930
Efri deild: 57. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1537 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)
8. mál, bændaskóli
Jón Baldvinsson:
Það mun rétt hjá hæstv. forsrh., að ég hafi látið orð falla eitthvað í þá átt, að hinum miklu breyt. og framförum í búnaði hafi hálft í hvoru verið þröngvað upp á bændur af löggjafarvaldinu. Það er öllum ljóst það kapphlaup, sem verið hefir á milli flokkanna um það, að styrkja landbúnaðinn sem mest. Það, sem gert hefir verið í þá átt, tel ég ekki til hins verra af því, sem Alþ. hefur gert, en þær litlu kröfur, sem heyrzt hafa um þessar breyt. frá bændum sjálfum, bera ekki vott um mjög almennan áhuga hjá þeim.
Hitt er náttúrlega ekki heldur rétt, sem hæstv. ráðh. sagði um hinn pólitíska félagsskap bænda. Það má segja, að hann sé, eins og margt annað í landinu, utanaðkomandi. Samvinnufélagsskapurinn er aðfluttur. Ekkert er heldur við þetta að athuga; þetta fyrirkomulag getur náttúrlega lagað sig eftir okkar skilyrðum, alveg eins og annað, sem við tökum upp. En aðflutt er það upphaflega eigi að síður.
Hæstv. ráðh. hafði eftir mér, að það hefðu verið notaðar allar mögulegar tegundir af bátavélum, og hefði það gert mikinn skaða. Ég sagði þetta að vísu líka, en ég lagði meiri áherzlu á það, að þekkingarleysi í meðferð bátavélanna hefði valdið þeim skaða, sem varð á mótorbátum, sem komu fyrst til landsins, og veldur sjálfsagt enn skaða. Mér hefir sagt kunnugur maður, að af hinum stóra útveg vestanlands fyrstu árin eftir að mótorbátanotkunin komst í algleyming hafi um 1/3 hluti komizt í skuldir og eyðilagzt vegna vanþekkingar á meðferð véla. Og það, sem ég lét í ljós, var ótti við það, að um talsvert mikið af þeim vélum, sem landbúnaðurinn hefir tekið í sína notkun nú á síðustu árum fyrir hvatningu og styrk frá ríkinu, fari eitthvað á sömu lund. Og þess vegna var ég einmitt að leggja áherzlu á að koma upp fyrirmyndarbúum víðar á landinu en ráðgert er í frv., til þess að þaðan gæti komið hagkvæm þekking í þessu efni. Fyrirlestrar geta út af fyrir sig verið góðir, og ritaða orðið líka. En hitt býst ég við, að skipti mestu máli, að menn sjái, hvernig framkvæmd er vinna með þessum vélum.
Hæstv. ráðh. gat þess réttilega, að það eru gerðar tilraunir með þessi landbúnaðarverkfæri. En hinsvegar eru menn alls ekki sammála um það, hvaða vélar eigi að nota. Það eru margir innflytjendur, og þá er svo hætt við, að hagsmunir við sölu komi til greina ekki síður en hitt, hvað sé sú bezta teg., sem hægt er að fá.
Það væri það albezta, ef Búnaðarfélagið t. d, hefði algerlega með höndum innflutning landbúnaðarvéla, léti reyna þær og tæki þær einar til sölu, sem reynast vel hér á landi. Það er alveg gefið, að vélar geta reynzt vel annarsstaðar, en ekki hér á landi. Þannig er það um báta, sem smíðaðir eru í Danmörku, Noregi og Svíþjóð til notkunar þar; þeir eru ekki alltaf eins hæfir til notkunar hér.
Það er engin ástæða fyrir mig að deila við hv. frsm. landbn. Við erum sammála að kalla, þó að hann væri að undirstrika það, að opinberi búreksturinn sé neyðarúrræði. En mér skildist hæstv. atvmrh. og hv. 2. þm. N.-M., sem hefir ekki alllitla þekkingu á þessum hlutum, telja þetta mikilsvert atriði. Þó að hv. 2. þm. N.-M. þættist sjá talsverða annmarka á þessu, taldi hann þá hverfandi hjá ýmsum kostum, sem hann taldi upp.
Annars er það undarlegt, að hv. frsm. kallar þetta neyðarúrræði, að reka bú af hálfu þess opinbera, ef sá búskapur er til mikils gagns fyrir landbúnaðinn, eins og hann álítur. Og hann sér ekki annað ráð til að útbreiða haldkvæma þekkingu í sveitum, skilst mér. Hann var eitthvað að tala um opinberan búrekstur, sem hefði farið svona og svona. Náttúrlega er ekki því að neita, að slíkur opinber rekstur getur misheppnazt. En þar sem hann talaði um, að Reykjavíkurbær hefði ráðizt í búrekstur, þá man ég ekki eftir því; en hann hefir ræktað land að vísu. Af því að hv. þm. er ekki vel kunnugur, á hann kannske við kartöflurækt á Kjalarnesi, sem reyndar gekk illa. En það var sérstök hallærisráðstöfun. Búrekstur hefir bærinn aldrei haft, þó að fyrirhugað sé af nokkrum mönnum, að hann byrji slíkt fyrirtæki til að hafa hönd í bagga um verð mjólkur. Ég veit og viðurkenni, að um þessi opinberu fyrirtæki fer mikið eftir því, hvort duglegir og góðir menn veita þeim forstöðu eða ekki. Annað, sem ræður miklu bæði um opinberan rekstur og samvinnufélagsskap, er félagsþroski þjóðarinnar.