05.04.1930
Efri deild: 70. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)
8. mál, bændaskóli
Frsm. (Jón Jónsson):
N. hefir rætt þetta nokkuð, og sérstaklega var það af þeirri orsök, að skólastjóri annars bændaskólans kom á fund n. og óskaði, að tekið væri fram nokkuð nákvæmar um þetta, viðvíkjandi þessum tilraunum, sem þarna ættu fram að fara, sérstaklega ákvæðið um, að þær skyldu kostaðar af ríkissjóði. N. tók þetta til athugunar og komst að þeirri niðurstöðu, að ekki væri þörf á að bera fram brtt., vegna þess, að það væri ákveðið í gr., að hagnýtar tilraunir skyldu fara fram á skólabúunum, en þau hinsvegar kostuð af ríkissjóði. Og n. sá heldur ekki, að það væri neitt einskorðað, hversu víðtækar þær tilraunir væru, heldur færi allt eftir samkomulagi við skólastjóra og atvmrh., og ég tel, að eftir þessum till. hafi stj. óbundnar hendur með að framkvæma þessar tilraunir, er að sjálfsögðu verða greiddar úr ríkissjóði.
Ég veit ekki annað en að n. sé öll sammála. Við höfum rætt þetta nokkuð, og hygg ég, að mér sé óhætt að fullyrða, að fyllsta heimild sé til að framkvæma þessar rannsóknir eftir gr.
Í sambandi við þetta frv. vil ég minnast á það, að ég hefi, á þskj. 424, flutt örlitla brtt. við frv., samkv. ósk skólastjórans á Hvanneyri, sem á að vera til að vernda búfræðingsnafnið. Það eru fyrirmæli um það, að þeir, sem lokið hafa fullnaðarprófi frá búfræðideild, eða hliðstæðum skólum erlendum, hafi einir rétt til nafnsins; hann hugsar sér þannig að tryggja það, að þetta nafn haldi fullu áliti með þessu móti. — Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þessa till.; hún er að vísu lítilfjörleg, en virðist þó vera fyllilega réttmæt.