08.04.1930
Neðri deild: 74. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1548 í B-deild Alþingistíðinda. (2033)

8. mál, bændaskóli

Jón Sigurðsson:

Það var einmitt þetta, sem ég vissi, að hæstv. forsrh. myndi koma með, en þetta mál bar á góma í n., og þá skildist mér, að ég og Halldór Vilhjálmsson værum sammála. Mér virtist það koma í ljós, að Halldór Vilhjálmsson hélt, að húsrúm væri ekki nóg á skólajörðunum til að leyfa slíka aukningu, en rétt áður hafði hann gert ennþá harðari kröfur í bréfi til n. um þetta.